Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Snjórinn, jólaljósin og samveran best

Laura Elena Cervera Magalla­nes, kenn­ari hjá Hjalla­stefn­unni og túlkur, flutti til Íslands frá Mexíkó ásamt eig­in­manni og tveimur sonum sum­arið 2011. Hún segir fyrstu jólin á Íslandi hafa verið ógleym­an­leg og þar hafi snjór­inn átt stærstan þátt.

„Upp­haf­lega ætl­uðum við bara að vera á Íslandi í eitt og hálft ár svo við gerðum ráð fyrir því að jólin 2011 yrðu einu íslensku jólin okkar og vildum gera þau sem eft­ir­minni­leg­ust,“ útskýrir Laura. „Synir okkar, sem voru þá fjög­urra og fimm ára, voru yfir sig spenntir yfir því að fá gjafir frá jóla­svein­unum í skó­inn og vökn­uðu fyrir allar aldir til að gá hvað væri í skónum. Stundum vökn­uðu þeir klukkan tvö á nótt­unni og ég var að verða örmagna af því að passa að koma gjöf­unum í skó­inn áður en þeir vökn­uðu. Þetta var allt svo nýtt og fram­andi. Meira að segja myrkrið var spenn­andi fyrir okkur þessi fyrstu jól. Við bjuggum áður í Cuernavaca, Morelos sem er stundum kölluð borg hins eilífa vors svo þú getur ímyndað þér við­brigðin! En snjór­inn, jóla­ljósin og myrkrið, auk sam­veru við fjöl­skyldu eig­in­manns míns sem er hálf­ís­lenskur, gerðu þessi jól ein­hver þau eft­ir­minni­leg­ustu sem við höfum átt.“

Meira að segja myrkrið var spenn­andi fyrir okkur þessi fyrstu jól.

Þótt jóla­hefðir í Mexíkó séu ólíkar þeim íslensku segir Laura jólin þar og hér líka að því leyti að þau snú­ist fyrst og fremst um sam­veru með fjöl­skyldu og vinum og að borða góðan mat saman. Ein teg­und af íslenskum jóla­mat vekur þó ekki hrifn­ingu hennar.

„Þessi siður að borða illa lykt­andi skötu á Þor­láks­messu hefur ekki fallið í góðan jarð­veg hjá mér,“ segir hún og hryllir sig. „Ég get alls ekki borðað hana. En allur annar íslenskur jóla­matur finnst mér mjög góður; hangi­kjöt, rjúpa, laufa­brauð, reyktur lax og bara allt. Mjög ólíkur jóla­matur frá þeim sem ég er vön frá Mexíkó, en alveg jafn­góður.“

Þessi siður að borða illa lykt­andi skötu á Þor­láks­messu hefur ekki fallið í góðan jarð­veg hjá mér.

Laura segir mesta mun­inn á íslenskum og mexíkóskum jólum fel­ast í jóla­hefð­unum. „Í Mexíkó fögnum við jól­unum frá 12. des­em­ber til 6. jan­úar og frá 16. des­em­ber fram á aðfanga­dags­kvöld eru skrúð­göngur á hverju kvöldi til að minn­ast leitar Maríu og Jóseps að gist­ingu á gisti­heim­ilum. Börnin ganga milli húsa með kerti og syngja söngva sem greina frá þess­ari leit við hverjar dyr, en er alltaf vísað í burtu. Göngunni lýkur svo á hverju kvöldi með veislu á mis­mun­andi heim­ilum sem gegna hlut­verki fjár­húss­ins þar sem María og Jósep fengu loks­ins inni, og þar er borðað og drukkið, farið í leiki, flug­eldum skotið upp og börnin fá fullt af sæl­gæti úr leir­krukku sem vana­lega hangir niður úr lofti húss­ins og þau þurfa að brjóta með því að berja í með bundið fyrir augun. Á aðfanga­dags­kvöld er svo settur upp pallur með Maríu og Jósep við jöt­una og þegar rétta húsið er fundið er Jesú­barnið sett í jöt­una. Svo fara allir í messu til að fagna komu jól­anna.“

Laura við­ur­kennir að hún sakni jól­anna í Mexíkó stundum, sakni fjöl­skyldu sinnar og vina, en sem betur fer eigi fjöl­skyldan stóra fjöl­skyldu á Íslandi líka sem komi saman um jólin svo þrátt fyrir allt sé upp­lifunin ekki svo ólík. Það besta sé þó hve allir séu glaðir á jól­unum.

„Það besta við jólin á Íslandi er hvað allir eru í góðu skapi,“ segir hún hlæj­andi. „Svo dýrka ég líka öll jóla­ljósin utan á hús­unum. Ég vona virki­lega að það verði hvít jól í ár, það er hátíð­leg­ast og við vorum svo ótrú­lega heppin að fá jóla­snjó fyrstu jólin okkar á Íslandi. Það var ógleym­an­leg upp­lifun.“

Mynd / Heiðdís Guðbjörg

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag