Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bóndinn sem sló í gegn á samfélagsmiðlum

Hvernig dettur ungu fólki í hug að ger­ast bændur í dag? Mannlíf hitti að máli ungan bónda sem hefur slegið í gegn á Snapchat. Viðtalið er það fjórða og síð­asta í greina­röð Mannlífs um unga bændur á Íslandi.

Bóndinn sem sló í gegn á samfélagsmiðlum
||
Axel Sæland sló í gegn á sam­fé­lags­miðlum í fyrra þegar hann sá um Snapchat-reikn­ing ungra bænda, ung­ur­bondi.

Axel Sæland sló í gegn á sam­fé­lags­miðlum í fyrra þegar hann sá um Snapchat-reikn­ing ungra bænda, ung­ur­bondi. Margir spurðu þó sömu spurn­ingar og við­talið hefst á: Eru blóma­bændur alvöru­bændur? „Ég var spurður að þessu og því hvort ég væri nógu ungur til að vera ungur bóndi,“ segir Axel og hlær, en hann er fæddur 1980. „Í þess­ari grein er ég reyndar mjög ungur, það er því miður ekki mikil nýliðun í grein­inni. En blóma­bændur eru nátt­úr­lega hluti af bænda­stétt­inni, við erum í Bænda­sam­tök­unum og erum með okkar hags­muna­sam­tök sem heita Samtök garð­yrkjubænda svo að sjálf­sögðu erum við bændur þótt við séum ekki með stórar jarðir, tún og beiti­lönd. Við erum með lög­býli og gróð­ur­hús, sem er bara ann­ars konar ræktun. Mörg okkar vinna einnig í takt við árs­tíð­irnar þótt við hér á Espiflöt stílum inn á jafna sölu allt árið.“

Hér verður Axel dálítið vand­ræða­legur. „Með jafnri sölu þá á ég svo­lítið við jarð­ar­farir, ég veit ekki hvort maður á að segja það en það er stöð­ugur bis­ness. Það eru engar stórar sveiflur í því hér á Íslandi því við erum frið­sæl þjóð og dílum sem betur fer hvorki við far­sóttir né stríð. Eins manns dauði er ann­ars brauð, eins og þar stendur, og þetta er nátt­úr­lega það sem fólk vill í jarð­ar­förum, að hafa hlý­legt umhverfi og blómin hafa mikið að segja þar. En svo eru það stór­mark­að­irnir, sem taka alltaf stærri hluta af mark­aðnum. Þar eru þessir til­búnu litlu vendir sem fólk grípur með sér og aðgengið er alltaf að batna að því leyti, þannig að fólk gerir minna af því að fara í blóma­búð til að kaupa blóm handa sjálfu sér. Þegar fólk fer í blóma­búð er það fyrst og fremst að kaupa blóm til að gefa öðrum, fyrir sam­kvæmi, skírn eða brúð­kaup. En blóm fyrir sjálft sig kaupir fólk í stór­mörk­uðum og einka­neyslan hefur auk­ist und­an­farin ár.“

„Með jafnri sölu þá á ég svo­lítið við jarð­ar­farir, ég veit ekki hvort maður á að segja það en það er stöð­ugur bis­ness.“

Axel er meira og minna alinn upp í blóma­brans­anum, afi hans og amma stofn­uðu Espiflöt í Reyk­holti árið 1948 en stund­uðu þá meira ræktun á græn­meti. „Það var svo upp úr 1977 sem fók­us­inn færð­ist aðal­lega yfir á afskorin blóm. Ég er fæddur og upp­al­inn í þess­ari grein þótt ég hafi prófað ýmis­legt um ævina og árið 2006 tókum ég og konan mín þá ákvörðun að ganga inn í fyr­ir­tækið með for­eldrum mínum. Ég er síðan orð­inn meiri­hluta­eig­andi og er að leyfa for­eldrum mínum að stíga til hliðar. Þau vinna þó enn hérna, enda hafa þau ánægj­una og starfs­ork­una enn og þá reynir maður að nýta sér það sem lengst, þeirra þekk­ingu.“

Engin hætta á að íslensk blóm deyi út

Að sögn Axels hefur svipuð þróun orðið í blóma­rækt og öðrum land­bún­að­ar­greinum, búin stækka og þeim fækkar. „Í kringum 1985 voru yfir 40 blóma­bændur á Íslandi en við erum rétt um tíu í dag. Hins vegar fram­leiðum við meira en þá var, svo það er engin hætta á að íslensk blóm deyi út, langt í frá.“

Að Espiflöt er stunduð blönduð ræktun, þannig að Axel ræktar ekki bara eina teg­und af blómum eins og sumir. „Ég er með fimm meg­in­teg­undir í ræktun, ger­beru, rósir, liljur, kursa og sól­li­lju. Ástæðan fyrir því að ég er með bland­aða ræktun er sú að ég bý til alla blóm­vend­ina hér á staðnum og sendi frá mér. Mínir helstu við­skipta­vinir eru stór­mark­aðir, bens­ín­stöðvar og stóru blóma­kaup­menn­irnir, eins og Blómaval og Garð­heimar, sem bjóða upp á til­búna blóm­vendi. Hinn hlut­inn af fram­leiðsl­unni, sá flott­asti, er skreyt­inga­vara og hana kaupa blóma­búðir til að nota í skreyt­ingar og slíkt. Öll okkar ræktun fer hins vegar í Grænan markað sem er heild­sala sem sér um að dreifa og selja okkar fram­leiðslu.“

Garð­yrkju­stöðin að Espiflöt er rétt tæpir 7000 fer­metrar að stærð og þar starfa að jafn­aði 14 manns. Axel við­ur­kennir að að því leyt­inu sé blóma­bóndi öðru­vísi en „hefð­bund­inn“ bóndi. „Jú, ég er alltaf með hóp af fólki í vinnu, allt árið um kring, og fram­leiðslan er stöðug allt árið. Svo þarf ég að bæta við tveimur auka­mann­eskjum rétt fyrir konu­dag og stundum í maí líka, þegar mæðra­dag­ur­inn og útskrift­irnar eru.“

Að Espiflöt er stunduð blönduð ræktun, þannig að Axel ræktar ekki bara eina teg­und af blómum eins og sumir.

Árið 2016 fram­leiddi Axel 1,6 millj­ónir blóma og gefur sér að fram­leiðslan hafi auk­ist síðan þá. „Ég er bara ekki búinn að taka saman töl­urnar fyrir 2017 en ég er alveg  viss um að það hafi verið aukn­ing. Ekki vegna þess að við séum að stækka heldur vegna þess að þekk­ingin er alltaf að batna og við náum að nýta hvern fer­metra betur. Ég gæti trúað því að í ár förum við nálægt því að fram­leiða 2 millj­ónir blóma.“

Það þarf víst ekki að hafa áhyggjur af offram­leiðslu því eft­ir­spurnin og salan á afskornum blómum er alltaf að aukast. „Fólk er farið að kaupa meira blóm til að hafa í vasa heima hjá sér, til að lífga upp á heim­ilið. Og blóm eru að koma meira inn í dag, þessi hreini stíll er svo­lítið að hverfa aftur, mínimal­ismi sem var mikið í tísku er aðeins á und­an­haldi og bæði potta­blóm og afskorin blóm eru svo­lítið að ryðja sér til rúms. Maður er far­inn að sjá þetta meira á veit­inga­húsum og bara heima hjá fólki,“ segir Axel og bætir kím­inn við að silki­blóm og gervi­túlíp­anar trufli hann ekk­ert, og lítil ógn sé í þeim.

Rómantíkin á bak við blómin kannski aðeins horfin

Eig­in­kona Axels, Heiða Pálrún Leifs­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur, er með­eig­andi í fram­leiðsl­unni en starfar ekki að jafn­aði við blóma­bú­skap­inn. Axel hlær þegar hann er spurður hvort hann færi kon­unni sinni blóm eða hvort þau séu orðin hvers­dags­legur hlutur fyrir þeim. „Ég veit eig­in­lega ekki hvernig ég á að svara þess­ari spurn­ingu. Við erum alltaf með blóm heima og til að byrja með fannst kon­unni það gaman – og henni finnst jú alltaf gaman að hafa blóm í kringum sig – en róm­an­tíkin á bak við það er kannski aðeins horfin. Hún veit orðið að þegar ég er að koma með mikið af blómum heim til að setja í vasa þá er ég fyrst og fremst að athuga hvernig þau standa og hvað þau gera því ég þarf stöðugt að vera að athuga hvernig blómin standa sig í vasa, ég vil að það séu gæði á bak við mína vöru og fólk verði ánægt með það sem það fær. Það kemur nátt­úr­lega fyrir að hún biður um að fá ein­hver ákveðin blóm heim og þá upp­fylli ég þá ósk en vana­lega er það frekar vís­inda­tengt þegar ég kem með blóm heim.“

Konu- og bónda­dag­ur­inn fara sömu­leiðis dálítið fyrir ofan garð og neðan hjá blóma­bænd­unum á Espiflöt. „Það eru svo stórir dagar í fram­leiðsl­unni hjá okkur að við höfum bara ekki haft tíma til að gleðja hvort annað þessa daga síð­ustu árin svo við reynum bara að nota aðra tíma árs­ins til að gera eitt­hvað saman. Þetta er bara ver­tíðin okkar!“

Sjá einnig: Bjart­sýnir nýbændur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi