Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Æskuvinkonur ætla að gera Ísland kvartlaust

Æskuvinkonur ætla að gera Ísland kvartlaust
|

Þuríður Hrund Hjart­ar­dóttir og Sólveig Guð­munds­dóttir taka sér banda­rískan prest til fyr­ir­myndar og reyna að hætta að kvarta og kveina í 21 dag sam­fleytt. Þær hafa fallið margoft á leið sinni til kvart­leysis en finna mikla breyt­ingu á sinni innri líðan.

„Það er skemmst frá því að segja að þessi áskorun hefur breytt lífi okkar beggja til hins betra, og allra sem standa okkur nærri. Að upp­götva það hversu mikið maður í raun kvartar og að hafa ein­falt og gott tæki til að vinna með það er ólýs­an­lega frá­bært í alla staði,“ segir Þuríður Hrund Hjart­ar­dóttir, alþjóða­mark­aðs­fræð­ingur og fram­kvæmda­stjóri hjá Icepharma.

Þuríður fór, ásamt Sólveigu Guð­munds­dóttur, iðn­hönn­uði og eig­anda Culiacan Mexican Grill, nýverið af stað með verk­efnið Kvart­laus. Markmið verk­efns­ins er ein­falt – að hætta að kvarta, en fyr­ir­mynd þess er verk­efnið A Complaint Free World, áskorun sem kemur úr smiðju Banda­ríkja­manns­ins Will Bowen.

„Í byrjun febr­úar sagði Sólveig mér frá snilld­ar­á­skorun sem prestur í Kansas fór af stað með fyrir nokkrum árum en það snýst um það að kvarta ekki í 21 dag sam­fleytt. Þessi áskorun hefur náð til yfir ell­efu milljón manna. Okkur fannst þetta svo frá­bær hug­mynd að við ákváðum að skora hvor á aðra og skuld­binda okkur að kom­ast í gegnum 21 dag,“ segir Þuríður en þær Sólveig hafa verið vin­konur síðan í níu ára bekk og þekkj­ast því mæta vel.

Fall er óumflýjanlegt

Will Bowen byggir hug­mynda­fræði sína á því að vís­inda­menn hafi sannað að ef maður nær að halda sömu hegðun eða mynstri í 21 dag sam­fleytt verði það að vana. Will þessi lét hanna sér­stök kvart­laus arm­bönd og gengur átakið út á það að færa arm­bandið frá öðrum úln­liðnum á hinn um leið og maður kvartar. Ef maður fellur, byrjar maður aftur á degi eitt í kvart­leysi. Sólveig og Þuríður selja nú þessi arm­bönd á vef­síðu sinni kvart­laus.is, en Þuríður bætir við að skil­grein­ingin á kvarti sé mjög nið­ur­njörvuð í þess­ari hug­mynda­fræði.

„Það er sem sagt bannað að kvarta og bannað að tala illa um aðra. Will segir að þegar að maður slúðrar sé maður í raun að segja að maður sé betri en við­kom­andi og það er flokkað sem kvart,“ segir Þuríður. Hún bætir við að þetta sé alls ekki eins ein­falt og það hljómi. „Það skal tekið fram að þetta er ekki ein­falt og við höfum fallið ótal oft á leið­inni, ég síð­ast í gær,“ segir Þuríður og hlær. „En það er hluti af þessu. Það er ekki séns að kom­ast í gegnum þetta án þess að falla á leið­inni.“

Betri samskipti og meiri ró

Banda­ríski guð­faðir kvart­leysis segir það taka að með­al­tali fjóra til sex mán­uði fyrir fólk að hætta að kvarta í 21 dag sam­fleytt. Það liggur því bein­ast við að spyrja Þuríði hvert mark­mið þess­ara íslensku læri­sveina sé?

„Við viljum gera Ísland kvart­laust fyrir árs­lok. Verðum við ekki að hugsa stórt? Þó að við myndum ekki ná nema tíu pró­sentum af þjóð­inni yrði allt svo miklu betra,“ segir hún og bætir við að kvart­leysið hafi haft góð áhrif á einka­lífið, þrátt fyrir bakslögin.

„Við höfum verið að þessu síðan í febr­úar og finnum báðar að það er allt önnur stemn­ing inni á heim­ilum okkar. Það eru allir glað­ari, meiri ró yfir heim­il­is­fólk­inu og á heild­ina litið erum við betri í sam­skiptum, þó að sjálf­sögðu sjóði stundum upp úr. Það ger­ist samt sjaldnar en áður og það er það sem skiptir máli. Þegar maður eyðir minni tíma í að kvarta, hefur maður meiri tíma til að vera glaður.“

Arm­böndin sem eiga að hjálpa til við að hætta að kvarta.

Kvart og kvein

* Með­al­mað­ur­inn kvartar 15 til 20 sinnum á dag.
* Rann­sóknir hafa sýnt að fólk getur orðið reið­ara ef það kvartar mikið.
* Rann­sóknir hafa einnig sýnt að það að pústa við vin getur valdið mik­illi streitu bæði hjá þeim sem pústar og þeim sem hlustar.
* Kvart og nöldur er oft ofar­lega á blaði þegar kannað er hver helstu vanda­mál innan sam­banda séu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag