Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fyllti eldhúsið af keramík

Áskorun að fara út fyrir þæg­ind­ara­mmann.

Fyllti eldhúsið af keramík

Hera Guð­munds­dóttir hönn­uður tók þátt í Hönn­un­ar­Mars 2018 með sýn­ing­unni Souvenir/Minning í Geysi Heima. Hún starfar bæði hér­lendis og í Frakk­landi og nafn hönn­unar hennar, Atelier Dottir, tengir þessa tvo menn­ing­ar­heima.

Hera Guð­munds­dóttir er konan á bak­við hönn­un­ina Atelier Dottir og starfar bæði í París og á Íslandi.

„Sýningin mín á Hönn­un­ar­Mars 2018 er hluti af rann­sókn­ar­vinnu sem ég byrj­aði á fyrir næstum ári síðan. Verk­efnið er enn í mótun en mér fannst áhuga­vert að sýna verk sem er enn þá á útfærslu­stigi,“ úrskýrir Hera. „Rann­sóknin snýr að sam­band­inu á milli lyktar og minnis eða hvernig við tengjum ákveðna lykt við stað og stund. Ég not­ast við ilm­kjarna­ol­íur sem ég hef blandað til að draga fram ákveðnar minn­ingar, mínar eigin og ann­arra, en ég dreypi svo þessum olíum yfir litla skúlp­t­úra úr stein­leir sem dregur ilm­inn í sig og gefur jafn­framt frá sér. Verk­efnið er mun nær mér en það sem ég hef gert hingað til en í því er einmitt mikil áskorun, að fara út fyrir þæg­ind­ara­mmann og sjá hvað ger­ist.“

Flakkar milli miðla
Hera lærði fata­hönnun í Lista­há­skóla Íslands og útskrif­að­ist 2012 en hefur á síð­ustu árum færst yfir í önnur list­form. Hún er lík­lega þekkt­ust fyrir vegg­spjöldin sem hafa verið í sölu og nú síð­ast bætt­ist keramíkið við.

„Ætli það sem ég geri sé ekki á mörkum hönn­unar og listar. Mér finnst mjög áhuga­vert allt sem að sam­einar nota­gildi og fag­ur­fræði; hlut­irnir sem við umkringjum okkur með og fegra umhverfi okkar. Ég flakka á milli miðla en hingað til hef ég mest unnið með collage og ljós­myndir sem verða svo að vegg­spjöld­unum sem Atelier Dottir er þekkt fyrir. Nýjasti mið­ill­inn er hins vegar keramík sem ég byrj­aði að vinna með síð­asta haust. Mér finnst engin ástæða til að ein­skorða sig við einn miðil eða eina ákveðna tækni, það sem vekur áhuga hverju sinni er alltaf vert að skoða.

Það var ekki endi­lega með­vituð ákvörðun að hverfa frá fata­hönnun. Mig lang­aði að breyta til og lét eina spurn­ingu ráða ferð­inni: „Hvað langar þig að gera alla daga, alltaf?“ Það sem ég komst að er að ég þrífst best þegar ég vinn að ólíkum verk­efnum, þegar engir tveir dagar eru eins. Ég er ekki viss um að ég hafi sagt skilið við fata­hönnun fyrir fullt og allt en í augna­blik­inu finn ég mig betur innan list­ar­innar og ann­arra sviða hönn­unar. Allt sem ég nýti mér í dag við rann­sóknar- og hug­mynda­vinnu lærði ég í nám­inu. Ég sé það alltaf betur og betur hversu margar og ólíkar dyr hönn­un­ar­nám getur opnað. Námið er í raun upp­haf­s­punktur rann­sóknar sem svo teygir sig inn á önnur og ólík svið.“

Í nýj­ustu hönnun sinni dreypir Herar ilm­kjarna­ol­íum yfir litla skúlp­t­úra úr stein­leir með það að mark­miði að draga fram minn­ingar.

Kynntist ást­inni í París
List hefur alltaf skipt Heru miklu máli og hún hefur alla tíð verið umkringd list bæði heima hjá sér og hjá afa sínum og ömmu. „Ég veit ekki hvernig áhug­inn kvikn­aði fyrir alvöru, ætli hann hafi ekki bara alltaf verið þarna en ég held að ég hafi lært snemma að list væri sjálf­sögð og nauð­syn­leg. Ég er fædd í Reykja­vík og alin upp við Skóla­vörðu­holtið. For­eldrar mínir fluttu í Garðabæ þegar ég var ung­lingur og búa þar enn en mér hefur alltaf fund­ist ég vera miklu meiri Reyk­vík­ingur en nokkuð annað. Ég kynnt­ist mann­inum mínum í París en við erum búin að vera saman í tæp fimm ár. Hann er ein­stak­lega skiln­ings­ríkur og þarf oft að sýna mikla þol­in­mæði þegar ég er í miðju verk­efni. Ég lagði til dæmis undir mig eld­húsið í des­em­ber fyrir keramíkið og það var varla hægt að sjóða vatn þar fyrir vösum og klumpum af stein­leir. For­eldrar mínir og afi og amma hafa líka sýnt mér mik­inn stuðn­ing, alveg síðan í nám­inu, voru alltaf í klapp­lið­inu og alltaf til í skutl og redd­ingar á síð­ustu stundu.“

„Það hefur milka þýð­ingu fyrir mig að sýna á Íslandi. Ég sæki mér orku í hvert skipti sem ég kem heim til Íslands og það eru algjör for­rétt­indi að geta flakkað svona á milli og sinnt verk­efnum á báðum stöðum.“

Hera flutti til Frakk­lands haustið 2012 til að vera í starfs­námi í þrjá mán­uði. Síðan eru liðin sex ár. „Frakk­land og þá sér­stak­lega París er og verður drauma­staður fyrir alla sem tengj­ast list eða hönnun, sagan og söfnin eru næg ástæða til að setj­ast þar að. Síðan er mað­ur­inn minn auð­vitað er franskur. Nafnið sem ég hanna undir, Atelier Dottir, tengir saman löndin mín tvö og vísar í þetta flakk á milli Parísar og Reykja­víkur. Svo spil­aði líka inn í að „h“ er ekki borið fram í frönsku og ég hef enn þá ekki hitt þann Frakka sem getur borið rétt fram föð­ur­nafnið mitt.“

Hera hélt sýn­ingu í Geysi heima á Hönn­un­ar­Mars.

Sækir orku til Íslands
Hera hefur haldið nokkrar sýn­ingar. Í Reykja­vík hefur hún sýnt hjá Norr11, The Coocoo’s nest og Geysi Heima. „Allt mjög ólíkar sýn­ingar sem eiga það sam­eig­in­legt að hafa verið unnar í sam­starfi við frá­bært fólk og haldnar í fal­legum rýmum svo það er ómögu­legt að gera upp á milli þeirra. Í des­em­ber síð­ast­liðnum tók ég í fyrsta skipti þátt í sam­sýn­ingu hönn­uða í París en út frá þeirri sýn­ingu hófst nýtt sam­starf sem verður kynnt með vor­inu. Það hefur mikla þýð­ingu fyrir mig að sýna á Íslandi. Ég sæki mér orku í hvert skipti sem ég kem heim til Íslands og það eru algjör for­rétt­indi að geta flakkað svona á milli og sinnt verk­efnum á báðum stöðum. Það skiptir mig miklu máli að halda í þessa teng­ingu.“

Næsta verk­efni Heru er lína af hand­gerðum keramíkvösum sem hún gerir fyrir blóma­sal­ann Louis-Géraud Castor sem sér meðal ann­ars um blóma­skreyt­ingar fyrir búðir A.P.C. og Lemaire og Picasso-safnið í París. „Við byrj­uðum á hug­mynda­vinn­unni í des­em­ber og ætlum okkur að kynna vasana í apríl en fyrsta frum­gerðin var hluti af sýn­ing­unni minni á Hönn­un­ar­Mars,“ segir Hera að lokum. Hera er á Facebook og Instagram undir not­anda­nafn­inu Atelier Dottir. Vegg­spjöldin og gjafa­kortin fást í Geysi Heima og Akkúrat.

Viðtalið birt­ist í 12. tbl. Vikunnar 2018. 

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu