Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bak við góðan árangur liggja miklar fórnir

Harpa Kára­dóttir hefur um ára­bil verið meðal fær­ustu sminkum lands­ins. Með gríð­ar­mikla reynslu í fartesk­inu opn­aði hún nýverið eigin förð­un­ar­skóla en hún segir að líf ein­stæðrar móður í eigin rekstri ekki alltaf vera dans á rósum.

Bak við góðan árangur liggja miklar fórnir

Nú er Harpa góð fyr­ir­mynd fyrir konur og áminn­ing um að draumar geta ræst með mik­illi vinnu. Á hún góð ráð fyrir konur í svip­uðum hug­leið­ingum og hún?

„Ég á kannski ekki auð­velt með að ráð­leggja öðrum konum hvað þær eiga að gera því aðstæður geta verið svo ólíkar. En ég ráð­legg öllum samt að fylgja draumum sínum og finna sér starf sem að þær hafa ánægju af. Vinnan er svo stór partur af líf­inu og lífið verður svo miklu meira gef­andi og skemmti­legra ef að maður fylgir hjart­anu. Það þarf ekk­ert að vera að allt gangi upp en þannig er líka bara lífið. Maður lærir af allri lífs­reynslu og sú reynsla mótar mann og fer með mann eitt­hvert annað.“

Talið berst af förð­unar-trendum dags­ins í dag og hvaða útlit er í upp­á­haldi hjá Hörpu.

„Förðunar-trendin eru alls­konar í dag. Ef að ég á að vera hrein­skilin að þá er ég orðin mjög þreytt á ofmál­uðum stúlkum þar sem að þeirra nátt­úru­lega feg­urð nán­ast hverfur. Ég kýs að nota förð­un­ar­vörur til þess að draga fram feg­urð hvers og eins en ekki til þess að móta alla í sama formið,“ segir hún en við­ur­kennir að vera algjör snyrti­vöru­fík­ill en sækir mest í vörur sem láta henni líða vel og líta sem best út.

„Per­sónu­lega mála ég mig ekk­ert sér­stak­lega áber­andi en not­ast engu að síður við alla­vega trix við mína dag­legu förðun. Eftir því sem að ég full­orðn­ast þá mála ég mig aðeins minna en áður. Förðun gerir mjög mikið fyrir mig per­sónu­lega, sér­stak­lega þar sem fólk dæmir mig mögu­lega og mína vinnu svo­lítið eftir því hvernig ég kem til dyr­anna.“

„Förðun gerir mjög mikið fyrir mig per­sónu­lega, sér­stak­lega þar sem fólk dæmir mig mögu­lega og mína vinnu svo­lítið eftir því hvernig ég kem til dyr­anna.“

Harpa seg­ist sjá mik­inn mun á ungum konum í dag og þeim sem ólust upp á níunda ára­tug­inum.
„Vissu­lega eru alla­vega öfgar í gangi en þannig er bara lífið. Það er eins með útlitið og annað að best er að gæta hófs. Varðandi fyll­ing­ar­efni og annað slíkt þá á ég erfitt með að svara hvað sé rétt og hvað sé rangt. En ég myndi segja að fólk þurfi að vera búið að ná ákveðnum þroska til þess að taka ákvörðun um frekara inn­grip líkt og að stækka varir og annað slíkt. Mér finnst mjög furðu­legt að sjá ungar stúlkur aug­ljós­lega vera búnar að breyta and­lit­inu sínu. Ég hef svo allt aðra skoðun á því þegar að konur við­halda útliti sínu þegar þær eld­ast.“

„Mér finnst mjög furðu­legt að sjá ungar stúlkur aug­ljós­lega vera búnar að breyta and­lit­inu sínu. Ég hef svo allt aðra skoðun á því þegar að konur við­halda útliti sínu þegar þær eld­ast.“

Hún segir ungar konur í dag, upp til hópa, vera mun klár­ari í förðun en þegar hún var ung­lingur. „Förðun er orðin að mun meira áhuga­máli í dag heldur en var. Tímarnir breyt­ast hratt, til dæmis þegar að ég var tví­tug og fór í förð­un­ar­nám þá voru mjög margir sem að skildu ekk­ert hvað ég var að spá og hvað í ósköp­unum ég ætl­aði að gera úr því. Í dag vinn ég myrkr­anna á milli og hef skapað mér ótrú­lega skemmti­legan starfs­feril. Það er algjör klisja að segja þetta en ég er í drauma­starf­inu mínu og myndi ekki vilja hafa neitt öðru­vísi. Ég er stolt af sjálfri mér fyrir að hafa haft sterka trú á því að þetta gæti verið atvinnan mín í fram­tíð­inni því að meiri­hluti fólks rang­hvolfdi aug­unum og horfði á mig eins og ég væri hálf­gerður hálf­viti þegar að ég sagði frá því hvað ég væri að fara að gera.“

„Ég er stolt af sjálfri mér fyrir að hafa haft sterka trú á því að þetta gæti verið atvinnan mín í fram­tíð­inni því að meiri­hluti fólks rang­hvolfdi aug­unum og horfði á mig eins og ég væri hálf­gerður hálf­viti þegar að ég sagði frá því hvað ég væri að fara að gera.“

Útlits­dýrkun fylgir vissu­lega förð­un­ar­brans­anum en hvað segir Harpa um það mál­efni?
„Útlits­dýrkun fylgir lík­lega öllum kyn­slóðum en ég við­ur­kenni það að ég er nokkuð sátt með að hafa alist upp án allra þess­ara sam­fé­lags­miðla. Ég geri ráð fyrir að þeir setji tölu­verða pressu og gefi ungu fólki rang­hug­myndir um það hvernig lífið er.“

Bak við góðan árangur liggja margar fórnir

Harpa á fjög­urra ára dóttur en það að að vera ein­stæð móðir í eigin rekstri er ekki alltaf dans á rósum.
„Ég er oft með nag­andi sam­visku­bit yfir því að vera stundum í burtu á kvöldin og um helgar en ég reyni að minna mig á að njóta þeirra stunda sem að við eigum saman og ég veit alltaf af henni í góðum höndum ann­ars staðar þegar hún er ekki hjá mér. Ég eyði ekki miklum tíma í að spá í þetta, svona standa bara málin og við lifum kannski óvenju­legu lífi en engu að síður ham­ingju­sömu lífi. Ég er með gott fólk og fjöl­skyldu í kringum mig sem hjálpar mér með stelpuna mína.“

„Ég er oft með nag­andi sam­visku­bit yfir því að vera stundum í burtu á kvöldin og um helgar…“

Hún segir mik­il­vægt að vera dóttur sinni góð fyr­ir­mynd. „Ég vil sýna Kötlu dóttur minni að flest er hægt ef að vilj­inn er fyrir hendi og kenna henni að með því að vinna hörðum höndum að ein­hverju skili það sér á end­anum. Til þess að ná góðum árangri þarftu yfir­leitt að fórna meiru en næsti maður og maður þarf að læra að gera það með bros á vör til þess að kom­ast þangað sem að maður ætlar sér. Bak við allan góðan árangur liggja miklar fórnir, það er bara þannig,“ segir Harpa að lokum og meinar hvert ein­asta orð.

„Til þess að ná góðum árangri þarftu yfir­leitt að fórna meiru en næsti maður og maður þarf að læra að gera það með bros á vör til þess að kom­ast þangað sem að maður ætlar sér. Bak við allan góðan árangur liggja margar fórnir.“

Viðtalið birt­ist fyrst í Vikunni.

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu