Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Endurheimti hamingjuna á hundrað dögum

Tinna Rós Steins­dóttir tók áskor­unni 100 daga ham­ingja og upp­lifði meiri­háttar breyt­ingar á lífi sínu.

Endurheimti hamingjuna á hundrað dögum

Þegar blaða­maður „skæp­ast“ við Tinnu, sem er búsett í Brussel, byrjar sam­talið ein­fald­lega á ástæð­unni fyrir því að hún að tók áskor­un­inni. „Ég var bara að gagna í gengum erfitt tíma­bil,“ svarar hún blátt áfram. „Vann ótrú­lega mikið en komst aldrei yfir allt sem ég þurfti að gera. Var alltaf í rækt­inni en fitn­aði bara og fitn­aði. Launin mín voru lág. Mér fannst ég bara ekki vera á þeim stað sem ég átti að vera á komin á, ver­andi á þessum aldri, og hafði ekki hug­mynd um hvað fram­tíðin bæri í skauti sér. Alls­konar erf­ið­leikar sem ég held að margir kann­ist við og geta valdið því að maður brýtur sjálfan sig niður. Það var svo í maí að kærast­inn minn hætti að vera með mér og það var þá sem ég missti öll tök. Fannst ég vera „feit, ljót og ömur­leg“ og lá bara uppi í rúmi og horfði á Netflix. Það furðu­lega við þetta er að út á við hélt líf mitt áfram að vera upp­fullt af ævin­týrum og ég tók þátt í þeim og brosti meira að segja stundum en mér leið alltaf illa inni í mér. Meira að segja þegar ég var að gera skemmti­lega hluti,“ lýsir hún.

Það hafi verið þá, þegar botn­inum var náð, sem hún sá Facebook-vin­konu sína mæra áskor­un­ina 100 daga ham­ingja og það og sam­tal við systur hennar, sem hvatti hana ein­dregið til að gera eitt­hvað í sínum málum, hafi orðið til þess að hún sló til. En í hverju fólst áskor­unin nákvæm­lega? „Eitt af því sem hún gengur út á er að gera eitt­hvað spenn­andi á hverjum degi og pósta mynd af því á Facebook þannig að ef ein­hver bað mig til dæmis um að hitt­ast eftir vinnu og gera eitt­hvað skemmti­legt þá sagði ég stundum já þótt mig lang­aði kannski miklu frekar til að fara heim og upp í sófa, bara til þess eins að ná mynd. En maður sá aldrei eftir því að hafa farið, því auð­vitað var alltaf gaman að hitt­ast.“

„Á hund­rað dögum voru kannski svona fimm dagar sem ég bölv­aði því í loks dags að eiga eftir að finna eitt­hvað til að vera ham­ingju­söm yfir og setja það á Facebook.“

Kaflaskil í Króatíu

Í kjöl­far þess­ara dag­legu Facebook-færsla seg­ist Tinna hafa gert skemmti­lega upp­götvun. „Ég fatt­aði fljót­lega að flestar færsl­urnar mínar voru um fólk sem ég hafði hitt yfir dag­inn og það var þá sem ég átt­aði mig á því að það er það, fólkið sem maður umkringir sig með, sem hefur einna mest mót­andi áhrif á líf manns og ham­ingju,“ segir hún.

Fyrstu alvöru­kafla­skilin segir hún hins vegar hafa orðið í júlí þegar hún varði fjórum dögum ein­sömul í Króatíu. „Ég ákvað að nota tím­ann til að hugsa um lífið og til­ver­una; hver ég væri og hver ég vildi vera. Ég ákvað að vera opin með hugs­anir mínar og til­finn­ingar á Facebook, aðal­lega af því að það hjálp­aði mér svo mikið að geta bara verið hrein­skilin. Og það sem gerð­ist er að ég fór að fá skila­boð frá alls konar fólki sem sagði mér að ham­ingju­ferða­lagið mitt væri að hafa áhrif á líf þess, meira að segja fólki sem ég þekkti lítið. Ég hafði haft smáá­hyggjur af því að ein­hverjum fynd­ist ég hálf­hall­æris­leg að gera þetta en þegar skila­boðin fóru að ber­ast þá hurfu þær alveg. Það var ótrú­lega magnað.“ Eftir það fór hún að gera rót­tækar breyt­ingar á lífi sínu. Sagði meðal ann­ars upp í vinn­unni, sem henni þótt erfitt þar sem hún hefur mjög gaman af starf­inu sínu og ákvað að flytja frá Belgíu. Það hafi verið nokkuð sem hún átt­aði sig á að þyrfti að ger­ast ef henni ætti að líða betur.

„Ég fór að finna mun á mér. Til að byrja með var það helst þakk­læti sem ég fann fyrir en það hefur svo­lítið ein­kennt þessa hund­rað daga fyrir mér, þakk­læti. Ég er þakk­lát fyrir lífið og fyrir allt frá­bæra fólkið í kringum mig. Ég er ein­stak­lega heppin með fjöl­skyldu og vini og ég var minnt á það.“

Var ekk­ert erfitt að taka allar þessar stóru ákvarð­anir og hrein­lega að halda þetta út? „Nei veistu, þetta var eig­in­lega furðu­lega auð­velt. Á hund­rað dögum voru kannski svona fimm dagar sem ég bölv­aði því í loks dags að eiga eftir að finna eitt­hvað til að vera ham­ingju­söm yfir og setja það á Facebook. Ég átti þá nokkra til­búna ham­ingju­pósta til á lager ef ske kynni að ekk­ert skemmti­legt gerð­ist en þegar til kast­anna kom leit­aði ég samt bara einu sinni í þá lausn,“ segir hún og brosir.

Spurð hvort hún telji að þessi reynsla muni nýt­ast henni eitt­hvað áfram stendur ekki á svar­inu. „Já algjör­lega. Það sem stendur eftir er þjálfunin í að finna gleði og ham­ingju í litlu hlut­unum; betri skiln­ingur á hug­tak­inu að ham­ingjan komi að innan, mun meiri trú á sjálfa mig og vit­neskjan um hversu mikil áhrif maður getur haft á annað fólk bara með því að vera opinn og ein­lægur um það hver maður er og hvað maður er að ganga í gegnum. Ég reyndi mikið að vera lausn­a­miðuð og upp­örvandi í póst­unum mínum og tala um erf­ið­leika frekar í þátíð en nútíð þegar ég hafði fundið góða leið til að takast á við þá. Þetta er algjör­lega eitt­hvað sem ég tek með mér áfram í líf­inu og verður gegn­um­gang­andi í póst­unum mínum á Facebook.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag