Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjö ráð fyrir hreint heimili

Flestir geta eflaust verið sam­mála um að það að hafa hreint og snyrti­legt í kringum sig gerir ein­hvern veg­inn allt tölu­vert betra. Fátt er leið­in­legra en að koma heim eftir langan dag og heim­ilið er á hvolfi. Ástandið getur orðið yfir­þyrm­andi mjög fljótt. Hér eru nokkur ráð sem hjálpa til við að koma í veg fyrir slíkt og halda heim­il­inu í ágætis ásig­komu­lagi.

Sjö ráð fyrir hreint heimili

Að eiga minna!

Um leið og það er minna af dóti á heim­il­inu er minna dót sem býr til drasl. Þá er mjög gott, í sama til­gangi, að hafa í huga að eiga ekki mikið af hlutum.

Hentu smádóti (drasli) jafnóðum

Þótt maður reyni að vera með­vit­aður um að kaupa ekki óþarfa eða sanka að sér drasli þá er ótrú­legt hversu fljótt þetta safn­ast saman. Sér­stak­lega þegar maður á börn. Hver kann­ast ekki við „einnota“ dót eins og finnst í Kind­ereggi eða barna­box­unum á veit­inga­stöðum. Þetta á líka við um upp­þorn­aða og brotna liti, prufur af hinu og þessu, aug­lýs­inga­bæk­linga og svo fram­vegis. Beint í ruslið. Við treystum okkur til að full­yrða að þú komir ekki til með að sakna þess­ara hluta.

Einnar mínútu reglan

Hún er ein­fald­lega þannig að ef eitt­hvað sem þarf að gera tekur innan við eina mín­útu – gerðu það þá strax. Litlir hlutir eins og að hengja upp peys­una sína, raða útiskónum, setja Cheerios-pakk­ann inn í skáp. Þetta eru allt hlutir sem er kannski freist­andi að bíða með að gera, en þegar þú veist að þetta tekur hvort eð er minna en eina mín­útu er erfitt að rétt­læta fyrir sér að gera þá ekki.

Komdu þér upp rútínu

Til dæmis að fara alltaf út með ruslið eftir kvöld­mat og ryk­suga á föstu­dögum. Það tekur kannski smá­tíma, en um leið og það er komið í rútínu að gera alltaf eitt­hvað á sama tíma hættir það að vera kvöð. Svo er að sjálf­sögðu frá­bært að skipta verk­efnum á milli fjöl­skyldu­með­lima þannig að hver og einn hafi alltaf sitt hlut­verk.

Dreifðu huganum

Þegar fjallið af hreinum þvotti er orðið yfir­þyrm­andi er gott að drösla öllu fram í sófa, kveikja á góðum þætti, brjóta saman þvott­inn og gleyma sér á meðan.

Hafðu alltaf kassa/poka í geymslunni …

… í þvotta­hús­inu eða inni í skáp. Einn fyrir föt og annan fyrir dót sem þú ætlar að gefa. Svo tekur enga stund að skutla pok­anum í fatagám eða á nytja­markað.

Bjóddu fólki í heimsókn!

Það er lík­lega mesta hvatn­ingin fyrir marga að taka til þegar von er á gestum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag