Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dökkir litir ráða ríkjum hjá smart flugfreyju

Blaða­maður Húsa og híbýla kíkti í inn­lit til Hörpu Guð­jóns­dóttur flug­freyju og fag­ur­kera sem hefur búið sér og sonum sínum ein­stak­lega glæsi­legt heim­ili. Dökkir litir ráða ríkjum hjá henni og þá sér­stak­lega svarti lit­ur­inn.

Dökkir litir ráða ríkjum hjá smart flugfreyju

Harpa hefur unun af því að fegra heim­ilið sitt og hún hefur ein­stak­lega næmt auga. Fjöl­skyldan flutti inn í þetta fal­lega hús í smá­í­búða­hverf­inu í des­em­ber síð­ast­liðnum og síðan þá er Harpa búin að gera tölu­verðar breyt­ingar á hús­inu.

Það fyrsta sem maður tekur eftir þegar komið er inn í húsið er flott, svart eld­hús en í rým­inu er einnig mjög töff, svartur flauels sófi sem skapar skemmti­legan karakter í þessu opna rými. Punk­ur­inn yfir i-ið eru Voal-gard­ín­urnar sem hleypa birt­unni inn.

Það er kúnst að raða saman hús­gögnum og hlutum en það finnst Hörpu sér­lega gaman að gera og hún er dug­leg að færa til hluti og nostra við heim­ilið. Hún ferð­ast mikið vegna vinnu sinnar og nýtir tæki­færið reglu­lega til að versla fal­lega hluti fyrir heim­ilið.

„Mér finnst skipta mestu máli skipta að skapa sinn eigin stíl og elta ekki tísku­bylgjur,“ segir Harpa.

Fékkstu inn­an­húss­arki­tekt til liðs við þig?

„Ég hafði mjög svo fast­mót­aðar hug­myndir um hvernig heild­ar­út­litið skyldi vera. Ég hef mjög gaman að hönnun og að fá að skapa og naut mín í botn þegar ég var að hanna útlitið, ég var á heima­velli.

Ég fékk vin minn, Andrés James, sem er inn­an­húss­arki­tekt, til þess að hjálpa mér með skipu­lagið á eld­hús­inu, það var mikil hjálp í honum. Ég var hins­vegar með efn­isvalið á hreinu sjálf og vissi nákvæm­lega hvað ég vildi.“

Hvernig myndir þú lýsa stílnum á heim­il­inu?

„Ég hef algjöra unun af því að nostra við heim­ilið og myndi segja að ég sé dug­leg að blanda saman fínu og grófu, róm­an­tísku og rústik, það finnst mér vera góð blanda. Ég vil hafa heim­ilið mitt hlý­legt og nota­legt, það verður að vera nóg af kertum og blómum, það er eitt­hvað við blómin sem gerir allt betra.“

Hörpu finnst sér­lega gaman að breyta, færa til hluti og nostra við heim­ilið.

Hvað er mik­il­vægt í þínum huga þegar kemur að því að inn­rétta heim­ilið?

„Mér finnst skipta mestu máli skipta að skapa sinn eigin stíl og elta ekki tísku­bylgjur. Skipulag verður að vera gott og að það sé sam­hljómur í því sem maður er að gera, s.s að rýmin tali saman.“

Mynd / Rut Sig­urð­ar­dóttir

Ertu alltaf að breyta til á heim­il­inu?

„Eins og ég segi þá hef ég unun af því að skapa og þar kemur sterkt inn að breyta og bæta. Mér finnst mjög skemmti­legt að færa hluti til og nostra við litlu hlut­ina, raða hlutum saman á fal­legan hátt o.s.frv. Þetta finnst mér ein­fald­lega svo skemmti­legt.“

Dökkir litir ráða ríkjum á heim­il­inu.

Hvað gerir hús að heim­ili?

„Mér finnst lyk­il­at­riði að mála í litum og að vera með fal­legar gard­ínur; þær eru í raun eins og fal­leg mubla og setja punkt­inn yfir i-ið. Eins finnst mér hlý­legt og fal­legt að vera með fal­legar mottur og myndir á veggj­unum. Lýsing er einnig mik­il­væg og þá er óbeina lýs­ingin fal­leg­ust. Heimilið á að vera griða­staður þar sem okkur líður vel og hlöðum batt­er­íin í amstri dags­ins.“

Harpa fékk vin sinn, Andrés James, til þess að hjálpa sér með skipu­lagið á eld­hús­inu.

Myndir / Rut Sig­urð­ar­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni