Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hinsegin dagar tímaskekkja?

Hinsegin dagar tímaskekkja?

Hinsegin dagar, sem hófust með pomp og prakt í vik­unni, hafa fyrir löngu stimplað sig inn sem ein vin­sæl­ustu hátíða­höld á Íslandi, ekki síst Gleði­gangan sem fer fram á morgun. Að margra áliti er gangan hápunktur hátíða­hald­anna en síð­ustu ár er talið að á bil­inu 70-90 þús­und manns hafi lagt leið sína í mið­borg­ina til að taka þátt eða fylgj­ast með henni, sem gerir göng­una að einum fjöl­menn­asta við­burði í Reykja­vík.

Ánægju­legt er að nán­ast þriðj­ungur þjóð­ar­innar skuli taka þátt í hátíða­höldum sem ganga út á að fagna fjöl­breyti­leika mann­lífs­ins, efla sam­stöðu hinsegin fólks og gleðj­ast yfir áföngum sem náðst hafa í rétt­inda­bar­áttu þess á Íslandi síð­ustu ára­tugi því þátt­takan sýnir ekki aðeins að stór hluti Íslend­inga kýs að búa í sam­fé­lagi sem er bæði fjöl­breytt og rétt­látt heldur líka í sam­fé­lagi þar sem mann­rétt­indi eru virt.

Á meðan stór hluti þjóð­ar­innar fagnar ger­ist það hins vegar nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust á hverju ári að fámennur hópur fólks sér ástæðu til agn­ú­ast út í þessa hátíð. Skilur ekki til­gang­inn með henni þar sem for­dómar gagn­vart hinsegin fólki séu á und­an­haldi í sam­fé­lag­inu. Hátíðin sé í raun og veru bara tíma­skekkja.

Á meðan stór hluti þjóð­ar­innar fagnar ger­ist það hins vegar nán­ast und­an­tekn­ing­laust á hverju ári að fámennur hópur fólks sér ástæðu til agn­ú­ast út í þessa hátíð.

Vissu­lega er rétt að rétt­inda­bar­átta hinsegin fólks hér­lendis síð­ustu ára­tugi hefur skilað árangri, eins og sést meðal ann­ars á því hvernig við­horfið í garð þess hefur almennt batnað og sömu­leiðis laga­leg staða vissra hópa undir hinni svoköll­uðu regn­hlíf. For­síðu­við­tal Mannlífs í dag sýnir hins vegar ræki­lega svart á hvítu að enn er langt í land að hinsegin fólk njóti sömu mann­rétt­inda og aðrir á Íslandi.

„Ég var að labba heim að kvöld­lagi þegar strákar á vespu keyra alveg upp að mér og reyna að sparka mig niður.“ Þannig lýsir annar við­mæl­and­inn Sæborg Ninja Guð­munds­dóttir óhugn­an­legu atviki sem átti sér stað í hverf­inu sem hún býr í, en umræddir strákar veitt­ust að henni ein­göngu vegna þess að hún er trans kona.

Hinn við­mæl­and­inn, Úlfar Viktor Björns­son, hefur upp­lifað sinn skerf af ofbeldi en í vetur greindi Úlfar frá því á Facebook hvernig ókunn­ugur maður kýldi hann í miðbæ Reykja­víkur fyrir það eitt að vera hommi. Úlfar segir atvikið hafa verið það fyrsta þar sem hann var beittur lík­am­legu ofbeldi en and­legt ofbeldi og áreiti hefur verið nán­ast dag­legt brauð og Sæborg Ninja hefur jafn­hrika­lega sögu að segja.

Úlfar og Sæborg vona að með því að stíga fram opni þau á nauð­syn­lega umræðu um for­dómana og ofbeldið sem hinsegin fólk verður enn fyrir á Íslandi þrátt fyrir bætta stöðu. Bæði telja þau Hinsegin daga og Gleði­göng­una vera nauð­syn­lega í því sam­hengi, því hátíðin sé ekki aðeins haldin til að fagna þeim sigrum sem hafa áunn­ist í rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks heldur líka til að vekja athygli á því mis­rétti og aðkasti sem það verður enn fyrir á Íslandi. Nokkuð sem vert er að hafa í huga, bæði þegar tekið er þátt í fagn­að­ar­lát­unum og eins þegar farið er að efast um til­veru­rétt þess­arar hátíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi