Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Mamma er brjálæðislega góður sögumaður“

Drottn­ingin á Júpíter er fyrsta skáld­saga Júlíu Mar­grétar Ein­ars­dóttur en hún seg­ist alltaf hafa vitað að hún myndi leggja skriftir fyrir sig, enda skálda­blóðið sterkt í fjöl­skyld­unni.

„Mamma er brjálæðislega góður sögumaður“

Júlía er nýkomin heim eftir tveggja ára dvöl í Banda­ríkj­unum þar sem hún lærði hand­rita­skrif, fyrst í New York og síðan í Los Angeles. Skáldsagan sem hún hafði skrifað sem masters­verk­efni í rit­list við Háskóla Íslands lét hana þó ekki í friði og á end­anum gafst hún upp fyrir ásókn­inni og ákvað að gefa bók­ina út til að losna við hana úr heila­bú­inu. Sögu­hetjan Elenóra Margrét Lísu­dóttir er þó engan veg­inn byggð á reynslu höf­und­ar­ins, að sögn Júlíu, þótt vissu­lega eigi þær ýmis­legt sam­eig­in­legt, til dæmis það að stunda næt­ur­lífið með bæki­stöðvar á Bravó við Laugaveg og Júlía hefur látið hafa eftir sér í við­tölum að sirkus­inn, sem leikur stórt hlut­verk í sög­unni, sé að vissu leyti tákn fyrir næt­ur­lífið í Reykja­vík.

Ýtar­legra við­tal við Júlíu Margréti má lesa í köku­blaði Vikunnar.

„Það er reyndar dálítið mikil ein­földun,“ segir Júlía. „En það er einn vink­ill­inn á sög­una. Ég var óskap­lega lengi með þessa bók í vinnslu og alltaf að auka flækju­stigið. Upp­runa­lega hug­myndin var að vinna með sirkus, því mér finnst það svo heill­andi heimur, en eftir því sem ég vann sög­una meira víkk­aði sjón­ar­hornið og áhersl­urnar breytt­ust.“

Júlía segir upp­lif­anir af næt­ur­líf­inu hafa verið henni hug­leiknar lengi og vakið hana til umhugs­unar um það hvað sé í raun­inni veru­leiki.

„Þegar maður situr á skemmti­stað eftir klukkan þrjú á nótt­unni fer ein­hver sturlun í gang og maður verður algjör­lega samdauna henni,“ segir hún. „Allir verða ógeðs­lega klikk­aðir og það gilda ein­hver allt önnur lög­mál heldur en ann­ars staðar á öðrum tíma. Nóttin og myrkrið hafa líka ótrú­lega mikil áhrif á alla skynjun og upp­lifun manns af heim­inum. Daginn eftir ertu svo liggj­andi inni í her­berg­inu þínu á þriðju­degi og það er ein­hver að steikja fiski­bollur í eld­hús­inu og þú hugsar bara um að borga reikn­ing­ana þína. Þú ert ennþá í sama heimi en samt eru þessar tvær upp­lif­anir algjör­lega hvor úr sinni átt­inni. Það finnst mér ótrú­lega áhuga­vert aspekt af til­ver­unni og það er það sem ég er að reyna að koma til skila í sög­unni.“

Júlía er dóttir Einars Kára­sonar rit­höf­undar, sem einnig er með skáld­sögu á jóla­mark­aðnum, og ekki nóg með það heldur er Kamilla systir hennar líka að senda frá sér skáld­sögu þessa dag­ana. Lá það alltaf fyrir að þær systur myndu feta í fót­spor föður síns og verða rit­höf­undar?

„Neeeei,“ segir Júlía hugsi. „En það kom mér ekk­ert á óvart að Kamilla væri að skrifa bók og það kæmi mér heldur ekk­ert á óvart ef mamma eða hinar systur mínar færu að skrifa líka. Mamma er til dæmis brjál­æð­is­lega góður sögu­maður og gæti svo sann­ar­lega skrifað góða bók.“

Rit­list­ar­námið ýtti Júlíu end­an­lega út á rit­höf­unda­braut­ina og hún er komin heim til að skrifa og hér ætlar hún að vera eitt­hvað áfram, nema eitt­hvað óvænt ger­ist.

„Í augna­blik­inu leyfi ég mér ekki að taka neinar drastískar ákvarð­anir,“ segir hún. „En í bili er það planið að vera hér heima alla­vega í vetur. Bókin gekk miklu betur en ég hafði leyft mér að vona og svaka­lega mikil vinna í kringum kynn­ingar og upp­lestra úr henni fram að jólum. Eftir ára­mótin get ég svo bara leyft mér að fara í fæð­ing­ar­þung­lyndið sem alltaf fylgir fæð­ingu bókar og ég hlakka mikið til þess. Eftir það er óskap­lega margt sem mig langar til að gera hérna heima. Ég finn alla­vega að hér á ég eitt­hvað ógert. Ég er ekki búin með Íslands­kafl­ann enn þá, en um leið og ég finn að honum er lokið fer ég eitt­hvað annað. Ég er byrjuð á næstu skáld­sögu, mjög spennt fyrir að kynn­ast nýjum karakt­erum og nýjum heimum og leyfa þeim að leiða mig þangað sem þeir vilja. Svo kemur fram­haldið bara í ljós í fyll­ingu tím­ans.“

Ýtar­legra við­tal við Júlíu Margréti má lesa í köku­blaði Vikunnar.

Myndir / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu