Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Að knýja fram sannleikann

Leik­ritið Efi – dæmi­saga, er sýnt um þessar mundir í Kassanum við Þjóð­leik­húsið. Verkið hverf­ist í kringum mörk mann­legra sam­skipta, tor­tryggni, nísandi óvissu, óræðu sak­leysi og vilj­ans til þess að trúa á hið góða.

Að knýja fram sannleikann

Inntak verks­ins má finna í titli þess því efinn er vafa­laust sá silfraði þráður sem spinnur sög­una saman. Fljót­lega eftir að ljósum er beint á aðal­per­són­urnar eru efa­semda­fræjum stráð í huga áhorf­enda sem fá svo að velkj­ast þar í vafa á meðan á sýn­ing­unni stendur, og von­andi lengur. Hand­ritið er vand­lega unnið en verkið sló fyrst í gegn árið 2004 þegar það var frum­sýnt í New York og hefur síðan þá unnið til fjölda verð­launa en það byggir á dæmisögu eftir John Patrick Shanley en lifnar hér við í leik­stjórn Stefáns Bald­urs­sonar.

Sagan segir frá þeim systur Aloys­isus og séra Flynn sem starfa á sama vinnu­stað. Strax í upp­hafi er áhorf­endum gert ljóst að gríð­ar­leg stétta­skipt­ing á sér stað innan starfs­stétt­ar­innar þar sem kynin mega vart mæt­ast á göngu við klaust­urs­vegg­ina.

Þegar verkið hefst hefur hinn geð­þekki Flynn nýverið tekið við stöðu prests og ekki líður að löngu þar til systir Aloys­isus fer að gruna hann um græsku. Eftir að hafa fylgst vök­ulu auga með hverri hreyf­ingu ákveður hún að grunur sinn sé á rökum reistur og sækir hann til saka um ósæmi­lega hegðun gagn­vart nem­enda við klaust­ur­skól­ann. Hin sak­lausa og auð­trúa systir James er sam­stundis þvinguð í dóms­úr­skurða­nefnd um sann­leiks­gildi ásakan­anna.

Leik­ara­val sýn­ing­ar­innar er hágæða og gleði­legt að fá Stein­unni Ólínu Þor­steins­dóttur aftur á svið eftir þrettán ára hlé. Hlutverk systur Aloys­isus virð­ist sem hannað fyrir Stein­unni enda túlkar hún hina mis­kunn­ar­lausu og óskeik­ulu Aloys­isus af mik­illi sann­fær­ingu. Það að fá Hilmi Snæ Guðnason í hlut­verk séra Flynn var jafn­framt stór­snjallt enda gæti hann með sínu flekklausa brosi kom­ist upp með hvað sem er. Eins og við var að búast var sam­leikur þeirra fram­úr­skar­andi og dínamík verks­ins nán­ast áþreif­an­leg eftir sem líða tók á fram­vind­una. Spurn­ingin sem situr eftir er hvenær höfum við rétt til þess að rétta yfir eigin sam­fé­lagi og er í raun hægt að knýja fram sann­leik­ann?

Lára Jóhanna Jóns­dóttir lék hina ungu og óreyndu systur James og gerði vel. Eflaust fundu með­virkir áhorf­endur ræki­lega til sín en systir James vakti á sama tíma samúð úr salnum fyrir því erf­iða vali sem hún stóð frammi fyrir. Sólveig Guð­munds­dóttir túlk­aði svo móður drengs­ins sem deilur verks­ins hverf­ast í kringum í litlu en eft­ir­minni­legu hlut­verki.

Það að tit­ill leik­rits­ins sé dæmi­saga gefur sög­unni ákveðið hlut­leysi en enda­lok sýn­ing­ar­innar eru jafn­framt óræð sem eykur að mínu mati líf­tíma sög­unnar. Þórunn Sigríður Þor­gríms­dóttir hann­aði bæði bún­inga og leik­mynd en sögu­sviðið er sam­bland af rann­sókn­ar­stofu og umferð­ar­götu þar sem hægt er að ákveða í hvora átt­ina skal haldið. Óhætt er að segja tón­list og lýs­ingu í lág­stefnd­ara lagi en sú leið hentar verk­inu vel þar sem úrvals leikur fær hvað best notið sín meðan áhorf­endur sveifl­ast á milli þess hver hinn end­an­legi sann­leikur sé.

Texti / Íris Hauks­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu