Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Orkuveita Reykjavíkur: Endalaus uppspretta átaka

Fréttir af kyn­ferð­is­legri áreitni innan Orku­veitu Reykja­víkur í lið­inni viku er aðeins eitt af mörgum hita­málum sem hafa blossað upp í kringum starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Allt frá því Orku­veitan var sett á fót með sam­ein­ingu Hita­veitu Reykja­víkur og Raf­magns­veitu Reykja­víkur árið 1999 hafa deilur um rekst­ur­inn blossað upp með reglu­legu milli­bili og þær jafn­vel endað með falli borg­ar­stjórn­ar­meiri­hluta. Mannlíf rifjar upp nokkur af helstu hita­mál­unum.

Orkuveita Reykjavíkur: Endalaus uppspretta átaka

Rándýrar höfuðstöðvar

Bygging höf­uð­stöðva OR er um margt sorg­ar­saga sem enn sér ekki fyrir end­ann á. Kostn­aður við bygg­ing­una nam alls 5,8 millj­örðum króna og fór hann 4 millj­arða fram úr áætlun. Árið 2013 var ákveðið að selja hús­næðið til líf­eyris- og fjár­fest­inga­sjóða til að grynnka á erf­iðri skulda­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins og leigja það af nýjum eig­endum; 5,1 millj­arður fékkst fyrir húsið. Síðan kemur í ljós að stór hluti vest­ur­húss­ins er ónýtur vegna raka­skemmda og að kostn­aður við við­gerðir geti numið allt að 7 ½ millj­arði króna. Í fyrra kaupir Orku­veitan húsið aftur fyrir 5,5 millj­arða, en kaupin voru for­senda þess að hægt væri að ráð­ast í nauð­syn­legar breyt­ingar á hús­næð­inu vegna skemmda.

Eitt flottasta eldhús landsins

Árið 2010 beind­ist athygli lands­manna að stór­glæsi­legu eld­húsi höf­uð­stöðva OR eftir að kynn­ing­ar­mynd­band fyr­ir­tæk­is­ins fór í dreif­ingu á Netinu. Mynd­bandið, sem var tæpar 10 mín­útur að lengd, var fram­leitt af kynn­ing­ar­deild fyr­ir­tæk­is­ins árið 2004. Var ásókn fag­að­ila og rekstr­ar­að­ila í að skoða eld­húsið svo mikil að ákveðið var að gera mynd­bandið til að draga úr slíkum heim­sóknum. Alfreð Þor­steins­son, sem var stjórn­ar­for­maður OR á þeim tíma sem eld­húsið var byggt, þvertók fyrir að um of mik­inn íburð hafi verið að ræða. „Það var ekk­ert bruðlað sér­stak­lega í upp­bygg­ingu þessa eld­húss.“ Almenn­ingur var á öðru máli.

Sértækar skuldaaðgerðir

Rekstur Orku­veit­unnar fór afar illa út úr efna­hags­hrun­inu enda hafði íslenska krónan hríð­fallið og stærstur hluti lána í erlendri mynt. Um mitt ár námu skuldir fyr­ir­tæk­is­ins 227 millj­örðum króna. Stjórn fyr­ir­tæk­is­ins réð­ist í umfangs­miklar aðgerðir til að bjarga fyr­ir­tæk­inu sem fólust meðal ann­ars í nið­ur­skurði, hækkun gjald­skráa og end­ur­fjár­mögnun lána. Var aðgerða­á­ætl­unin nefnd Planið. Áætlunin gekk eftir og gott betur og skil­aði hún sér í 60 millj­arða króna í bættri sjóðs­stöðu, eða 10 millj­örðum umfram það sem upp­haf­lega var reiknað með.

Mislukkuð tilraun með risarækjur

Um alda­mótin hóf Orku­veitan til­raunir í að koma á fót risa­rækju­eldi. Fyr­ir­tækið lagði fram stofnfé og var áformað að fleiri aðilar kæmu inn í verk­efnið sem myndu á end­anum taka yfir verk­efnið og hefja risa­rækju­eldi í stórum stíl. Þeir létu hins vegar aldrei sjá sig. Alfreð Þor­steins­son, þáver­andi stjórn­ar­for­maður, sagði þetta hluti af lög­boð­inni skyldu Orku­veit­unnar um að taka þátt í nýsköpun og þegar fyrsta risa­rækjan var boðin til átu árið 2004 sagði hann ljóst að til­raunin hafði heppn­ast. Voru menn á þessum tíma­punkti á því að risa­rækjan ætti eftir að slá í gegn. En risa­rækju­draum­arnir runnu út í sand­inn og í sept­em­ber 2007 tók stjórn OR þá ákvörðun að hætta risa­rækju­eld­inu. Lét Haukur Leósson, þá stjórn­ar­for­maður, hafa eftir sér að til­rauna­starf­semin hafi ekki skilað fyr­ir­tæk­inu krónu.

Stórslys í Andakílsá

Starfs­menn Orku nátt­úr­unnar urðu upp­vísir að ólög­mætri og sak­næmri hátt­semi við tæm­ingu á lóni um botn­loku á stíflu Anda­kíls­ár­virkj­unar í Borg­ar­firði í fyrra­vor. Gríð­ar­legt magn aurs flæddi út í Anda­kílsá með með­fylgj­andi stór­tjóni fyrir líf­ríki árinnar. Orku­stofnun sektaði ON um eina milljón króna vegna atviks­ins, enda hafði til­skil­inna leyfa fyrir tæm­ing­unni ekki verið aflað. Áhrif­anna gætir enn og var engin lax­veiði stunduð í Anda­kílsá í sumar frekar en í fyrra.

REI sprengir borgarstjórn

Á haust­mán­uðum 2007, þegar sjálfs­traust íslenskra við­skipta­manna náði hæstu hæðum, voru uppi stórar hug­myndir um að ráð­ast í orku­út­rás. Til þess stofn­aði OR dótt­ur­fyr­ir­tækið Reykja­vik Energy Invest – REI. Þegar fréttir bár­ust af því að til stæði að sam­eina REI og Geysi Green Energy, sem var í eigu FL Group og Glitnis banka, runnu hins vegar tvær grímur á borg­ar­full­trúa. Þær deilur mögn­uð­ust þegar í ljós kom að útvaldir lyk­il­starfs­menn áttu að fá kaup­rétt­ar­samn­inga sem mögu­lega hefði fært þeim háar fjár­hæðir. Ekkert varð þó að sam­run­anum þar sem borg­ar­stjórn­ar­meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks sprakk vegna máls­ins.

Barist um Hitaveitu Suðurnesja

Síð­sum­ars 2009 risu enn og aftur upp harðar deilur í borg­ar­stjórn þegar Orku­veitan ákvað að ganga til við­ræðna við kanadíska fyr­ir­tækið Magma Energy um sölu á 32% hlut OR í Heita­veitu Suð­ur­nesja. Var átaka­punkt­ur­inn sá að verið væri að færa orku­auð­lindir þjóð­ar­innar í hendur einka­að­ila. Kaupin, sem voru reyndar aðeins hluti af harðri bar­áttu um eign­ar­hald í HS, gengu engu að síður í gegn og á kanadíska félagið – í gegnum sænskt dótt­ur­fyr­ir­tæki – enn meiri­hluta í HS.

Orkufyrirtæki á fjarskiptamarkaði

Á dögum R-list­ans varð fyr­ir­tæki að nafni Lína.net að einu helsta deilu­efn­inu milli meiri­hlut­ans og minni­hlut­ans sem end­ur­spegl­að­ist í stöð­ugum skeyta­send­ingum milli Alfreðs Þor­steins­sonar og Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, sem þá var borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Lína.net var fjar­skipta­fyr­ir­tæki í eigu Orku­veit­unnar sem átti að sjá um ljós­leið­ara­væð­ingu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en varð í augum sjálf­stæð­is­manna, sem töldu fjar­stæðu að fyr­ir­tæki í eigu borg­ar­innar væri að standa í rekstri á sam­keppn­is­mark­aði, hold­gerv­ingur sóunar almanna­fjár. Lína.net rann síðar inn í Gagna­veitu Reykja­víkur sem er dótt­ur­fé­lag Orku­veit­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag