Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Álfar eru ekki síður spennandi en draugar“

Í bók­inni Kross­götur fjalla Bryndís Björg­vins­dóttir, þjóð­fræð­ingur og rit­höf­undur, og Svala Ragn­ars­dóttir heim­ilda­ljós­mynd­ari um álfa­trú, álfa­byggðir og aðra bann­helga staði á Íslandi, en við slíkum stöðum megum við mann­fólkið ekki hrófla sam­kvæmt þjóð­trúnni. Bókin er einnig ljós­mynda­verk þar sem Svala mynd­aði alla þá 54 staði sem fjallað er um í verk­inu.

„Álfar eru ekki síður spennandi en draugar“
Bryndís Björg­vins­dóttir. Mynd / Leifur Wilberg Orrason

„Ég hafði lengi vel mik­inn áhuga á draugum en fannst álfar ekki eins spenn­andi,“ byrjar Bryndís þegar hún er spurð um til­urð bók­ar­innar. „Ég hef auð­vitað menntun í þjóð­fræði og þar stúd­erum við meðal ann­ars þjóð­sög­urnar. Það var ekki fyrr en við Svala ákváðum að kort­leggja álfa­byggðir í Hafn­ar­firði út frá þjóð­sögum sem þessi gríð­ar­legi áhugi á álfum kvikn­aði. Það var fyrir fjórum árum síðan. Ég hef kom­ist svo sann­ar­lega að því að álfar eru ekki síður spenn­andi en draugar. Í gegnum álfatrúna birt­ast ýmsir áhuga­verðir siðir, og ýmis­legt sem getur sagt okkur margt um sam­band manns og nátt­úru, bók­menntir, brand­ara, hryll­ing og sögu lands og þjóðar, svo eitt­hvað sé nefnt.“
Hún segir að nið­ur­stöð­urnar vegna bók­ar­innar hafi verið nokkrar. „Þær snerta meðal ann­ars á sam­band kristni og álfa, sam­bandi drauga, dverga og álfa, og sam­bandi okkar mann­fólks­ins við nátt­úr­una þar sem við álítum álf­ana vera okkar næstu nágranna, um leið og þeir til­heyra öðrum heimi. Naktir klettar og hraun eru ekki dauð svæði og með því að líta til álfa­hefð­ar­innar sem er mjög forn, má sjá að hægt er að líta á þessa mjög svo íslensku nátt­úru sem lif­andi nátt­úru – hún er lif­andi að innan sem utan.

Við sum­ar­hús rétt við Geysi í Haukadal stendur álf­steinn­inn Skyggn­is­steinn upp úr við­ar­palli. Þegar húsið var byggt 1993 þurftu hús­byggj­endur að lúta því skil­yrði að hrófla ekki við stein­inum á lóð­inni. Mynd / Svala Ragn­ars­dóttir.

Náttúran lif­andi
Sjálf trúir Bryndís því að nátt­úran hafi gildi í sjálfri sér óháð okkur mann­inum og hún eigi að njóta þess að búa í góðu nágranna­sam­bandi við okkur mann­fólkið þar sem tekið sé til­lit til hennar óháð okkar þörfum. „Álfatrúin end­ur­speglar slík við­horf: að nátt­úran sé lif­andi og að það sé ekki okkar að umbreyta henni í sífellu eftir því sem okkur hentar best hverju sinni. Álfatrúin biður okkur um að staldra við og hugsa til fram­tíðar og hvaða afleið­ingar gjörðir okkar gagn­vart stokkum og steinum kunna að hafa í stóra sam­heng­inu. Á þann hátt trúi ég á álfa – sem nátt­úru­vætti eða nátt­úran sjálf hold­gerð. Á mynd­unum í bók­inni okkar Svölu má „sjá“ álfa óbeint, það er að segja þau sýni­legu raun­veru­legu áhrif sem þessi forna hjá­trú hefur á umhverfi okkar – vega­lagn­ingu, fram­kvæmdir, bygg­ingar, sól­palla og slíkt.
Hver er þinn upp­á­halds­álfa­staður? Nú er stórt spurt. Lík­leg­ast Hamarinn í Hafn­ar­firði, sem lýst hefur verið sem fag­urri álfa­höll. Þar á að vera hátt til lofts og vítt til veggja. Fólk sem býr við Hamarinn hefur lýst góðum kynnum af álfum og þá sér­stak­lega sjálfri álfa­drottn­ing­unni sem þar á að búa. Hún á það meðal ann­ars til að fá lán­aða hluti.“

Svala Ragn­ars­dóttir. Mynd / Richard King

Ýmislegt gert til að raska ekki ró álf­anna
Bryndís stund­aði alla rann­sókn­ar­vinnu með Svölu, þær ferð­uð­ust saman um landið og tóku við­töl. „Ég sá um texta­vinn­una en Svala tók myndir. Það var ótrú­lega gott upp­brot að fá að ferð­ast um landið með yfir­nátt­úr­unni og Svölu og kynn­ast land­inu upp á nýtt út frá þessu sjón­ar­horni bann­helgrar nátt­úru, sögu og fornrar þjóð­trúar. Spjalla við alls­konar fólk og heyra sögur þess.
Við komumst fljót­lega að því að ekki var nóg að skoða bara álfa­steina. Í bók­inni er einnig fjallað um dverga­steina, álaga­bletti og álaga­steina, völvu­leiði og forn­manna­hauga. Í íslenskri þjóð­trú eru ótrú­lega mörg fyr­ir­bærin sem gæða landið yfir­nátt­úru­legu lífi. Skemmti­leg­ast var að sjá hvernig mann­fólkið hefur til dæmis lagt girð­ingar sínar í kringum forn­manna­hauga til að raska ekki ró hinna látnu, eða girð­ingar í kringum álfa­steina til að halda okkur sjálfum frá álfum. Álfatrúin setur okkur mann­fólkið líka í skemmti­legt og oft svo­lítið fal­legt sam­hengi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu