Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Missti 20 kíló með smávægilegum breytingum

Anna Þor­steins­dóttir er 28 ára gömul sveita­stelpa frá Grund­ar­firði. Hún er að eigin sögn sjálf­stæð móðir en sonur hennar, Bergþór, er þriggja ára gam­all. Anna starfar sem íþrótta­kenn­ari í augna­blik­inu en sam­hliða því býður hún upp á ráð­gjöf og fjar­þjálfun auk þess að halda úti snapchat-aðgang­inum Engar öfgar.

Missti 20 kíló með smávægilegum breytingum

Fram undan eru spenn­andi tímar hjá Önnu og Bergþóri en í sumar munu mæðginin flytj­ast búferlum til Dan­merkur þar sem Anna sest á skóla­bekk í mat­væla- og nær­ing­ar­fræði. Anna er með B.Sc-gráðu í íþrótta­fræði með áherslu á lýð­heilsu og M.Ed í heilsu­þjálfun og kennslu. Með nám­inu í Danmörku ætlar hún sér að öðl­ast dýpri þekk­ingu á þeirri vit­neskju sem hún hefur öðl­ast und­an­farin ár. „Ég er svo til­búin í breyt­ingu. Ég er samt alveg viss um að þegar nær dregur fer stressið að koma hægt og rólega, en held að það verði gott stress. Við mæðginin erum að fara út í þetta ævin­týri saman og son­ur­inn er alveg gríð­ar­lega spenntur líka. Hann vissu­lega gerir sér ekki alveg grein fyrir þessu enn en hann er alveg jafn­fé­lags­lyndur og mamman þannig hann verður að öllum lík­indum fljótur að aðlag­ast og eign­ast nýja vini.“ segir Anna.

„Engar öfgar“ ekki bara notendanafn heldur lífsspeki

Anna heldur úti mjög virkum snapchat-aðgangi þar sem hún er dug­leg að deila með fylgj­endum sínum ýmsum ráðum varð­andi heilsu­sam­legan lífstíl, undir not­enda­nafn­inu Engar öfgar. Hún seg­ist hafa ákveðið not­enda­nafnið löngu áður en hún vissi hvað hún ætl­aði að gera við það. „Ég upp­lifði, eins og svo margir aðrir, svo mikið áreiti frá sam­fé­lags­miðlum, fjöl­miðlum og ann­ars staðar varð­andi „heilsu“vörur og rang­hug­myndir um hvað er hollt og gott fyrir lík­amann. Í mörg ár hafði ég leitað leiða hvernig ég gæti aðstoðað fólk við að fá góðar upp­lýs­ingar um þetta mál­efni sem er ekki smitað af aug­lýs­ingum fæðu­bót­ar­efna­fyr­ir­tækja og öðrum mýtum eða röngum stað­hæf­ingum. En hvernig ég ætti að gera það vissi ég ekki, en hafði hugsað það í heilt ár ár að opna snappið áður en ég lét svo verða af því. Ég þurfti tíma til að hugsa um hvort ég í raun vildi opna líf mitt svona og hvort þetta væri leiðin sem ég ætl­aði að fara. Svo ákvað ég bara að slá til og þá fór bolt­inn fljótt að rúlla.“

Anna segir Engar öfgar í raun vera ekki aðeins not­anda­nafn heldur sé það einnig hennar mottó. „Það þarf ekki að fara í átak eða keyra allt á fullt í dramat­ískar og skamm­lífar lífs­stíls­breyt­ingar til þess að bæta heilsu sína. Það þarf ekki að kaupa öll flott­ustu fæðu­bót­ar­efnin til þess að ná árangri í þyngd­ar­stjórnun eða bæta lík­am­legt atgervi. Til dæmis vegna þeirrar stað­reyndar að rann­sóknir sýna að um og yfir 90% af þeim sem ná mark­tækum árangri í þyngd­armissi á stuttum tíma bæta á sig aftur og oft meira til. En samt eru allir alltaf að fara í átak og byrja að koma sér „í form“. Ég missti sjálf um 20 kg bara með því að gera smá­vægi­legar breyt­ingar hér og þar í matar­æð­inu og auka hreyf­ingu.

Það er líka alveg ótrú­legt hvað and­leg vellíðan gerir fyrir mann lík­am­lega.“

Æfir með syninum

Anna er, eins og áður kom fram, sjálf­stæð móðir en hún er hrifn­ari af því orða­lagi frekar en að kall­ast ein­stæð. Ásamt því að vera í fullu starfi sem íþrótta­kenn­ari heldur hún úti fjar­ráð­gjöf og þjálfun en þrátt fyrir það seg­ist hún ekki vera í vand­ræðum með að bæta hreyf­ingu inn í dag­lega rútínu.

„Ég er auð­vitað mjög bundin þegar vinnu er lokið og um helgar með son minn, en ég er einnig mjög dug­leg að nýta þann tíma sem gefst hér og þar. Til dæmis nota ég hádeg­is­hléin í vinn­unni eða vakna fyrr á morgn­ana og tek æfingu heima. Um helgar, ef veður leyfir, fer ég út með kerruna og son­inn, tek með mér ket­il­bjöllu og skelli í nokkrar æfingar á leik­vell­inum. Ég fer í kapp við son­inn og leyfi honum að vera með í hinum og þessum æfingum. Hné­beygja með 15 kg barn á öxl­unum er erf­ið­ara en að segja það,“ segir Anna og bætir við að heima­æf­ingar séu hennar tebolli. „Ég elska að geta gert æfingar heima og þurfa ekki að stress­ast við að fara út í Reykja­vík­ur­um­ferð­ina til og frá æfingu. Ég leyfi mér þó einu sinni í viku að fara á crossfit-æfingu og strák­ur­inn fer í barna­gæsl­una sem honum þykir ekki leið­in­legt. En fólk talar alltaf um að maður þurfi að vera mjög skipu­lagður með hreyf­ingu ef maður ætli að ná að hreyfa sig, þegar maður er einn með barn. Ég er ekki alveg sam­mála, of miklar áætl­anir gera mig bara stress­aða. Ég er hrifn­ari af því að vera ávallt til­búin með hlaupa­gall­ann í bílnum eða hafa heima­æf­inga­dótið aðgengi­legt. Þá er lík­legra að ég grípi tæki­færin þegar þau gef­ast í stað­inn fyrir að búa til skipu­lag sem mér tekst ekki að standa við.“

Lestu ítar­legra við­tal við Önnu í 19.tölu­blaði Vikunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu