Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Góðar vinkonur í raun

Í sjálf­stæðum bíó­myndum er oft að finna raun­veru­legar lýs­ingar á vin­áttu kvenna.

Góðar vinkonur í raun

Vinátta kvenna er algengt við­fangs­efni kvik­mynda en oftar en ekki virð­ast þær aðeins sýna léttu og ljúfu hliðar hennar. Konur eru flóknar verur og vin­átta þeirra á milli getur verið af ýmsum toga. Það er kannski helst að við finnum raun­veru­legar lýs­ingar á vin­áttu í sjálf­stæðum bíó­myndum. Hér eru nokkur góð dæmi.

Úrhrök sam­fé­lags­ins
Ghost World fjallar um þær Enid og Rebeccu sum­arið eftir að þær klára gagn­fræða­skóla. Þær eiga báðar í erf­ið­leikum með að tengj­ast fólki og eyða tíma sínum í að slæp­ast og setja út á fólk sem þeim finn­ast óspenn­andi. Þegar þær kynn­ast Seymour, sem er utan­garðs og lifir fyrir það að safna gömlum 78 snún­inga hljóm­plötum, umturn­ast líf þeirra. Á meðan Enid byrjar að hanga meira með Seymour fer Rebecca að hegða sér eins og venju­leg ung­lings­stúlka. Hún byrjar að vinna á kaffi­húsi og fær meiri áhuga á strákum og tísku. Stelp­urnar vaxa meira og meira í sundur þar til það lítur út fyrir að þær muni aldrei ná saman aftur.

And­stæður
And­stæður lað­ast hvor að annarri og það á svo sann­ar­lega við um vin­kon­urnar Holly og Marinu í kvik­mynd­inni Me Without You. Holly er hljóð­lát á meðan Marina er frjáls­ari og villt­ari. Þær kynn­ast fyrst þegar þær verða nágrannar tólf ára og verða strax mjög nánar. Vinátta þeirra er þó alls ekki full­komin og oft á tíðum ekki einu sinni fal­leg. Þær virð­ast báðar vera afbrýð­is­samar hvor út í aðra og sam­bönd þeirra við karl­menn eru flókin. Þrátt fyrir þetta halda þær áfram að vera vin­konur í gegnum súrt og sætt þangað til Holly slítur sig lausa einn dag­inn.

Hálf­full­orðin
Frances í kvik­mynd­inni Frances Ha er ung kona í New York sem vill helst ekki full­orðn­ast – hana langar að gera og verða margt en nær árangri í fáu. Mesti sigur hennar hingað til er að hafa ving­ast við Sophie. Þær búa saman og hanga saman öllum stundum en gera lítið annað en að gera háðs­legar athuga­semdir um lífið og umhverfið í anda Dorothy Parker. Þegar Sophie fer að sína merki þess að vilja full­orðn­ast og ákveður að flytja í drauma­hverfið sitt, Tribeca, tekur Frances því illa. Samband þeirra bíður ákveðna hnekki á meðan Frances fer úr einu í annað í leit að sjálfri sér og ást­inni en eins og sannar vin­konur ná þær aftur saman á end­anum.

Hip­sterar í Brooklyn
Í mynd­inni Fort Tilden er svo­kall­að­aður „hip­stera-húmor“ mjög ríkj­andi – þar sem fólk gerir bæði grín að sjálfu sér og öllu öðru. Myndin segir frá vin­kon­unum Harper og Allie sem búa í Brooklyn. Þær eru mjög kald­hæðnar og jafn­vel ill­kvittnar í ummælum sínum um aðra og eru eig­in­lega týpur sem margir myndu forð­ast að umgang­ast – en þær virð­ast mjög ánægðar í félags­skap hvor ann­arrar. Sagan ger­ist nær öll einn sum­ar­dag þegar vin­kon­urnar reyna að kom­ast hjólandi á strönd í útjaðri New York til að hitta tvo gaura sem þær hittu í partíi kvöldið áður. Á leið­inni fáum við að kynn­ast stelp­unum betur og brátt verða brest­irnir í vin­átt­unni sýni­legri.

Ákaft sam­band
Nýsjá­lenska kvik­myndin Heavenly Creatures er byggð á sannri sögu af þeim Juliet Hulme og Pauline Parker sem lögðu á ráðin og myrtu mömmu Pauline. Stúlk­urnar kynn­ast þegar Juliet byrjar í sama skóla og Pauline og þær verða fljótt mjög nánar. Þær eiga það sam­eig­in­legt að hafa átt við veik­indi að stríða í æsku og upp­lifað ein­angr­andi spít­ala­vist. Þær deila einnig ástríðu á ævin­týrum og bók­menntum og stytta sér stundir með því að semja sögur sem þær dreymir um að selja til Hollywood. Þegar mamma Pauline reynir að binda enda á ákaft og þrá­hyggju­kennt sam­band vin­kvenn­anna ákveða þær að myrða hana. Um er að ræða fyrsta kvik­mynda­hlut­verk beggja aðal­leik­venn­anna, þeirra Kate Winslet og Melanie Lynskey, en þær vöktu mikla athygli fyrir leik sinn.

Texti / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu