Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Litríkur og flippaður kokteill á glimmerbarnum

Litríkur og flippaður kokteill á glimmerbarnum
||

Á barnum er hægt að blanda sér lit­ríkan kok­teil úr glimmeri, lím­miðum og skraut­steinum svo fátt eitt sé nefnt. Tara segir að glimmerið höfði til fólks á öllum aldri, bæði karla og kvenna.

„Þetta er í raun eins og nammi­bar, nema þetta er glimmer­bar,“ segir förð­un­ar­fræð­ing­ur­inn Tara Brekkan Pét­urs­dóttir. Tara hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum síð­ustu ár undir vöru­merk­inu Törutrix, þar sem hún kennir áhuga­sömum að mála sig á ein­faldan hátt. Þá kennir hún einnig förðun og fram­leiðir snyrti­vörur undir eigin nafni. Nýjasta upp­á­tæki Töru er að bjóða upp á fyrr­nefndan glimmer­bar, sér­bú­inn vagn með glimmeri, steinum, lím­miðum og ýmsu skrauti sem hún getur flakkað með á milli við­burða.

Þekktur glimmerbrjálæðingur

„Ég er þekkt fyrir að vera glimmer­brjál­æð­ingur,“ segir Tara og hlær.

„Ef vinir mínir sjá flott glimmer ein­hvers staðar þá senda þeir strax myndir á mig. Ég fann hins vegar aldrei glimmer sem mér fannst nógu flott þannig að ég hann­aði mitt eigið. Ég legg mikið upp úr því að vörur frá mér séu vand­aðar þannig að glimmerið, og allt annað skraut í glimmer­barnum, er án eit­ur­efna og umhverf­is­vænt. Síðan fannst mér hug­myndin um að vera með bar­inn á vagni sem ég gæti farið með í partí sniðug þannig að ég lét slag standa,“ bætir hún við.

Tara verður með alls kyns skraut á barnum.

Verið er að leggja loka­hönd­ina á fyrr­nefndan glimmervagn en Tara ætlar ekki að láta staðar numið þar. „Í fram­hald­inu langar mig að útbúa sér­stakan glimmer­bíl, með glimmer­stöfum og neon-skiltum. Þá er hug­myndin að fólk geti komið við í bílnum og látið mála sig. Ég ætla að búa til eitt­hvað skemmti­legt í kringum bíl­inn og ég er mjög spennt fyrir því. Ég hef aldrei séð neitt líkt því sem ég er að plana.“

Íslendingar þurfa glimmer í lífið

Fyrir stuttu opn­aði Tara sína fyrstu Törutrix-verslun á Lauga­vegi 51, en versl­unin er inni í 24 Iceland og Massän-versl­un­inni. Eins og með glimmer­bar­inn er Tara með stóra við­skipta­drauma.

„Mig langar í fram­tíð­inni að opna versl­anir um allt land,“ segir Tara en eig­in­maður hennar, Hlynur Örn Kjart­ans­son, er einnig við­skipta­fé­lagi hennar. „Hann er með mér í öllu. Hann gerir heima­síð­una og hannar allt í kringum þetta. Við getum gert allt saman og það er svo þægi­legt. Við þurfum engan annan,“ segir Tara og bætir við að hún elski að vinna fyrir sig sjálfa. „Ef maður vinnur við það sem maður elskar þá vinnur maður aldrei neitt því það er alltaf gaman.“

Þó að aðeins nokkrir dagar séu síðan Tara byrj­aði að aug­lýsa glimmer­bar­inn á sam­fé­lags­miðlum hafa pant­anir og fyr­ir­spurnir hrúg­ast inn. Á þjóð­há­tíð­ar­deg­inum,17. júní, ætlar Tara að vera með ein­hvers konar útgáfu af barnum fyrir utan versl­un­ina á Lauga­veg­inum og stefnir enn fremur að því að vera á ein­hverjum úti­há­tíðum í sumar, þar á meðal Þjóð­há­tíð í Eyjum. En telur hún að Íslend­ingar þurfi allt þetta glimmer í líf sitt?

„Já, þetta er svo gaman. Ég held að glimmer geri lífið betra. Það verða allir svo glaðir og flipp­aðir þegar þeir eru komnir með smá­vegis glimmer á sig,“ segir Tara og bætir við að glimmer­á­hug­inn ein­skorð­ist ekki bara við kven­fólk. „Ó nei, strák­arnir eru alveg jafn­vit­lausir í glimmer og stelp­urnar. Og bara fólk á öllum aldri.“
Glimmer hressir, bætir og kætir.

Tara á samfélagsmiðlum

Snapchat: tara_makeupart
Facebook: @torutrix.is
Instagram: @torutrix.is

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag