Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Verkefni sem þetta tekur yfir líf allra sem að því koma

Hera Hilm­ars­dóttir er ein þeirra íslensku stjarna sem náð hafa hvað lengst á sviði leik­listar en hún fer með aðal­hlut­verk í kvik­mynd­inni Mortal Engines. Myndin var frum­sýnd í lok nóv­em­ber í Bret­landi en kemur í íslensk kvik­mynda­hús þann 14. des­em­ber næst­kom­andi.

Verkefni sem þetta tekur yfir líf allra sem að því koma

Til að und­ir­búa sig sem best fyrir hlut­verkið sökkti Hera sér í mikla rann­sókn­ar­vinnu. „Ég las allt sem ég gat fundið sem tengd­ist sög­unni en fyrst og fremst hand­ritið sjálft að mynd­inni og fyrstu bók­ina. Eftir það varð ég að finna út hvernig ég gæti stigið inn í lík­ama og höfuð Hester sem þýddi að ég varð að leita í ákveðin frum­efni í sjálfri mér sem eru kannski aðeins meira félags­fælin en önnur.“

Auk þess er Hester með ansi góða sjálfs­bjarg­ar­hæfni, hún getur klifrað í klettum, hlaupið um, notað hnífa og hrein­lega kom­ist af í ómögu­legum aðstæðum.

„Það skiptir miklu máli að skilja það. Ég sótti mikið í nátt­úr­una á Nýja-Sjálandi þar sem ég gat verið ein og ímyndað mér hvernig það er að vera ein­angruð öllum stundum. Sér­stak­lega í villtri óvæg­inni nátt­úru og hvernig maður lifir það af, bæði and­lega og lík­am­lega.“

Áskorun að vera á þeim stað sem Hester er alla daga

Hera segir vinn­una hafa gengið vel og þegar hún líti til baka komi upp góðar til­finn­ingar frá ferl­inu í heild sinni, hún við­ur­kennir þó að verk­efnið hafi reynt veru­lega á. „Þetta var mikil áskorun, bæði að vera á þeim stað sem Hester er alla daga, and­lega og lík­am­lega, en auk þess voru töku­dagar langir og margir. Á sama tíma var þetta virki­lega skemmti­lega krefj­andi ferli, fólkið sem ég vann með var allt saman frá­bært og ynd­is­legt að dvelja á Nýja-Sjálandi.“

Upp­lifunin var því virk­lega góð. Peter og Fran, Philippa og Christian, pössuðu upp á að ég hefði það sem best og buðu mig strax vel­komna inn í þeirra líf, mér þótti mjög vænt um það.

„Verkefni sem þetta tekur gjör­sam­lega yfir líf allra sem eru hluti af því. Auðvitað er ekk­ert hlut­verk eins en Hester er virki­lega sér­stakur karakter. Það að vinna í verk­efni á þessum skala, sér­stak­lega ver­andi í aðal­hlut­verki er eitt­hvað sem ég hafði ekki upp­lifað áður en lærði fullt á því.“

Á endanum er þetta bara bíó

Myndin var frum­sýnd örfáum dögum áður en við­talið fór í prent og því var ekki úr vegi að spyrja Heru hvernig til­finn­ingin hafi verið á frum­sýn­ing­ar­degi? „Til­finn­ingin er bara góð myndi ég segja. Það er virki­lega gaman að verk­efni sem maður leikur í fái þá athygli sem þessi mynd fær. Auðvitað er það alltaf tak­markið enda gerir maður þetta fyrir fólk til að sjá.“

Að ein­hverju leyti má segja að þetta sé draumur sem sé að ræt­ast, að vinna með fólki af þess­ari stærð­argráðu og sjá eitt­hvað sem maður gerir ná svona langt, auð­vitað er það algjör draumur. Ég held ég haldi mér á jörð­inni með því að minna mig á að á end­anum er þetta bara bíó.

„Þetta er ekki ein­hver stund sem ákvarðar hver þú ert eða hvað í þér býr. Ég reyni alltaf að gera mitt allra besta í tök­unum en eftir það er það úr mínum höndum. Þá er bara að læra að njóta þess góða sem kemur í kjöl­farið og leiða hitt hjá sér, hvort sem það er meiri athygli eða eitt­hvað annað. Maður að reyna sitt besta, dag frá degi, verk­efni eftir verk­efni og svo sér maður bara hvað ger­ist í fram­hald­inu. Og heldur von­andi áfram að njóta stund­ar­innar.“

Viðtalið í heild má lesa í 48.tbl Vikunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu