Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Best að finna jafnvægið í öllu

Hafrún Lilja Elí­as­dóttir er sann­kall­aður bakst­urs­snill­ingur sem hefur þann hæfi­leika að baka ekki aðeins góm­sætar kökur, heldur líka dásam­lega fal­legar kökur. Fjöl­skyldu­með­limir og vinir Hafrúnar njóta oft góðs af hæfi­leikum hennar en þegar kemur að hinum ýmsu til­efnum er hún ávallt boðin og búin að leggja sitt á vog­ar­skál­arnar.

Best að finna jafnvægið í öllu
|Gísli prýddi for­síðu Vikunnar í jan­úar árið 2009.|Gísli Þór lýsti erf­iðum upp­vaxt­ar­árum í við­tali við Vikuna árið 2009.

Hafrún Lilja er að eigin sögn ekki ein af þeim sem kemst í jóla­skap um leið og IKEA-geitin rís upp.

„Ég dett yfir­leitt ekki í jólagír­inn fyrr en í kringum 20. des­em­ber. Aðdrag­and­inn finnst mér ekk­ert sér­stakur, öll jóla­lögin, skrautið og stressið er ekki beint minn tebolli. En ég er mikið fyrir hefð­irnar og sam­ver­una með fólk­inu mínu í kringum hátíð­irnar, en við fjöl­skyldan höldum í nokkrar hefðir sem mér þykja ómissandi. Fyrst og fremst ber að nefna upp­setn­ingu jóla­þorps­ins hjá for­eldrum mínum, það er alveg heilög stund. For­eldrar mínir eru svo alltaf með hádeg­is­boð á aðfanga­dag fyrir okkur syst­urnar, maka og börn. Það er ein af mínum upp­á­halds­hefðum og hringir pínu­lítið inn jólin.“

Ég er sem sagt mikil sósu­kona.

Þegar kemur að ómissandi hefðum tengdum mat nefnir Hafrún fyrst ristað brauð með graf­lax og heima­til­búna sósu með. „Svo býr pabbi til heims­ins bestu sósu með jólamatnum sem ég kýs að kalla „pabbasósu“ en ég fæ mér yfir­leitt smá­vegis kjöt með sós­unni. Ég er sem sagt mikil sósu­kona. Svo má ekki gleyma því að njóta líka yfir hátíð­irnar og safna orku. Ég geri það bæði með því að liggja í uppi í sófa, undir teppi  með söru­skál­ina og með því að fara aðeins út í ferska loftið og kyrrð­ina og hreyfa mig. Mér finnst best að finna jafn­vægið í öllu.“

Hafrún hefur mik­inn áhuga á mat­ar­gerð og bakstri og er dug­leg að prófa sig áfram með nýjar upp­skriftir. „Ég þarf oft að vera svo­lítið flókin þegar kemur að elda­mennsku, vil oft vera með margar teg­undir af með­læti og svona, en Hjalti, kær­asti minn, kýs að hafa hlut­ina örlítið ein­fald­ari sem er bara frá­bært. Þar komum við aftur að jafn­væg­inu góða,“ segir hún. „Fyrir jólin baka ég yfir­leitt sörur, mömmu­kossa og ser­ena­kökur. Svo bý ég líka til sultu og jólaís. En enda­legur listi fer í raun allt eftir því hvað ég gef mér tíma í og hvað mig langar að gera hverju sinni.“

Sultan sem er góð með öllu

„Fyrst ætla ég að gefa upp­skrift að sultu sem hefur verið lengi í upp­á­haldi hjá mér með jólamatnum. Æsku­vin­kona móður minnar, sem kvaddi þessa ver­öld allt of snemma, gerði alltaf þessa sultu fyrir jólin. Hún keyrði hana alltaf út á aðfanga­dag til okkar og ann­arra. Þó að upp­skriftin sé ein­föld er það minn­ingin um þessa ynd­is­legu mann­eskju sem ég kýs að halda á lofti á þennan hátt og gefur mér og fjöl­skyldu minni mikið. Ég hef und­an­farin tvenn jól gert þessa sultu og laumað með til ætt­ingja og vina og hyggst gera það áfram.

En það er svo frá­bært að hún er góð með öllu. Ég borða hana alltaf með ham­borg­ar­hryggnum á jól­unum. En sultan er líka frá­bær með ostum, í jóla­graut­inn, ofan á brauð eða hvað sem er. Ég hvet ykkur til að prófa.“

Jarðaberjasulta með kanil

500 g jarð­ar­ber
250 g sykur
1-2 kanil­stangir (ég set yfir­leitt 2-3 stangir því ég vil meira kanil­bragð)
½ poki sultu­hleypir
20-30 ml vatn

Allt er sett saman í pott og látið malla á með­al­háum hita í svona 30-40 mín. Ég kýs að hafa jarð­ar­berin vel maukuð og því læt ég sult­una malla jafn­vel lengur og stappa þau niður með sleif­inni á meðan ég hræri. En ef jarð­ar­berin eiga að halda lögun sinni skal láta sult­una malla á lægri hita.

47. tbl. 2018, Hafrún Lilja, kaka, köku­blaðið, kökur, Margrét Björk, VI1810191960, vikan

Riz à l‘amande

125 g graut­ar­grjón
50 g sykur
1 vanillu­stöng
1,2 l nýmjólk
500 ml þeyttur rjómi
200 g möndlur, saxaðar gróft

Setjið hrís­grjón, sykur og nýmjólk í pott. Skerið vanillu­stöng­ina í tvennt og skafið inni­haldið ofan í pott­inn. Látið stöng­ina fylgja með. Sjóðið rólega saman í 40 mín. Hrærið reglu­lega og gætið þess að graut­ur­inn brenni ekki við. Slökkvið undir og setjið lok yfir. Látið standa og kólna. Kælið graut­inn yfir nótt.

Þeytið rjómann og hakkið möndl­urnar. Blandið var­lega saman við graut­inn. Gott er að gera það í þremur skömmtum. Geymið heila möndlu fyrir möndlu­gjöf. Berið fram með kirsu­berjasósu (kara­mellusósu og/eða jarð­ar­berja-kanilsult­unni).

Skotheldur jólaís

Gott er að gera ísinn nokkrum dögum fyrir jólin.

„Hér er upp­skrift að jóla­ísnum sem ég hef alltaf gert und­an­farin ár. Upp­skriftin er mjög ein­föld og tekur enga stund að skella í. Gott er að gera hana nokkrum dögum fyrir jólin og hafa eft­ir­rétt­inn til­bú­inn. Hægt er að leika sér með blönd­una með því að setja mis­mun­andi bragð­dropa og kurl í hana. Á mynd­inni má sjá ísinn í litlum tupperware-ísformum sem eru húðuð með hjúpsúkkulaði og skreytt með ferskum berjum.

En það sem mér þykir svo gott við ísinn er að það er hægt að leika sér með allskyns útfærslur. Setja í mis­mun­andi form og skreyta eftir til­efnum. Hlut­föllin af blönd­unni henta vel í eitt stórt íshring­form og svo þrjú lítil form eins og sést á mynd­inni. En þessi stærð er að mínu mati full­kom­inn skammtur í eft­ir­rétt á aðfanga­dags­kvöld og svo á ég hring­inn alltaf til við annað til­efni yfir hátíð­irnar.“

5 eggja­r­auður
5 msk. sykur
1 vanillu­stöng
½ l þeyttur rjómi
½ tsk. vanillu­dropar
½ poki af Nóa-kara­melluk­urli

Setjið eggja­r­auð­urnar í hræri­vél­ar­skál og þeytið í 1 mín­útu. Hellið sykrinum smátt og smátt saman við eggin og hrærið þar til syk­ur­inn og rauð­urnar verða léttar og ljósar eða í u.þ.b 5 mín­útur. Skerið vanillu­stöng­ina til helm­inga eftir endi­löngu og skafið kornin innan úr henni með hníf.

Setjið vanillu­kornin út í eggja­r­auð­urnar og látið vél­ina ganga í 10 sek. Blandið 1/3 af þeytta rjóm­anum saman við eggja­blönd­una með píski. Blandið afgang­inum af rjóm­anum smátt og smátt saman við blönd­una með stórri skeið eða sleif. Smakkið til með vanillu­dropum og setjið kur­lið var­lega í blönd­una og hrærið til. Setjið ísblönd­una í ísform og frystið.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu