Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mest í því að vera þreyttar og svangar saman

Vin­kon­urnar Þórunn Ívars­dóttir og Alexsandra Bernharð Guð­munds­dóttir eiga ýmis­legt sam­eig­in­legt. Þær eru báðar flug­freyjur, háskóla­nemar og sam­fé­lags­miðla­stjörnur, svo fátt eitt sé nefnt. Örlögin réðu því að þær eru nú báðar óléttar af sínu fyrsta barni, en þær segja ótrú­lega skemmti­legt að vera sam­ferða í þessu ferli.

Mest í því að vera þreyttar og svangar saman

Þórunn hefur verið með mann­inum sínum Harry Sampsted í rúm fimm ár. Hún hefur talað opin­skátt um bar­áttu sína við endró­metríósu (legs­límuflakk) en sjúk­dóm­ur­inn hefur valdið því að hún átti erfitt með að verða barns­haf­andi.„Ég var mjög glöð að þurfa ekki að sækja frek­ari aðstoð en þetta tókst á end­anum á nátt­úru­legan hátt.“ segir Þórunn. „Ég hef farið í tvær aðgerðir síðan ég greind­ist árið 2015. Í haust ákváðum við að leita okkur lækn­is­hjálpar, en lækn­ir­inn sá von­ar­glætu að þetta gæti komið nátt­úru­lega og gaf okkur smá tímara­mma. Hún kom svo undir þegar við vorum á síð­asta séns.“ Þórunn er komin 23 vikur á leið og er sett þann 2.sept­em­ber.

Alexsandra og mað­ur­inn hennar, Níels Adolf Svansson eiga von á frum­burði sínum þann 20.októ­ber, sem þýðir að Alexsandra er komin rúmar 16 vikur á leið. Þau voru byrjuð að huga að barn­eignum og má segja að „baunin“ hafi komið eins og kölluð. „Við erum búin að vera saman í 9 ár, og vorum farin að tala um að byrja reyna árið 2018. Ég fékk svo jákvætt próf fyrr en áætlað var og við erum mjög ham­ingju­söm með það.“ Segir Alexsandra.

Alexsandra Bernhard

Samrýndar

Þær vin­konur eru mjög sam­rýndar og það sann­ast einna best á því hvernig þær komust að ólétt­unni hjá hvor annarri. Þórunn segir þær hafa haft sínar grun­semdir þegar hún sjálf var ólétt en þegar kom að Alexsöndru hafi þær verið alveg grun­lausar. „Alexsandra vissi í raun að ég væri ólétt á undan mér, en ég var búin að taka grát­köst útaf mjög smá­vægi­legum hlutum nokkrum dögum áður. Sem dæmi má nefna að ég fór að gráta í afgreiðslu BL þegar ég fékk bíl­inn minn ekki til baka úr við­gerð á réttum tíma en þá var minni konu farið að gruna ansi margt. Þar sem að hún vissi að við værum að reyna, en svo var þetta allt öðru­vísi þegar við komumst að því að Alexsandra væri ólétt. Hún nefndi við mig að hún væri 5 dögum of sein að byrja á blæð­ingum. Þá píndi ég hana til að taka próf. Við fórum í þrjú apó­tek þangað til að við fundum eitt opið. Síðan komu nið­ur­stöð­urnar okkur svo­lítið á óvart en þetta var hreint út sagt ynd­is­legt. Það var samt mjög erfitt að halda þessum upp­lýs­ingum út af fyrir sig í átta vikur.“

Ég fór að gráta í afgreiðslu BL þegar ég fékk bíl­inn minn ekki til baka úr við­gerð á réttum tíma en þá var minni konu farið að gruna ansi margt.

Báðar að berjast við ógleði

Þær stöllur hafa ekki farið var­hluta af ógleði og öðrum fylgi­kvillum sem fylgja oft fyrstu vikum með­göng­unnar. „Ég var óvinnu­fær fyrstu frá 6-16 viku og þá var mjög erfitt  að halda þessu leyndu frá fólk­inu í kringum mig. Ég var með lágan blóð­þrýst­ing og kastaði upp um það bil 6 sinnum á dag. Vegna orku­leysis og upp­kasta leið yfir mig og rot­að­ist ég á bað­her­berg­is­gólf­inu dágóða stund.  Suma daga komst ég ekki út úr húsi en um leið og ég hætti að vinna fór allt upp á við“ segir Þórunn.

Alexsandra hefur svip­aða sögðu að segja „Mér byrj­aði að líða frekar illa svona tveimur vikum eftir að ég kemst að ég er ólétt. Var óglátt stans­laust allan sól­ar­hring­inn en byrj­aði síðan ekki að kasta upp fyrr en á tíundu viku og er ennþá að kasta upp.mÉg er búin að vera svo­lítið hress­ari en Þórunn en á mína slæmu daga.“

Þórunn og Harry vita kynið og eiga von á stelpu. Alexsandra og Níels hafa einnig ákveðið að kíkja í pakk­ann og eiga pant­aðan tíma í sónar hjá 9.mán­uðum þann 17.maí. Alexsandra seg­ist hafa á til­finn­ing­unni að það sé strákur á leið­inni en Þórunn giskar á stelpu. „Fyrst var ég 100% viss að það væri strákur hjá henni, núna fæ ég smá efa­semdir aftur.“

Eins og fylgj­endur þeirra á sam­fé­lags­miðlum hafa tekið eftir eru þær byrj­aðar að und­ir­búa komu erf­ingj­anna. Aðspurð seg­ist Alexsandra búin að vera ansi dug­leg að kaupa föt en sé ekki komin með neitt annað. „Ég er alveg hand­viss um hvernig ég vil hafa hlut­ina og hvað ég ætla að kaupa. Ég ætla að byrja form­lega á und­ir­bún­ingnum þegar ég hætti að vinna.“

Þórunn Ívars­dóttir

Þórunn seg­ist vera komin með leyfi til að byrja að inn­rétta barna­hornið 1.júlí. „Mér finnst fínt að dreifa kostn­að­inum yfir nokkra mán­uði. Ég veit líka alveg hvernig ég ætla að hafa allt en það er kannski betra að gera einn hlut í einu svo hinn helm­ing­ur­inn fái ekki tauga­á­fall. Annars er nátt­úru­lega stór­hættu­legt að vera saman í þessu, þar sem við erum báðar dug­legar að versla og núna langar okkur að kaupa allt fínt og flott handa kríl­unum.“

Þær segj­ast fyrir utan það að versla barna­föt aðal­lega vera í því að vera þreyttar og svangar saman. „Við espum hvor aðra upp og fáum okkur eitt­hvað rosa­lega gott að borða, því okkur finnst við eiga það skilið. Við erum alltaf svangar“ segja vin­kon­urnar að lokum.

Myndir: Hákon Björns­son

Ítar­legra við­tal við Þórunni og Alexsöndru má finna í 17.tölu­blaði Vikunnar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu