Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hjólreiðaslysum fjölgar

Hjól­reiða­slysum hefur fjölgað á seinni árum. Mest er um minni háttar áverka að ræða þegar fólk dettur. Í ein­staka til­fellum er þó um að ræða alvar­leg slys sem geta þarfn­ast skurð­að­gerðar og slys sem í stöku til­vikum leiða til var­an­legs heilsutjóns.

Hjalti Már Björns­son, bráða­læknir og stað­geng­ill yfir­læknis á slysa­deild .

Hjól­reiða­slysum hefur heldur fjölgað á seinni árum. Slysin eru hins vegar færri en sem nemur hlut­falls­legri fjölgun hjóla­fólks á sama tíma. „Það er til­finn­ing okkar sem störfum við bráða­lækn­ingar og er studd af þeim tölum sem við höfum,“ segir Hjalti Már Björns­son, bráða­læknir og stað­geng­ill yfir­læknis á slysa­deild Land­spít­al­ans. Spít­al­inn hefur ekki upp­lýs­ingar um tíðni reið­hjólaslysa en stefnt er að því að taka slíkt saman.
Hjalti segir reið­hjóla­fólk leita til lækna vegna allra teg­unda slysa. Mest sé um minni háttar áverka að ræða þegar fólk dettur. Í ein­staka til­fellum er þó um að ræða alvar­leg slys sem geta þarfn­ast skurð­að­gerðar og slys sem í stöku til­vikum leiða til var­an­legs heilsutjóns.
Hjalti leggur áherslu á að mun fleiri nota nú reið­hjól sem sam­göngu­tæki en fyrir um ára­tug. Fjöl­breytni hefur líka auk­ist mikið. Fólk keppi á hjólum, stundar fjalla­hjól­reiðar og tekur þátt í hraða­keppnum af ýmsu tagi auk þess að hjóla til og frá vinnu á hjóla­stígum í þétt­býli.
„Slysa­tíðni verður að skoða í því sam­hengi hversu margir eru að hjóla. Síðan, eins og má búast við, þegar fólk er í hraða­keppnum á mjög léttum og stundum mjög veik­byggðum hjólum, þá fylgir því meiri hætta en ef fólk er að hjóla á milli staða á hjóla­stígum,“ segi Hjalti og tekur sem dæmi fjalla­brun á reið­hjólum sem margir eru farnir að stunda. Í fjalla­bruni er farið niður ótroðnar slóðir á eins miklum hraða og við­kom­andi kemst. Því fylgir aukin slysa­hætta og notar fólk sem það stundar því meiri örygg­is­búnað.

„Varn­ar­bún­aður er ekki sá mik­il­væg­asti til að draga úr reið­hjólaslysum. Betra er að byggja upp rétta umferð­ar­menn­ingu, bæði hjá öku­mönnum og reið­hjóla­fólki. Fólk á hjólum þarf líka að taka til­lit til gang­andi fólks.“

Hreyf­ing­ar­leysið er hættu­legt
Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu greindi frá því í byrjun mán­aðar að mikið hafi verið kvartað yfir reið­hjóla­fólki í sumar og til­kynnt um trassa­skap þess í umferð­inni á hverjum degi. Hjóla­fólk virði allar umferð­ar­reglur að vettugi og skeyti í engu um aðra í umferð­inni. Lög­reglan biðl­aði til reið­hjóla­fólks um að geta betur í umferð­inni, virða reglur og sýna öðrum veg­far­endum kurt­eisi.
Hjalti segir til­lits­semi í umferð­inni mik­il­væg­asta örygg­is­tækið. „Varn­ar­bún­aður er ekki sá mik­il­væg­asti til að draga úr reið­hjólaslysum. Betra er að byggja upp rétta umferð­ar­menn­ingu, bæði hjá öku­mönnum og reið­hjóla­fólki. Fólk á hjólum þarf líka að taka til­lit til gang­andi fólks,“ segir hann.

En hvað með hjálma­notkun?
Hjalti segir ljóst að notkun hjálma dragi úr tíðni höf­uð­á­verka hjá reið­hjóla­fólki. Hann vill þó ekki skylda fólk til að bera hjálm. Hægt sé að grípa til ann­arra ráða til að bæta öryggi hjóla­fólks.
„Í Banda­ríkj­unum þar sem bílar eru alls­ráð­andi og hjóla­fólk fátt er slysa­tíðni á hjóla­fólki mjög há. Í Danmörku er hjálma­notkun almennt lítil en höf­uð­á­verkar fátíðir. Í Ástralíu er reynslan svo sú að þegar fólk var skyldað að nota hjálm þá fækk­aði fólki sem hjólar. Ég ráð­legg fólki að hjóla með hjálm og geri það sjálfur en það eru ekki höf­uð­á­verk­arnir sem stytta ævi­líkur Íslend­inga heldur hreyf­ing­ar­leysið. Það hefur sýnt sig að það hefur gíf­ur­lega mikil áhrif á and­lega og lík­am­lega heilsu fólks ef það hreyfir sig og hjólar. Það er ekki hægt að horfa fram hjá því að vegna bíla­um­ferðar er mengun það mikil á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að hún veldur heilsutjóni og senni­lega ótíma­bærum dauðs­föllum hjá mörgum á Íslandi á hverju ári,“ segir Hjalti og leggur áherslu á mik­il­vægi þess að fólki noti ýmis konar vist­vænar sam­göngur í stað þess að valda heilsutjóni með mengun. Liður í því sé að hvetja fólk til að hjóla, jafn­vel án hjálms.
„Þetta fer eftir því hvernig er hjólað. Ef maður hjólar rólega á hjóla­stíg og fer rólega þá er gagn­semi hjálma hverf­andi. Þegar fólk keppir eða hjólar hratt þá hjólar eng­inn hjálm­laus. Ég get alveg ímyndað mér þær aðstæður að ég sé að hjóla niðri í miðbæ í leik­hús að ég vilji ekki hafa hjálm­inn. Þá er nóg að hjóla rólega. Þá fylgir því lítil sem engin hætta,“ segir Hjalti læknir sem hefur sjálfur hjólað til og frá vinnu um áraraðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag