Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hlutverk okkar sem aðstandenda að elska nógu mikið til að sleppa

Ingrid Kuhlman og Sylviane Lecoultre Pét­urs­son eru meðal stofn­enda félags­ins Lífs­virð­ingar. Aðal­til­gangur félags­ins er að stuðla að opinni, upp­byggi­legri og víð­tækri umræðu um dán­ar­að­stoð. Félagið leggur áherslu á að ein­stak­lingur hafi yfir­ráð yfir lík­ama sínum, lífi og dauða. Þær Ingrid og Sylviane hafa báðar per­sónu­lega reynslu af því að fylgja ást­vinum sínum erlendis í þeim til­gangi að enda líf sitt.

Hlutverk okkar sem aðstandenda að elska nógu mikið til að sleppa

Aðspurðar um við­brögð við stofnun félags­ins segja þær Ingrid og Sylviane þau almennt vera góð. „Við finnum fyrir stuðn­ingi við okkar mál­stað úr mörgum áttum. Sumir eru auð­vitað svo­lítið smeykir við að tjá sig um málið eða hafa ein­fald­lega ekki velt því mikið fyrir sér. Hér er um að ræða stórar sið­fræði­legar spurn­ingar sem þarf að ræða af yfir­vegun.“  Þær telja að dán­ar­að­stoð verði eitt af dag­skrár­efnum sam­fé­lags­um­ræð­unnar næstu árin. „Víðtæk umræða í sam­fé­lag­inu er mik­il­væg og lyk­ill­inn að gagn­kvæmum skiln­ingi. Það er aðal­á­stæðan fyrir því að við stofn­uðum Lífs­virð­ingu.

Heitasta óskin að deyja með reisn

Ingrid Kuhlman.

Ingrid og Sylviane hafa báðar reynslu af því að fylgja ást­vinum sínum erlendis í þeim til­gangi að enda líf sitt á þennan hátt. Faðir Ingrid, Anton Kuhlman, var einn af þeim fyrstu sem fékk ósk sína um dán­ar­að­stoð upp­fyllta á lög­legan hátt, aðeins 11 dögum eftir að lög um það tóku gildi í Hollandi þann 1. apríl 2002.

„Pabbi var búsettur í Hollandi þar sem ég er fædd og upp­alin. Hann greind­ist með heila­æxli vorið 1999 sem þrýsti á taugar sem olli lömun í and­lit­inu og jafn­framt miklum verkjum. Æxlið var þannig stað­sett að ekki var mögu­leiki að fjar­lægja það. Við tóku tvær mjög erf­iðar geisla­með­ferðir sem reynd­ust gagn­lausar því æxlið hélt áfram að stækka. Lækn­arnir sögðu að ekk­ert væri hægt að gera til að bjarga lífi hans og bata­horfur væru engar.“  Svona lýsir Ingrid veik­indum föður síns. „Pabba hrak­aði síðan stöðugt, hann missti kraft­inn í hand- og fót­leggjum, jafn­væg­is­skynið varð slæmt og hann var með mik­inn höf­uð­verk. Um pásk­ana 2002 fékk hann háan hita. Talið var að hann væri með lungna­bólgu en það reynd­ist ekki rétt. Hann var fyrir löngu hættur að geta borðað fasta fæðu og fékk hana því ein­ungis í fljót­andi formi. Geisla­með­ferð­irnar höfðu eyði­lagt barka­lok­una með þeim afleið­ingum að hann gat ekki kyngt og því fór allt sem hann drakk beint ofan í lungun en ein­kennin lýstu sér eins og lungna­bólga. Pabbi hafði misst 20-25 kg og var orð­inn aðeins 50 kg undir það síð­asta.

Hann var algjör­lega rúm­liggj­andi og þurfti aðstoð við allar athafnir. Hans heitasta ósk var að fá að deyja með reisn.“

Hann gat ekki lengur drukkið, aðeins bleytt tung­una í vatni því um leið og eitt­hvað fór niður hóstaði hann því upp aftur. Hann hafði fengið mor­fín í 6-7 vikur en það lin­aði ekki kval­irnar í höfð­inu og eyr­anu sem virt­ust óbæri­legar og ómann­eskju­legar. Hann var algjör­lega rúm­liggj­andi og þurfti aðstoð við allar athafnir. Hans heitasta ósk var að fá að deyja með reisn.“

Anton var fylg­is­maður lag­anna um dán­ar­að­stoð og þegar þau tóku gildi í Hollandi þann 1. apríl 2002 kall­aði hann á heim­il­is­lækn­inn sinn. Hann sagð­ist vera búinn að gera upp líf sitt, búinn að kveðja alla, vera sáttur og hrein­lega geta ekki meir.  Óháður læknir vitj­aði hans og kann­aði vilja hans og and­lega getu til þess að taka svo afdrifa­ríka ákvörðun, sem og lík­am­legt ástand. Lækn­ir­inn vott­aði að hann félli undir lög­boðin skil­yrði sem heim­il­uðu dán­ar­að­stoð. Samþykki fékkst og við tók und­ir­bún­ingur dauða­stund­ar­innar.

„Góða ferð og hafðu það sem best“

Ingrid segir engan ágrein­ing hafa verið meðal ætt­ingja um ákvörðun pabba hennar. „Við virtum hana. Hann var sáttur og við vorum sátt. Auðvitað er það örugg­lega það síð­asta sem maður vill að missa ást­vin. En þegar þján­ingin ein er eftir vill maður að dauð­dag­inn verði eins þján­ing­ar­laus og með eins mik­illi reisn og mögu­legt er. Það að ráða eigin dauða­stund ætti að mínu mati að vera undir hverjum og einum komið, að upp­fylltum ströngum og skýrum skil­yrðum. Hver ein­stak­lingur hefur frelsi til að lifa, því hljótum við öll að hafa sama frelsi til að deyja.

Hvers konar líf er það að bíða kval­inn eftir dauð­anum, vit­andi að það er eng­inn von um bata?

Svo kom að því að dán­ar­dag­ur­inn rann upp. „Við vorum öll með­vituð um að þetta væri kveðju­stundin og við vorum hjá pabba allan tím­ann. Þetta var auð­vitað mjög sér­kenni­leg en fal­leg stund og við fjöl­skyldan sátum öll á rúm­stokknum hjá honum þegar lækn­ir­inn gaf honum ban­væna blöndu lyfja og líf hans fjar­aði út. Við spil­uðum ljúfa og rólega tón­list eftir írsku hljóm­sveit­ina Enya. Við sögðum við hann: „Góða ferð og hafðu það sem best.“ Hann var sáttur og við vorum sátt. Hann dó í því umhverfi sem hann vildi og á þann hátt sem hann vildi. Pabbi var búin að biðja okkur um að skála fyrir sér eftir á, sem við og gerðum.“

Vildu að hann færi í geislameðferð

Sylviane Lecoultre Pét­urs­son.

Steinar Pét­urs­son, eig­in­maður Sylviane, lést í mars árið 2013. Hann hafði nokkrum mán­uðum áður greinst með heila­æxli og veik­indin tekið mikið á.

Sylviane segir skoð­anir Steinars varð­andi dán­ar­að­stoð hafa verið ljósar mörgum árum áður en hann veikt­ist. Sið­ferð­is­leg og heim­speki­leg mál­efni séu fjöl­skyld­unni allri hug­leikin og umræður um líf og dauða höfðu ávallt verið fastir liðir. „Þegar hann varð veikur, var hann fljótur að segja að hann vildi ekki deyja rugl­aður, bjarg­ar­laus og/eða með­vit­und­ar­laus í mor­fín­móki. Hann vildi jafn­vel ekki fara í geisla­með­ferð. Við fjöl­skyldan, börnin og ég, vorum ekki til­búin að láta hann fara strax eftir grein­ing­una. Það var okkar ósk að hann myndi fara í geisla­með­ferð. Hins vegar var ákveðið að þegar hann segði nóg, þá myndum við fylgja honum alla leið og styðja hann. Hann hafði alltaf verið mjög sjálf­stæður

Í upp­hafi ferl­is­ins höfðu þau hjónin sam­band við Dignitas, sam­tök um dán­ar­að­stoð í Sviss, en það er heima­land Sylviane. Eftir að hafa skilað inn ítar­legri umsókn sem inni­hélt meðal ann­ars ævi­á­grip og lækn­is­fræði­leg gögn tók teymi lækna og starfs­fólk Dignitas sér mánuð í að fara yfir gögnin. Svo fór að umsóknin var sam­þykkt, ákvörð­unin hafði verið tekin. Sam­þykkið gildir í sex mán­uði, eftir þann tíma þarf að skila gögn­unum upp á nýtt.

Hjónin héldu til Sviss á brúð­kaups­deg­inum sínum, þann 26. febr­úar. „Dagana 27. og 28. febr­úar hittum við lækni á hót­el­inu frá teymi Dignitas sem hafði það hlut­verk að ganga úr skugga um að það væri ein­beittur vilji manns­ins míns að deyja og að hann væri með rænu. Þann 1. mars fórum við öll saman í hús Dignitas sem var í nágrenni hót­els­ins. Þar tóku á móti okkur hjón sem voru til staðar til að aðstoða mann­inn minn við að deyja og styðja okkur. Þegar ég segi aðstoða, þá meina ég að láta ein­stak­ling­inn fá vökvann sem hann á að drekka sjálfur og passa upp á að aðstand­endur séu ekki að hjálpa.“

Dauðinn fallegur

Sylviane segir að burt­séð frá sorg­inni sem fylgir því að missa ást­vin, sé hún samt sem áður þakk­lát fyrir að Steinar hafi valið þessa leið. „Það var fal­legt að vera með honum að skrifa bréf til vina og ætt­ingja til að þakka þeim fyrir sam­ver­una. Það var fyndið að vera með honum að und­ir­búa erfða­drykkju sem hann vildi hafa og skrifa á boðskortin. Það var þrosk­andi og ég dáist að honum fyrir þann styrk og það hug­rekki sem hann sýndi í ferð­inni til Sviss. Börnin okkar eru svo stolt af honum, hann var frá­bært for­dæmi fyrir þau. Síðustu klukku­stund­irnar með honum eru ógleym­an­legar. Dauðinn hans var svo fal­legur. Hann var stoltur að hafa stjórnað ferð­inni, hann var stoltur af okkur. Við höfðum tíma til að segja allt sem okkur lang­aði til að segja. Við elskuðum hann og það var kom­inn tími til að sýna það.“

Hún seg­ist aldrei hafa séð eftir ákvörð­un­inni, enda hafi hún verið alfarið í höndum eig­in­manns síns. „Spurn­ingin er ekki hvort við gerðum rétt, þetta hefur ekk­ert að gera með okkur sem erum eftir. Þetta snýst um rétt­indi þess ein­stak­lings sem er að deyja. Hann var að gera rétt. Það var hans líf og hans dauði. Hann var að deyja, hann valdi hvernig og hvenær. Hlutverk okkar aðstand­enda var að elska hann nógu mikið til að sleppa honum og styðja hann.“ segir Sylviane að lokum.

Við elskuðum hann og það var kom­inn tími til að sýna það.

Siðmennt fram­kvæmdi könnun á lífs­skoð­unum Íslend­inga í nóv­em­ber 2015 og spurði m.a. hvort þátt­tak­endur væru hlynntir eða and­vígir því að ein­stak­lingur gæti fengið aðstoð við að binda enda á líf sitt ef hann væri hald­inn ólækn­andi sjúk­dómi. Nið­ur­staðan var mjög afger­andi en 74,9% voru mjög eða frekar hlynntir því á meðan 7,1% voru því frekar eða mjög and­vígir, 18% svör­uðu hvorki né. Hér er um að ræða afar merki­lega nið­ur­stöðu en í könn­unum erlendis hefur stuðn­ingur við dán­ar­að­stoð hvergi mælst jafn­mik­ill svo vitað sé.

Ítar­legri umfjöllun um Lífs­virð­ingu má finna í 16.tbl Vikunnar.
Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu