Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hafa elst ótrúlega vel

Klass­ískar þrí­leikir og bóka­flokkar sem njóta enn vin­sælda.

Hafa elst ótrúlega vel

Sjöwall og Wahlöö-bæk­urnar
Bækur hjón­anna Sjöwalls og Wahlöö (sjá mynd hér að ofan) urðu tíu tals­ins. Þær eru taldar hafa markað tíma­mót í bók­mennta­sög­unni og haft mikil áhrif á þá höf­unda sem á eftir fylgdu. Aðal­per­sónan, sænski lög­reglu­mað­ur­inn Martin Beck, er engin ofur­hetja heldur ósköp venju­legur maður sem glímir við sín vanda­mál. Bækurnar komu út á árunum 1965-1975 og hafa elst ótrú­lega vel. Meðal þeirra má nefna Morðið á ferj­unni, Löggan sem hló, Pólís, pólís og Maðurinn á svöl­unum. Þær hafa verið þýddar á fjölda tungu­mála og nokkrar þeirra hafa verið kvik­mynd­aðar.

Ísfólkið
Bækurnar um Ísfólkið urðu alls 47 og fóru að koma út á Íslandi fyrir rúmum þrjá­tíu árum. Þær voru end­ur­út­gefnar af Jentas í nýrri þýð­ingu fyrir nokkrum árum. Í stuttu máli segja þær frá bar­áttu afkom­enda Þengils hins illa við að aflétta þeim álögum sem hann lagði á einn í hverri kyn­slóð. Baráttan stendur yfir öldum saman og les­and­inn fær að fylgj­ast með örlögum afkom­end­anna. Þetta eru magn­aðar bækur sem grípa mann föstum tökum. Þetta eru einu bæk­urnar sem hér eru nefndar sem ekki hafa verið kvik­mynd­aðar, það hefur verið reynt en ekki tek­ist, ein­hverra hluta vegna.

Hringa­drótt­ins­saga
Stór­kost­legar bækur eftir J.R.R. Tolkien. Þær komu fyrst út árin 1954 og 1955 í þremur bindum. Í þeim segir frá hobbit­anum Fróða Bagga sem eign­ast dul­ar­fullan hring. Fljót­lega kemur í ljós að eina leiðin til að stöðva hinn illa Sauron, sem hyggur á yfir­ráð í Miðgarði, er að fara með hring­inn eina til Mordor og eyða honum þar. Fróði fer í þessa hættu­för með fríðu föru­neyti og lendir í mörgum ævin­týrum á leið­inni. Bækurnar voru kvik­mynd­aðar og mynd­irnar eru mjög flottar og nutu gríð­ar­legra vin­sælda. Endilega samt ekki sleppa því að lesa bæk­urnar, þær eru ein­stakar.

Lisbet Salander tölvu­séní og Mikael Blóm­kvist blaða­maður eru frá­bært teymi.

Mil­lenium-þrí­leik­ur­inn
Stieg Larsson skrif­aði þrjár flottar og spenn­andi bækur sem náðu miklum vin­sældum um heim­inn. Hann lést óvænt áður en sú fyrsta kom út, aðeins fimm­tugur að aldri, en hafði ætlað að skrifa fleiri bækur um þau Mikael Blóm­kvist blaða­mann og Lisbet Salander tölvu­séní sem eru frá­bært teymi. Bækurnar voru auð­vitað kvik­mynd­aðar og völd­ust ein­stak­lega flottir leik­arar í hlut­verkin. Fjórða bókin, aug­lýst úr smiðju Stiegs heit­ins, kom út á síð­asta ári en til­urð hennar var umdeild. Mér fannst hún ágæt spennu­saga en David kemst þó ekki með tærnar þar sem Stieg hafði hæl­ana.

Harry Potter
Bækurnar um hug­rakka galdra­strák­inn með eld­ing­ar­laga örið á enn­inu eru sjö tals­ins, hver annarri skemmti­legri. Þær höfða til allra ald­urs­hópa og fólk beið í löngum röðum eftir hverri nýrri bók. Höfundur bjó til ein­stak­lega spenn­andi heim galdra og töfra, bar­áttu góðs og ills þar sem hið góða fer yfir­leitt með sigur af hólmi. Hún er líka töfrum slungin sagan af höf­und­inum, fátækri, ein­stæðri móður sem breytti lífi sínu með því að gefa heim­inum þessar dásam­legu ævin­týra­bækur. Börn sem áður lásu ekki sér til skemmt­unar, sökktu sér niður í þessar bækur og þegar kvik­myndir voru gerðar eftir þeim slógu þær líka í gegn.

Sjöwall og Wahlöö-bæk­urnar
Bækur hjón­anna Sjöwalls og Wahlöö urðu tíu tals­ins. Þær eru taldar hafa markað tíma­mót í bók­mennta­sög­unni og haft mikil áhrif á þá höf­unda sem á eftir fylgdu. Aðal­per­sónan, sænski lög­reglu­mað­ur­inn Martin Beck, er engin ofur­hetja heldur ósköp venju­legur maður sem glímir við sín vanda­mál. Bækurnar komu út á árunum 1965-1975 og hafa elst ótrú­lega vel. Meðal þeirra má nefna Morðið á ferj­unni, Löggan sem hló, Pólís, pólís og Maðurinn á svöl­unum. Þær hafa verið þýddar á fjölda tungu­mála og nokkrar þeirra hafa verið kvik­mynd­aðar.

Texti / Guðríður Har­alds­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu