Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Margrét hannaði 3.600 búninga fyrir kvikmyndina 22. júlí

Net­fl­ix­mynd um fjöldamorðin í Útey frum­sýnd í Feneyjum.

Margrét hannaði 3.600 búninga fyrir kvikmyndina 22. júlí
|

Kvikmynd Pauls Greengrass 22. júlí, sem fjallar um fjöldamorð Anders Behring Breivik í Útey, var frum­sýnd á kvik­mynda­há­tíð­inni í Feneyjum á dög­unum og hlaut afar jákvæðar mót­tökur. Íslenski bún­inga­hönn­uð­ur­inn Margrét Ein­ars­dóttir var bún­inga­hönn­uður mynd­ar­innar og hún segir vinn­una við mynd­ina hafa haft djúp áhrif á sig.

„Þetta er rosa­lega áhrifa­rík mynd og ég get ekki hætt að hugsa um hana,“ segir Margrét sem stödd er í Feneyjum til að vera við­stödd frum­sýn­ing­una á kvik­mynda­há­tíð­inni. „Myndin var unnin í nánu sam­starfi við aðstand­endur fórn­ar­lamba fjöldamorð­anna í Útey 22. júlí 2011 og það tók tölu­vert á að fara í gegnum þennan hryll­ing með þeim. En þótt þetta sé erfitt við­fangs­efni og stutt síðan þetta gerð­ist þá er mik­il­vægt að fjalla um þetta og mér finnst þessi mynd gera það mjög vel.“

Paul Greengrass er einn virt­asti leik­stjóri sam­tím­ans og hefur tvisvar verið til­nefndur til Ósk­arsverð­launa sem besti leik­stjór­inn, fyrir Green Zone árið 2010 og Captain Phillips árið 2013. Hvernig kom það til að Margrét fór að vinna með honum, hafði hún unnið með honum áður?

„Þetta var svo­lítið mikið. En verð­ugt við­fangs­efni og skemmti­legt.“

„Nei, ég hafði aldrei unnið með honum áður,“ segir hún. „En ég hafði unnið með einum fram­leið­anda mynd­ar­innar og þannig kom það til að ég var beðin um að taka þetta að mér.“

Paul Greengrass er einn virt­asti leik­stjóri sam­tím­ans og hefur tvisvar verið til­nefndur til Ósk­arsverð­launa sem besti leik­stjór­inn, fyrir Green Zone árið 2010 og Captain Phillips árið 2013.

Verk­efnið var risa­vaxið þar sem níu­tíu leik­arar fara með hlut­verk í mynd­inni auk 3.500 statista og Margrét þurfti að hanna bún­inga á allan skar­ann. „Þetta var svo­lítið mikið,“ við­ur­kennir hún. „En verð­ugt við­fangs­efni og skemmti­legt.“

22. júlí er ekki eina kvik­myndin um hryll­ing­inn í Útey sem verið er að sýna þessa dag­ana önnur mynd um sama efni, Útey, er nú í sýn­ingum í Bíó Paradís. Margrét segir mynd­irnar nálg­ast atburð­ina á mjög ólíkan hátt en svo skemmti­lega vill til að hún var líka beðin um að hanna bún­ing­ana fyrir Útey en valdi 22. júlí frekar. Hún segir hand­ritið hafa hrifið sig mikið og hin nána sam­vinna við fjöl­skyldur fórn­ar­lambanna geri hana ein­staka. Myndin byggir á bók Åsne Seier­stad, Einn af okkur sem kom út í íslenskri þýð­ingu árið 2016, og Greengrass skrif­aði hand­ritið í sam­starfi við hana.

Myndin keppir í aðal­keppni kvik­mynda­há­tíð­ar­innar í Feneyjum um Gullna ljónið og hefur hlotið ein­róma lof gagn­rýnenda. Til að mynda gaf kvik­mynda­gagn­rýn­andi The Guardian henni 5 stjörnur í dómi sem birt­ist 5. sept­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Verslunin í Hafnarfirði hefur verið sjálfstæð um áratuga skeið
Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag