Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tólf góð ráð frá stílistum

Stílistar og inn­an­húss­hönn­uðir luma á snjöllum lausnum þegar kemur að því að fegra stof­una og gera hana spenn­andi og áhuga­verða.

Tólf góð ráð frá stílistum

Stofur eru alls konar: stórar, litlar, nútíma­legar, gam­al­dags, tóm­legar, yfir­hlaðnar. Þær eiga það þó flestar sam­eig­in­legt að þar slökum við á, skemmtum okkur, tökum á móti gestum, horfum á sjón­varpið og njótum þess að vera saman. Ef þig langar að hressa upp á stof­una þína ætt­irðu að lesa áfram, því hér eru tólf góð ráð frá stílistum.

1. Ef þú hefur pláss, dragðu sófa og stóla örlítið frá veggj­unum. Það verður meiri nánd fyrir sam­ræður þegar hús­gögnin eru nær hvert öðru og það skapar meiri kósí­heit. Stofan mun líka virð­ast tals­vert stærri.

2. Skiptu út sófa­borð­inu þínu fyrir annað minna sem þó er nógu stórt fyrir bók og nokkra kaffi­bolla og er að auki fær­an­legt. Þú sparar mikið pláss með þessu og það loftar betur um stof­una.

3. Að stað­setja bóka­hillu fyrir aftan sófann er góð hug­mynd útlits­lega og ekki verra að fá aukið pláss fyrir tíma­rit og bækur og punt. Þar sem sóf­inn skyggir á hill­una gætir þú geymt hluti sem þú notar sjaldnar.

4. Að blanda saman gömlum og nýjum munum er frá­bær leið til að auka orku í stof­unni (og öðrum her­bergjum).

5. Bættu jafn­vægið á milli þyngri hluta og þeirra létt­ari til að koma í veg fyrir þyngsla­leg svæði. Léttari hlut­irnir, eins og sófa­borð eða hlið­ar­borð, þurfa að vera í sam­hljómi við þá þyngri, eins og sófa, stóla og skenka.

6. Settu upp á vegg, t.d. fyrir ofan sófann, grunna hillu eða lista sem þú getur tyllt flottum myndum á, inn­römm­uðum plakötum, mál­verkum, ljós­myndum, ekk­ert endi­lega í sömu stærð. Ef þú þreyt­ist á þeim, get­urðu auð­veld­lega skipt þeim út.

7. Litir eru lyk­ill­inn að því að blanda saman hlutum í sam­ræmi. Að nota marga liti getur orsakað óró­leika en ef t.d. hvíti lit­ur­inn er mest áber­andi, t.d. á veggj­unum og ein­hverjum hús­gögnum, púðum eða punti, kemur það í veg fyrir að lita­gleðin verði yfir­þyrm­andi.

8. Gull­litur getur gert heil­mikið fyrir hvert her­bergi.

9. Að hafa allt svo­lítið lágt (líka lista­verk á veggjum) getur verið snjallt ef þú vilt að stofan þín virki stærri. Lágt sófa­borð og hús­gögn, t.d. sófi með lágt bak, hafa heil­mikil áhrif til að svo verði. Það er allt í lagi að hafa háa stand­lampa, það er bara flott að láta birt­una koma frá þeim.

10. Með því að hengja lista­verkin þín ekki alltaf fyrir miðju, t.d. yfir miðjum sóf­anum, mun það draga athygl­ina að þeim og skapa áhrif hins óvænta.

11. Tveir stólar hlið við hlið þurfa ekki að vera eins. Prófaðu að setja saman tvo stóla frá svip­uðu tíma­bili en með ólíka lögun. Það kemur skemmti­lega út.

12. Ef þú ert í vafa, bættu smá­vegis svörtu við.

Texti / Guðríður Har­alds­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu