Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Áreitt og lamin

Sæborg Ninja Guð­munds­dóttir og Úlfar Viktor Björns­son segja enn langt í land að hinsegin ein­stak­lingar njóti sömu mann­rétt­inda og aðrir á Íslandi þótt staðan hafi batnað síð­ustu ár. Sjálf upp­lifa þau áreiti nán­ast alla daga árs­ins og hafa lent í lík­ams­árásum vegna þess eins að vera hinsegin.

Áreitt og lamin
|||
Sæborg segir trans­fó­bíu grass­er­andi í sam­fé­lag­inu og að svo virð­ist sem fólk almennt virði ekki per­són­u­rými trans­fólks.

Hinsegin dagar eru í fullum gangi, bær­inn iðar af lífi og litum og allir brosa út að eyrum. Á morgun munu, ef að líkum lætur, þús­undir fólks safn­ast saman í mið­bænum til að fylgj­ast með Gleði­göng­unni árlegu sem orðin er í huga margra að hápunkti sum­ars­ins. En erum við komin eins langt í rétt­indum hinsegin fólks og gjarna er haldið fram? Svarið við því er blákalt nei sam­kvæmt við­mæl­endum Mannlífs, Sæborgu Ninju Guð­munds­dóttur og Úlfari Viktori Björns­syni. Sem hinsegin fólk upp­lifa þau niðrun og áreiti nán­ast alla daga árs­ins, bæði hafa þau lent í lík­ams­árásum vegna þess eins að vera þau sjálf og þau vilja leggja áherslu á að gangan sé ekki ein­ungis til að fagna áunnum rétt­indum heldur ekki síður til þess að minna á hve langt er í land að hinsegin ein­stak­lingar njóti sömu mann­rétt­inda og aðrir.

Per­sónu­helgi fólks sem er „öðru­vísi“ ekki virt
Sæborg Ninja Guð­munds­dóttir kom út sem trans kona fyrir einu og hálfu ári og hefur síðan upp­lifað hót­anir um ofbeldi, ágengar spurn­ingar frá fólki sem hún þekkir ekki neitt, óum­beðnar athuga­semdir um útlit sitt, óvið­eig­andi snert­ingar og það hefur verið hrópað á eftir henni út á götu. Hún segir trans fóbíu grass­er­andi í sam­fé­lag­inu og svo virð­ist sem fólk almennt virði ekki per­són­u­rými trans fólks. Ofbeldið hófst um leið og hún fór að tala um það við þáver­andi vin sinn að henni fynd­ist henni ekki hafa verið úthlutað réttum lík­ama.
„Þetta byrj­aði fyrir nokkrum árum í sam­ræðum við mann sem er ekki lengur vinur minn,“ útskýrir Sæborg. „Við vorum í svona trans­húmanískum pæl­ingum og ég lét í ljós þá ósk að fá nýjan lík­ama sem mér fynd­ist passa mér. Hann spurði þá strax hvað ég myndi gera ef hann gæfi mér þennan nýja lík­ama og myndi síðan binda mig niðri í kjall­ara og nauðga mér? Ég reyndi að kom­ast út úr þessum sam­ræðum, fannst þetta ógeðs­legt, en hann hélt áfram að suða og spyrja hvað ég myndi gera í því? Ég var mjög sjokkeruð en þegar ég sleit þessum vin­skap og sagði örfáum öðrum vinum frá þessu þá trúðu þeir mér ekki. Þetta varð til þess að ég dró það í ár að koma út úr skápnum.“
Sæborg seg­ist lengi hafa vitað að hún væri ekki í réttu hlut­verki en það hafi tekið hana langan tíma að fá leyfi hjá sjálfri sér til að sætt­ast við það og koma út. Það gerði hún loks þegar hún var þrí­tug og við­brögð umhverf­is­ins voru ekki jákvæð.

„Ég hef jafn­vel lent í því á dag­inn þegar ég er að ganga niðri í bæ að ókunn­ugt fólk kemur upp að mér og fer að káfa á mér.“

„For­eldrar mínir hættu eig­in­lega bara að tala við mig,“ segir hún. „Ég hef ekki farið í heim­sókn til þeirra í meira en ár og ekk­ert heyrt í mömmu en pabbi lætur í sér heyra af og til. Yngri systir mín var hins vegar alveg sátt við þetta og sömu­leiðis sonur minn sem er fjórtán ára. Ég var mest stressuð að tala um þetta við hann en hann kippti sér ekk­ert upp við það, spurði bara hvort við ættum ekki að fara að horfa á DVD.“

Hrædd við að fara út
Sæborg er ekki á því að umræðan um það hvað allt sé æðis­legt í mál­efnum hinsegin fólks á Íslandi eigi við rök að styðj­ast. Stuttu eftir að hún kom út varð hún til dæmis fyrir til­raun til nið­ur­keyrslu skammt frá heim­ili sínu í Breið­holt­inu.
„Ég var að ganga heim að kvöld­lagi þegar strákar á vespu keyrðu alveg upp að mér og reyndu að sparka mig niður. Sem betur fer hittu þeir ekki almenni­lega en ég átti mjög erfitt með að fara út á kvöldin lengi eftir þetta. Það er svo erfitt að eiga von á svona árásum frá til­fallandi fólki í nán­asta umhverfi manns.“
Sæborg seg­ist líka löngu vera hætt að fara niður í bæ á kvöldin, hvað þá á djam­mið.
„Meira að segja á skemmti­stöðum sem gefa sig út fyrir að vera vin­sam­legir hinsegin fólki verður maður fyrir alls kyns óvið­eig­andi fram­komu. Fólk sem kemur upp að manni á barnum og til­kynnir manni að maður sé fárán­legur, eða eitt­hvað þaðan af verra, upp úr þurru. En það er ekki bara bundið við skemmti­stað­ina, ég hef jafn­vel lent í því á dag­inn þegar ég er að ganga niðri í bæ að ókunn­ugt fólk kemur upp að mér og fer að káfa á mér. Það virðir ekki per­sónu­helg­ina þegar trans­fólk á í hlut. Ég var alltaf opin og til í að spjalla við fólk þótt ég þekkti það ekki en núna fer ég ekki út án þess að vera með sól­gler­augu og heyrn­ar­tól og gefa ræki­lega til kynna að ég vilji engin sam­skipti.“

„Fólk vill bara tala um kyn­færin á mér“
Stuðn­ings­netið í kringum Samtökin ’78 hefur reynst Sæborgu vel og hún seg­ist ekki vita hvar hún væri stödd and­lega án þess. En vantar ekki meiri fræðslu um mál­efni trans fólks úti í sam­fé­lag­inu?
„Ég held að fræðsla eins og í kynja­fræði í grunn­skólum sé svaka­lega gott fyrsta skref,“ segir Sæborg. „En því miður finnst mér miðað við mín sam­skipti við fólk að það bara vilji ekki læra. Það myndi skemma þá afmennsk­andi umræðu sem er í gangi að kynna sér málið. Það er til dæmis enda­laust ergj­andi að fyrir stóran hóp fólks virð­ist það að vera trans ein­göngu snú­ast um kyn­færi. Ég veit ekki hversu oft ég hef fengið spurn­ing­una hvað ég ætli að gera við typpið, eins og það sé það eina sem skiptir máli. Fólk spyr mig ekki hvernig mér líði, hvernig hafi gengið, hverju það að koma út hafi breytt fyrir mig, það vill bara tala um kyn­færin á mér. Það er svaka­lega ergj­andi og ótrú­lega mikil til­finn­inga­leg orka fer í það eitt að reyna að útskýra hvers vegna þetta er óvið­eig­andi spurn­ing. Fólk fer í vörn og seg­ist bara vera for­vitið, en leiðir ekki hug­ann að því að það myndi aldrei spyrja sískynja ókunn­uga mann­eskju um kyn­færin á henni [inn­skot blaða­manns: sís er lýs­ing­ar­orð og for­skeyti sem er notað um fólk sem upp­lifir sig á þann hátt að það til­heyri því kyni sem því var úthlutað við fæð­ingu, heim­ild www.otila.is]. Af því að ég er „öðru­vísi“ virð­ast almennar umgengn­is­venjur ekki gilda um mig.“

Margir gef­ast hrein­lega upp
Spurð hvernig henni finn­ist heil­brigð­is­kerfið standa sig gagn­vart trans­fólki dregur Sæborg við sig svarið.
„Fólkið í trans teymi Land­spít­al­ans gerir sitt besta og þar er margt gott fólk, en lög­gjöfin er enn þá fárán­leg. Það er nátt­úr­lega ótrú­legt að það skuli enn þá þurfa að fara í geð­mat hjá geð­lækni áður en okkur er leyft að hefja með­ferð. Það er löngu búið að fjar­lægja það úr öllum við­ur­kenndum lækna­tíma­ritum að það að vera trans sé geð­sjúk­dómur, en það er enn stefnan hér­lendis. Það væri mik­ill munur ef þeim lögum væri breytt. Ég hitti yfir­lækn­inn í trans teym­inu tvisvar og spurn­ing­arnar sem ég fékk sner­ust aðal­lega um nær­fötin mín og kyn­líf mitt, á meðan hann strauk á sér lærin. Það er engan veg­inn efst í mínum huga en ég held að þetta sé ein­hver arfur frá trans­sexúal­ism­anum sem er auð­vitað löngu úrelt við­mið. Ég get auð­vitað ekki talað út frá reynslu ann­ars fólks en ég hef heyrt svip­aðar sögur frá öðrum. Og til þess að gera þetta enn erf­ið­ara þá þarf þessi sami geð­læknir að gefa sitt sam­þykki fyrir öllu sem ég fer í gegnum í með­ferð­inni. Hann er enn hlið­vörður kerf­is­ins og getur neitað fólki um með­ferð eftir því sem honum sýn­ist. Það er ógn­vekj­andi og ég held að þeir sem eru ekki nógu dug­legir að berj­ast fyrir því að fá að halda áfram í ferl­inu lendi oft í því að gef­ast hrein­lega upp. Ég hef til dæmis þurft að hringja mörgum sinnum til að ítreka beiðnir um næstu skref í með­ferð­inni, ef ég hefði ekki gert það væri ég enn á byrj­un­ar­reit.“

„Ég ætla ekki að móðga þig en …“
Úlfar Viktor Björns­son hefur, líkt og Sæborg, verið beittur ofbeldi en hann komst í frétt­irnar í vetur þegar alls ókunn­ugur maður barði hann úti á götu fyrir það eitt að vera hommi. Hann var á gangi yfir gang­braut­ina í Lækj­ar­götu þegar maður sem hann hafði aldrei séð vatt sér að honum og spurði hvort hann væri hommi. Þegar Úlfar svar­aði ját­andi gerði mað­ur­inn sér lítið fyrir og kýldi hann með krepptum hnefa í and­liti. Úlfar ákvað að kæra ekki, þessi maður ætti greini­lega bágt, en hvernig hefur honum liðið síðan og hver voru við­brögð umhverf­is­ins við umfjöll­un­inni um ofbeldið? Hafði atburð­ur­inn ein­hver langvar­andi áhrif?

„Fólk er enn þá slegið úti á götu og úthúðað fyrir að vera ekki gagn­kyn­hneigt, sem er alveg fárán­legt að við­gang­ist enn árið 2018,“ segir Úlfar.

„Nei, ég get ekki sagt það,“ svarar Úlfar, en hugsar sig svo um. „Í svona tvo mán­uði eftir á var ég dálítið á varð­bergi þegar ég var einn úti að ganga í mið­bænum, en það er búið. Ég fékk aðal­lega góð við­brögð við umfjöll­un­inni, þótt auð­vitað væru alltaf ein­hverjir inn á milli sem spurðu hvers vegna ég hefði ekki bara mannað mig upp og kýlt hann til baka og að ég væri bara að væla í fjöl­miðlum sem væri engin ástæða til af því við værum komin svo langt í rétt­inda­málum hinsegin fólks.“
Úlfar segir ástæðu þess að hann sagði frá þessu í fjömiðlum vera þá að hann hafi langað til að fólk gæti dregið lær­dóm af atvik­inu.
„Ég hélt sjálfur að svona gerð­ist ekki í dag og var alls ekki við­bú­inn því að lenda í ein­hverju svona,“ segir hann. „Ég ákvað að kæra mann­inn ekki, þar sem hann er greini­lega á vondum stað í líf­inu en ég vildi vekja athygli á því að þetta er veru­leiki sem sam­kyn­hneigðir á Íslandi búa við enn í dag.“

Alltaf orðið fyrir skít­kasti
Úlfar segir atvikið hafa verið það fyrsta þar sem hann var beittur lík­am­legu ofbeldi, en and­legt ofbeldi og áreiti hafi alltaf verið nán­ast dag­legt brauð.
„Maður er alltaf að fá eitt­hvað skít­kast frá fólki sem sam­þykkir mann ekki eins og maður er,“ útskýrir hann rólegur. „Það hefur alltaf verið þannig. Í grunn­skóla þurfti maður alltaf að vera með brynju, þótt ég væri ekki kom­inn út á þeim tíma var engin mis­kunn gefin. Þar er maður kall­aður öllum illum nöfnum fyrir að vera „stelpu­strákur“.
Úlfar kom ekki út úr skápnum fyrr en hann var nítján ára, en ástæða þess var meðal ann­ars sú að hann var sem skiptinemi í kaþ­ólskum drengja­skóla í Argent­ínu og þar var ekk­ert svig­rúm gefið fyrir sam­kyn­hneigða.
„Það hefði ekki verið tekið vel í það í því umhverfi,“ segir hann og hlær. „Þannig að ég kom ekki út fyrr en eftir að ég kom aftur heim árið 2012.“

Fékk þau komment að hann ætti ekki skilið að vera til
Spurður hvað honum finn­ist um fra­s­ann vin­sæla að Ísland sé komið svo langt í rétt­inda­málum hinsegin fólks að engin ástæða sé fyrir það að kvarta, hristir Úlfar höf­uðið.
„Við erum svo föst í því að við séum komin svo langt miðað við aðrar þjóðir að fólk sem er ekki mikið að pæla í þessu sér ekki for­dómana sem eru til staðar. Þeir eru svo lúmskir og birt­ast á stöðum sem almenn­ingur sér ekki. Við erum að drag­ast aftur úr öðrum þjóðum akkúrat núna og ég held að það sé meðal ann­ars vegna þess að við erum svo gjörn á að leiða hluti hjá okkur. Það eru meira að segja for­dómar innan homma­sam­fé­lags­ins sjálfs. Þegar maður fær þessi enda­lausu komment um það hvað maður er lít­ils virði fer maður að trúa því sjálfur og efast um sjálfan sig. Ég get nefnt þér nýlegt dæmi. Ég var að vinna í félags­mið­stöð þar sem einn af drengj­unum kom út úr skápnum og er alveg opinn með það en fékk enda­laust af niðr­andi kommentum og skila­boðum. Hann kannski póstaði mynd af sér mál­uðum á Instagram og fékk þau komment að hann væri ógeðs­legur og ætti að drepa sig, hann ætti ekki skilið að vera til og svo fram­vegis. Hann sagði við mig að þegar hann fór lengst niður hafi hann verið far­inn að trúa því sjálfur að þetta væri satt og hann ætti ekk­ert erindi í þessum heimi. Hann er þrettán ára gam­all og þú getur ímyndað þér hvernig svona komment fara með hann. Þetta er það sem almenn­ingur sér ekki. Við erum vissu­lega komin langt miðað við hvar við vorum fyrir tíu til tutt­ugu árum en það eru bara komnir aðrir tímar og for­dóm­arnir birt­ast á öðrum stöðum en þá. Það er hægt að fela þá í gegnum tölv­una og fólk virð­ist halda að það geti sagt hvað sem er á meðan tölvu­skjár­inn skýlir því. Þetta er alls ekk­ert eins­dæmi, þetta er að ger­ast alls staðar í kringum okkur í dag. Því miður.“

Af hverju er móðgun að vera ég?
Sjálfur seg­ist Úlfar enn verða fyrir niðr­andi athuga­semdum við öll mögu­leg tæki­færi og allir sem hann þekki í hinsegin sam­fé­lag­inu hafi sömu sögu að segja.
„Jafnvel vel­vilj­að­asta fólk opin­berar for­dóma sína þegar það setur fyr­ir­vara á spurn­ing­una um það hvort maður sé sam­kyn­hneigður. „Ég ætla ekki að móðga þig, en ertu hommi?“ Af hverju ætti þessi spurn­ing að vera móðg­andi? Af hverju er það móðgun að vera það sem ég er? Það er þessi fyr­ir­vari sem er móðg­andi. Ég fékk þessa spurn­ingu oft áður en ég kom út, en neit­aði alltaf, og kannski var þetta við­horf partur af því hvað ég dró það lengi að koma út úr skápnum. Ég var hræddur við þessa for­dæm­ingu umhverf­is­ins.“

„Ég var að vinna í félags­mið­stöð þar sem einn af drengj­unum kom út úr skápnum … Hann póstaði mynd af sér mál­uðum á Instagram og fékk þau komment að hann væri ógeðs­legur og ætti að drepa sig.“

Úlfar vinnur sem þjónn, er í sál­fræði­námi í HR, er á leið í nám í förð­un­ar­fræðum auk þess að vinna annað slagið á félags­mið­stöðvum fyrir ung­linga, bæði í Sam­tök­unum ’78 og ann­ars staðar. Hann seg­ist alltaf vera mjög opinn um sam­kyn­hneigð sína og honum finn­ist eig­in­lega vanta fleira fólk sem sem vill fræða umheim­inum um ver­öld hinsegin fólks.
„Já, ég held við þurfum miklu meiri fræðslu um þessi mál,“ segir hann ákveð­inn. „Ég er alltaf til­bú­inn að svara spurn­ingum og deila minni reynslu ef fólk hefur áhuga og ég held við þurfum að vera vak­andi fyrir því að umræðan deyi ekki út í þessum draumi um hvað allt sé gott fyrir hinsegin fólk á Íslandi. Það er hættu­leg­ast.“

Sæborg Ninja Guð­munds­dóttir og Úlfar Viktor Björns­son.

Vonandi staðnar umræðan ekki

Gleði­gangan er í augum margra fyrst og fremst fjöl­skyldu­há­tíð og fögn­uður, sem Úlfar segir vera stór­kost­legt, en hann er á því að hún þurfi líka að standa fyrir annað og meira.
„Fólk sem ekki er tengt hinsegin sam­fé­lag­inu áttar sig kannski ekki á því hversu stutt við erum komin í bar­átt­unni, þannig að Hinsegin dagar og Gleði­gangan skipta gríð­ar­legu máli. Við erum að berj­ast fyrir mann­rétt­indum okkar, að fá þau virt eins og allir aðrir sam­fé­lags­þegnar. Það er ekki þannig í raun. Fólk er enn þá slegið úti á götu og úthúðað fyrir að vera ekki gagn­kyn­hneigt, sem er alveg fárán­legt að við­gang­ist enn árið 2018. Þess vegna er full ástæða til að halda þessa göngu. Við erum ekki bara að fagna því að vera komin þetta langt, við erum líka að vekja athygli á ástæð­unum fyrir því að við þurfum þessa göngu. Ég vona að ég lifi þann dag sem við þurfum ekki á þess­ari göngu að halda og ég er bjart­sýnn á það. Vonandi bara staðnar umræðan ekki það mikið að við drög­umst enn meira aftur úr, von­andi höldum við áfram að vinda upp á þessa jákvæðu þróun. Við þurfum svo sann­ar­lega á því að halda.“

Sæborg er virk í bar­áttu­málum trans­fólks, er gjald­keri TransÍs­lands, og hún ætlar að sjálf­sögðu að taka þátt í Gleði­göng­unni. En finnst henni þessi ganga enn þá þjóna til­gangi sínum?
„Ég held það, já,“ segir hún hugsi. „Þessar göngur byrj­uðu auð­vitað sem mót­mæli gegn mis­rétti sem hinsegin fólk er beitt og það er enn í gangi. Mér finnst líka gott að geta fagnað þeim árangri sem hefur náðst, þrátt fyrir allt. Það er mik­il­vægt vegna þess að það er svo auð­velt að missa damp­inn þegar maður ein­blínir bara á það sem eftir er að sigr­ast á, en ég held það sé líka mik­il­vægt að göng­urnar haldi áfram að vera mót­mæli og hjálpi til við að vekja athygli á því mis­rétti sem við verðum enn fyrir. Kerfið á Íslandi er trans­fó­bískt í eðli sínu og við þurfum að gera allt sem við getum til að vekja athygli á því og berj­ast gegn því.“

________________________________________________________________
Raun­veru­leg staða Íslands í rétt­indum hinsegin fólks
Goð­sögnin um Ísland sem hinsegin útópíu er lífseig en á hún við rök að styðj­ast? Á regn­boga­korti árs­ins er Ísland í 18. sæti yfir þau lönd sem best standa sig í að þoka rétt­inda­málum hinsegin fólks áfram og hefur ekki haldið í við nágranna­löndin, ekki síst hvað varðar rétt­indi trans­fólks og inter­sex-fólks.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina