Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tónlist, tíska og hjólabretti- hin heilaga þrenning

Steinar Fjeld­sted hefur í nægu að snú­ast þessa dag­ana en hann á og rekur þrjú fyr­ir­tæki. Steinar er mik­ill áhuga­maður um hjóla­bretti en fyrir ári stofn­aði hann Hjóla­bretta­skóla Reykja­víkur sem hlotið hefur frá­bærar við­tökur. Þar að auki á hann og rekur fata­verslun sem og veftíma­rit sem fjallar um íslenska tón­list. Fljótt á litið virð­ast þetta vera fyr­ir­tæki með ólíkar áherslur en Steinar segir þetta allt tengj­ast og mynda hina heilögu þrenn­ingu.

Tónlist, tíska og hjólabretti- hin heilaga þrenning

Steinar hefur verið á hjóla­bretti frá því að hann var um átta ára gam­all, eða í 34 ár, sem verður að telj­ast ansi gott. „Ég hef verið við­loð­andi sen­una frá því snemma á tíunda ára­tugnum en árið 1996 stofn­aði ég til dæmis BFR (Bretta­fé­lag Reykja­víkur) svo afar fátt sé nefnt.  Ég var beð­inn um að vera með nám­skeið hjá BFH (Bretta­fé­lagi Hafn­ar­fjarðar) árið 2015 og það gekk gríð­ar­lega vel. Það var svo fyrir um ári sem ég stofn­aði Hjóla­bretta­skól­ann og hlut­irnir hafa gerst hratt síðan þá. Nú erum við með skól­ann í inn­an­húss­að­stöð­unni hjá Jaðar íþrótta­fé­lag­inu sem er stað­sett í Duggu­vogi 8 í Reykja­vík. Nýlega lönd­uðum við styrk hjá prótín­drykknum Hámark og Kókó­mjólk svo það eru afar spenn­andi tímar fram undan.“

Steinar er afar ánægður með þær við­tökur sem skól­inn hefur fengið og segir þær hafa farið fram úr hans björt­ustu vonum. „Það er greini­legt að þjóðin hefur gaman af hjóla­brettum en mik­ill fjöldi fólks sækir hvert nám­skeið. Á þessum þremur árum sem ég hef starf­rækt nám­skeið hef ég búið til það sem ég vill kalla hið full­komna pró­gramm. Á nám­skeið­inu er aldrei dauður tími og hver þátt­tak­andi fær heil­mikið út úr því. Sumir koma aftur og aftur og það er virki­lega gaman að sjá fram­farir. Hjóla­bretti er svo miklu meira en bara spýta á hjólum en þessi íþrótt ýtir mjög mikið undir sjálf­stæði, kennir við­kom­andi að treysta á sjálfan sig og eigin getu. Svo er þetta alveg eins og í líf­inu, maður dettur milljón sinnum bara á því að reyna eitt trikk, en ef maður stendur ekki upp aftur og reynir þá nær maður því aldrei. Einu sinni kom faðir með strák­inn sinn á nám­skeið en strák­ur­inn var með staur­fót og búinn að prófa allar íþróttir sem til eru en ekk­ert gekk upp. Hjóla­bretti var síð­asta úrræðið. Eftir um þrjú nám­skeið var dreng­ur­inn far­inn að renna sér eins og vind­ur­inn með mjög gott jafn­vægi sem ekki hafði sést áður. Faðirinn og dreng­ur­inn voru í skýj­unum sem og ég.“

Elsti þátttakandinn 74 ára

Nýlega hófust full­orð­ins­nám­skeið í Hjóla­bretta­skól­anum sem hafa ekki síður hlotið góðar við­tökur. Steinar full­yrðir að það sé aldrei of seint að byrja og að hjá þeim séu engin ald­urs­tak­mörk. „Hjóla­bretti er fyrir alla og alla ald­urs­hópa. Það er ekk­ert betra en að renna sér og hafa gaman. Hjóla­bretti ýtir undir lífs­ham­ingju og það má segja að maður verði nett háður þessu, það er eins og þegar lapp­irnar snerta grip­inn gleym­ist öll heims­ins vanda­mál og hrein skemmtun taki völdin. Það er ótrú­legt hvað eldri kyn­slóðin hefur gaman af þessu en það er alls­konar fólk á öllum aldri sem sækir nám­skeiðin. Sumir koma aftur og aftur líkt og á krakk­a­nám­skeið­unum. Hjóla­bretti er nefni­lega virki­lega góð hreyf­ing þar sem not­ast er við alla vöðva lík­am­ans, jafn­vel vöðva sem maður vissi ekki að væru til. Svo þetta er ekki aðeins hrika­lega skemmti­legt heldur líka krefj­andi. Elsti þátt­tak­andi sem hefur komið til okkar var 74 ára maður sem kom á nám­skeið hjá okkur um dag­inn. Hann hafði lengi dreymt um að prófa, var virki­lega flottur og sann­aði það að aldur er eng­inn fyr­ir­staða.“

Steinar hefur búið víða um heim, þar af nán­ast hálfa ævina í Banda­ríkj­unum. Aðstöð­una til hjóla­bretta­iðk­unar á Íslandi segir hann ekk­ert í lík­ingu við það sem finna megi í nágranna­löndum okkar og í Banda­ríkj­unum en þrátt fyrir það séu íslenskir skeit­arar á heims­mæli­kvarða. „Hjóla­bretta­senan á Íslandi er virki­lega góð og við eigum mjög efni­lega iðk­endur. Sumir hafa verið að fara erlendis að keppa og náð mjög góðum árangri. Það er ekki hægt renna sér í rign­ingu eða slæmu veðri, þess vegna segir það sig sjálft að inn­an­húss­að­staða er nauð­syn­leg fyrir okkur sem búum á Íslandi. Ég vona inni­lega að Reykja­vík­ur­borg fari að taka til dæmis Malmö og Danmörku til fyr­ir­myndar og leggja alvöru­fjár­hæðir í góða aðstöðu. Hjóla­bretti hafa oft verið litin horn­auga hér á landi en það við­horf virð­ist vera að breyt­ast. Árið 2020 verður í fyrsta sinn keppt í hjóla­brettum á Ólymp­íu­leik­unum og við höfum alla burði til að senda full­trúa frá Íslandi.“

Tónlist ávallt skipað stóran sess

Margir muna eftir Steinari úr rapp­hljóm­sveit­inni Quarashi, en hann var einn af stofn­endum sveit­ar­innar og með­limur hennar til starfs­loka. Tónlist er honum afar hug­leikin og hefur ávallt skipað stóran sess í lífi hans. Það var svo eitt kvöldið sem hann sat og ræddi við kon­una sína um íslenska tón­list og þá litlu umfjöllum sem hún fengi, miðað við þá grósku sem væri að eiga sér stað. Það var þá sem hug­myndin að Albumm.is kvikn­aði. „Okkur datt í hug að búa til tón­list­ar­blað í anda Und­ir­tóna (90´s íslenskt tón­list­ar­blað) sem þró­að­ist svo yfir í  online music magazine,“ útskýrir hann. „Albumm.is fór í loftið 23. októ­ber 2014 og síðan þá höfum við kapp­kostað við að fjalla um íslenska tón­list og gras­rót­ar­menn­ingu á Íslandi. Albumm er stærsti einka­rekni mið­ill lands­ins sem telst hel­víti gott og við erum afar stolt af honum. Fyrir um tveimur árum hófum við sam­starf við Visir.is sem hefur gengið gríð­ar­lega vel. Hug­myndin er í raun­inni að vekja athygli á Íslenskri tón­list og skiptir engu hvort um ræðir nýgræð­inga, underground eða stór­stjörnur, en af nægu er að taka. Við leggjum mik­inn metnað í þessa vinnu og viljum vera með puttan á púls­inum, margar fréttir rata inn á vef­inn á hverjum degi.“

Aðspurður hvort þessi áhuga­mál, tón­list og hjóla­bretti fari vel saman segir Steinar það svo sann­ar­lega vera. „Margt tón­list­ar­fólk er einnig á hjóla­bretti og öfugt,  má þar til dæmis nefna nefna Krumma Björg­vins, Sindra, oft kenndur við Sin Fang og Teit Magn­ús­son. Sjálfur kynnt­ist ég mikið af tón­list í gegnum hjóla­bretta­myndir en segja má að tón­list, tíska og hjóla­bretti sé hin heilaga þrenn­ing.“

Þrátt fyrir að hafa mörg járn í eld­inum tók Steinar að sér enn eitt verk­efnið fyrir stuttu, þegar hann opn­aði hjóla­bretta­búð­ina Skuggi Reykja­vík. Versl­unin selur hátísku­fatnað fyrir hjóla­brettaunn­endur og fleiri, og því má segja að hin heilaga þrenn­ing sé full­komnuð. „Það er óhætt að segja að það sé margt spenn­andi fram undan hjá mér. Við hjá Albumm.is erum að und­ur­búa netta sprengju í haust sem verður gaman að geta sagt frá, ekki alveg strax þó. Svo erum við að vinna að því að stækka Hjóla­bretta­skól­ann og alla starf­sem­ina á bak við hann. Komandi vetur verður fullur af ýmis­konar nám­skeiðum og miklu stuði,“ segir Steinar Fjeld­sted að lokum.

Viðtalið birt­ist fyrst í 33.tbl Vikunnar.

/Texti: Margrét Björk Jóns­dóttir
/Mynd: Hákon Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu