Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Breytir tárum í orð

Sara Mansour er á for­síðu Vikunnar að þessu sinni, en hún hefur þrátt fyrir ungan aldur skipað sér í raðir okkar helstu aðgerða­sinna. Sara er drifin áfram af sterkri rétt­læt­is­kennd og segir sam­visku sína stjórna öllu sem hún geri. Þrátt fyrir háværar og oft óvægnar gagn­rýn­is­raddir ætlar hún alls ekki að leggja árar í bát og segir jákvæðu við­brögðin sem hún fær gera allt þess virði. Sara er ótrú­leg fyr­ir­mynd og þegar litið er yfir afrek hennar er erfitt að trúa því að hún sé aðeins 21 árs.

Breytir tárum í orð

Sara ólst upp í Vest­ur­bænum og var að eigin sögn mjög ham­ingju­samt barn. „Ég var alltaf bros­andi og er enn. Hins vegar fædd­ist ég með til­finn­inga­lega við­kvæmni. Það þýðir ein­fald­lega að allt sem ég finn fyrir er mjög sterkt. Þegar ég er glöð er ég him­in­lif­andi en þegar ég er leið er ég miður mín. Þetta birt­ist í miklum kvíða hjá mér sem barni, til dæmis aðskiln­að­ar­kvíða. Ég reyni þó alltaf að aðskilja þetta tvennt, þ.e. mann­eskj­una sem ég er, mild og jákvæð, og sjúk­dóms­ein­kenni sem ná stundum tökum á mér.“ segir hún.

Samviskan stjórnar öllu

Aðspurð seg­ist Sara alltaf hafa verið þannig að Guði gerð að hún eigi erfitt með að bíta sig í tung­una þegar hún verður vitni af órétt­læti. „Það hefur oft komið mér í vand­ræði. Einu sinni þegar ég var lítil var ég t.d. á fim­leika­æf­ingu og þjálf­ar­inn minn skamm­aði nokkrar stelpur fyrir að vera að tala. Ég gat ekki horft upp á þær sæta ávítum þegar ég hafði líka tekið þátt í sam­ræð­unum svo ég gaf mig fram og þurfti að gera auka­lega þrekæf­ingar fyrir vikið. Þetta er kannski ekki besta dæmið en mér hefur alltaf fund­ist þetta svo­lítið fyndið því það sýnir að ég get aldrei setið á mér og segi alltaf sann­leik­ann, meira að segja þegar ég ætti kannski ekki að gera það. Ég held ekki að það geri mig að betri mann­eskju en aðra, en sam­viskan mín er svo sterkt afl innra með mér að hún stjórnar eig­in­lega öllu sem ég geri.“

Sara hefur mikið notað Netið og sam­fé­lags­miðla til að koma skoð­unum sínum á fram­færi. Hún segir það ekki hafa tekið með­vit­aða ákvörðun um að verða þessi bar­áttu­kona, akti­visti, heldur hafi það þró­ast óvænt í þá átt. Til­viljun hafi ráðið því að hún byrj­aði að nota Facebook til að tjá sig um það sem olli henni hug­ar­angri. „Venju­lega er ferlið eitt­hvað á þá leið að ég verð með­vituð um eitt­hvað órétt­látt, sest niður og græt af von­leysi í klukku­stund en stend síðan upp og breyti tár­unum frekar í orð,“ segir hún.

Sam­viskan mín er svo sterkt afl innra með mér að hún stjórnar eig­in­lega öllu sem ég geri.

Sara hefur velt upp ýmsum áleitnum spurn­ingum og hikar ekki við láta í sér heyra ef hún verður vitni af órétt­læti. Skrif hennar hafa oft vakið mikið umtal og ekki eru alltaf allir sam­mála þeim. Hún segir gagn­rýn­ina oft ná til sín en jákvæðu við­brögðin séu mun algeng­ari.  „Ég var bara barn þegar ég byrj­aði að skrifa og tjá skoð­anir mínar og við­brögðin sem ég mætti, bæði góð og slæm, hafa mótað mig meira en margir gera sér grein fyrir. Það væri hel­ber lygi að halda því fram að fáfræðin sem ég mæti stundum hafi ekki áhrif á mig. Sumir segja að það venj­ist með aldr­inum en ég held og vona að það eigi ekki við um mig. Ég held það af því ég er mjög við­kvæm mann­eskja og ég vona það því mót­lætið styrkir mig og gerir mér kleift að takast á við aðstæður sem aðrir hafa kannski ekki sömu getu til. Ég veit að það hljómar eins og klisja, en jákvæðu við­brögðin sem ég fæ eru marg­falt meiri og þau gera allt hitt lít­il­vægt í sam­an­burði. Ég hef reynt að safna saman öllum jákvæðum skila­boðum sem ég fæ og þau eru að nálg­ast fimm hund­ruð og þegar mér líður illa leita ég þangað. Ef mig vantar styrk til að takast á við ómál­efna­lega gagn­rýni skoða ég upp­á­halds­skila­boðin, t.d. frá stelpu sem sagði að ég hefði gefið henni styrk til að segja mömmu sinni frá að hún hefði verið beitt kyn­ferð­is­of­beldi og skila­boð sem segja að mann­eskjan sem sendi þau hafi ekki raun­veru­lega skilið hvað ras­ismi var fyrr en hún byrj­aði að fylgj­ast með mér. Svona skila­boð um að ég hafi breytt við­horfi fólks eru ómet­an­leg því þau eru bein­hörð sönnun þess að ein mann­eskja geti knúið fram breyt­ingar og það er einmitt það sem ég reyni að skila til ann­arra í sömu stöðu og ég. Verstu við­brögð sem ég hef fengið á hlut­lægan skala eru hót­anir sem bein­ast að fjöl­skyld­unni minni en ef ég á að vera hrein­skilin þá er lang­verst að mæta skiln­ings­leysi, háði eða jafn­vel andúð frá fólki sem maður hélt að vissi betur.“

Áfallastreituröskun eftir röð áfalla

Sara er greind með áfallastreituröskun sem hefur haft mikil áhrif á líf hennar. Hún hefur ekki rætt það mikið opin­ber­lega og segir að ein­kenn­unum fylgi stundum ákveðin skömm. Í æsku varð hún fyrir röð áfalla sem hún bældi lengi niðri. Þeim sem hún mundi eftir sagði hún aldrei frá. Hún seg­ist hafa átt erfitt með að sætta sig við að hafa verið greind með áfallastreituröskun. „Mér fannst ég ekki eiga nógu bágt til að þjást af sjúk­dómi sem hefur í dæg­ur­menn­ingu helst ein­kennt fyrr­ver­andi her­menn. En raun­veru­leik­inn er að upp­lifun af styrj­öld er ekki for­senda þess að vera með áfallastreituröskun og hún getur hrjáð fólk með alls konar reynslu. Í dag kemur hún helst fram í aktí­vism­anum og verður til þess að ég fæ köst þegar eitt­hvað minnir mig á sárs­auka­fullar upp­lif­anir. Ég reyni að vera opin með það, eins og aðra geð­sjúk­dóma, en ein­kenn­unum fylgir viss skömm, t.d. er ég gjörn á að fá martraðir og svitna mikið í svefni. Ég fer reglu­lega til dásam­legs sál­fræð­ings, sem hefur hjálpað mér meira en orð fá lýst, en ég hef lítið rætt þennan hluta af líf­inu mínu því, eins og ég segi, þá fylgir því smá­skömm og sárs­auki sem ég á enn eftir að vinna úr. En ég efast ekki um að það ger­ist með tím­anum. Þetta er bara einn af þessum hlutum sem maður þarf að lifa með og ég mun ekki leyfa því að halda aftur af mér.“

Þetta er aðeins brot út ítar­legu við­tali við Söru. Viðtalið í heild má finna í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

Texti: Margrét Björk Jóns­dóttir
Myndir: Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu