Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Fjölbreytnin mun koma þér skemmtilega á óvart“

Töfrandi eyja við vest­ur­strönd Kanada.

„Fjölbreytnin mun koma þér skemmtilega á óvart“
|
Svan­hildur Reyn­is­dóttir Svansson hönn­uður hefur búið á Vancouver-eyju í Kanada síðan 2005.

Svan­hildur Reyn­is­dóttir Svansson hönn­uður hefur búið á Vancouver-eyju í Kanada síðan 2005 ásamt sonum sínum tveimur. Þar er mikil nátt­úru­feg­urð með fal­legum gróðri, ströndum og skógum og sumrin eru heit. Þar er fjöl­menn­ing í hávegum höfð og sam­fé­lagið kennir skiln­ing gagn­vart því að ekki trúi allir eins. Við fengum Svan­hildi til að segja okkur frá nokkrum af sínum upp­á­halds­stöðum á svæð­inu.

Miðbær Victoria
Þegar þið heim­sækið Vancouver-eyju er frá­bært að byrja í miðbæ Victoria og svæð­inu þar í kring. Borgin er umlukin fal­legri strönd og á sumum þeirra sjást Ólymp­íu­fjöllin í Banda­ríkj­unum. Við höfn­ina liggja fjöl­margar snekkjur og skútur við bryggju, götu­lista­menn sýna listir sínar og glæsi­lega þing­húsið og Empress-hót­elið blasa við. Ég mæli ein­dregið með British Colombia-safn­inu en þar er meðal ann­ars hægt að sjá mammúta og marga hluti sem tengj­ast sögu lands­ins, þar með talið frum­byggja­list og Totem-súl­urnar. IMAX-bíóið er skemmti­leg upp­lifun og dásam­legt að skella sér á veit­inga­stað­inn Spag­hetti Factory með fjöl­skyld­una. Þetta er allt í göngu­færi. Um kvöldið er gaman að kíkja á The Irish Pub og fara svo á götu­mark­að­inn þar sem lista­menn selja hand­verkið sitt.

Löng strand­lengja
Í tveggja klukku­stunda akst­urs­fjar­lægð á aust­ur­strönd­inni er bær­inn Park­s­ville sem er ein­stak­lega fjöl­skyldu­vænn. Þar er almenn­ings­garður með nokk­urra kíló­metra langri sand­strönd og þegar er fjara þá er hægt að ganga enda­laust eftir henni, tína ígul­ker og skeljar og búa til sand­kast­ala þangað til flæðir að á ný. Á sumrin eru haldnar stórar sand­kast­ala­keppnir þarna sem fólk héðan og þaðan úr heim­inum tekur þátt í. Ýmislegt er í boði fyrir alla ald­urs­hópa eins og mini-golf, stuð­ara­bátar og mark­aðir. Þú getur einnig séð stóra Douglas-furu og leigt litla kofa á strönd­inni.

Sögulegi blóma­garð­ur­inn The Butchart Gardens er í um klukku­stundar akst­urs­fjar­lægð frá miðbæ Victoria. Stað­ur­inn var byggður snemma á tíunda ára­tugnum á tómri kalk­steins­námu en skartar í dag meðal ann­ars japönskum garði, rósa­garði, græn­met­is­garði ásamt gos­brunnum, styttum og mörgu fleiru.

Risastór blóma­garður
Sögulegi blóma­garð­ur­inn The Butchart Gardens er í um klukku­stundar akst­urs­fjar­lægð frá miðbæ Victoria. Stað­ur­inn var byggður snemma á tíunda ára­tugnum á tómri kalk­steins­námu en skartar í dag meðal ann­ars japönskum garði, rósa­garði, græn­met­is­garði ásamt gos­brunnum, styttum og mörgu fleiru. Fjöl­breytni blóma­hafs­ins mun koma þér skemmti­lega á óvart þegar þú gengur í gegnum þessa röð af görðum sem hann­aðir eru af alþjó­legum lista­mönnum. Á kvöldin er garð­ur­inn lýstur upp og um helgar eru flug­elda­sýn­ingar. Yfir jólin eru Carollers-söngvar sungnir víða um garð­inn, hægt að fara á skauta og aka um í gam­al­dags hest­vagni. Þarna eru versl­anir, veit­inga­staðir, hægt að fá sér síð­deg­iste í vikt­or­ískum stíl og upp­lifa ýmsa skemmtun. Dásam­legt er að verja heilum degi í þessum æðis­lega garði.

Nátt­úrupara­dís
Sjáv­ar­bær­inn Port Renfrew er í um tveggja og hálfrar klukku­stundar akst­urs­fjar­lægð frá miðbæ Victoria en bær­inn er einnig þekktur sem höf­uð­borg stórra trjáa í Kanada. Í villtri nátt­úru Avatar Grove eru heims­ins stærstu tré, þar á meðal Douglas-fura, rauð­viður, greni og Sitka-tré. Það er ævin­týra­legt að ganga í gegnum skóg­inn innan um 500-1000 ára gömul tré sem eru 12 metrar eða meira að ummáli. Ef þið fylgið stígnum komið þið að Gordon-ánni sem er með stórum mosa­klæddum steinum, litlum fossum og burkn­arnir prýða bakk­ana. Í skóg­inum búa elgir, fjalla­ljón, birnir, úlfar og fleiri dýr. Sann­kölluð nátt­úrupara­dís.

Hægt er að leigja flug­vél sem lendir á vatni til að fara í útsýn­is­flug og jafn­vel alla leið til Seattle.

Töfrandi hippa­eyja
Það eru nokkrar eyjur í kringum Vancouver-eyju og Salt Spring Island er ein sú stærsta, stað­sett milli Vancouver-eyju og meg­in­lands­ins. Ferja gengur á milli eyj­anna og hægt að taka bíl­inn með. Ferju­ferðin veitir fal­legt útsýni og hægt að sjá feg­urð Vancouver-eyju úr smá­vegis fjar­lægð. Einnig er hægt að leigja flug­vél sem lendir á vatni til að fara í útsýn­is­flug og jafn­vel alla leið til Seattle. Á Salt Spring Island eru strandir, tjald­stæði og stik­aðar göngu­leiðir. Bænda­mark­aðir með ferskum ávöxtum eru víð­ast hvar ásamt mörk­uðum með hand­verk og fleira. Njóttu töfr­andi og rólegs and­rúms­lofts stað­ar­ins sem er þekktur um heim allan fyrir listir, hand­verk og skap­andi iðnað.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir / Úr einka­safni og safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu