Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brenglað þegar fólk getur breytt sér í símanum

Brenglað þegar fólk getur breytt sér í símanum
||||||

Íslend­ingar eru farnir að leita til lýta­lækna með síaðar, eða filt­er­aðar, sjálfur (sel­fie) og vilja líta út eins og sín síaða sjálfa. Íslenskur lýta­læknir segir þessa þróun skapa vanda.

„Það er til í dæm­inu að fólk komi með mynd af sér sjálfu sem búið er að ýkja eða breyta en það er mjög sjald­gæft enn þá, sem betur fer. En ég held að þessum til­vikum eigi eftir að fjölga,“ segir Ágúst Birg­is­son lýta­læknir.
Ágúst Birg­is­son.

Frétta­síðan Huffington Post fjall­aði nýverið um þá stað­reynd að fólk vest­an­hafs, helst konur, væri farið að leita til lýta­lækna með síaðar, eða filt­er­aðar, sjálfur og vill líta út eins og síaða sjálfan. Í grein­inni var þetta fyr­ir­bæri kallað Snapchat Dysmorphia sem mætti þýða sem Snapchat-lýta­röskun.

Ágúst segir þessa þróun skapa vanda, þar sem síur á sam­fé­lags­miðlum gefa ekki rétta mynd af því sem hægt er að gera þegar lagst er undir hníf­inn. „Þetta skapar vanda því þegar þú ert að breyta myndum á sam­fé­lags­miðlum eða öðrum for­ritum, þá ertu ekki að gera raun­veru­lega áætlun. Þannig að í raun er verið að vekja vænt­ingar umfram það sem hægt er að gera, og það er kannski mitt vanda­mál. Það er erfitt þegar ein­stak­lingur er með ímynd af því hvernig hann vill vera en þessi ímynd verður ekki að raun­veru­leika því ekki er hægt að fram­kvæma breyt­ing­arnar. Það er helsta vanda­málið. Við lýta­læknar styðj­umst við for­rit þar sem við getum breytt fólki til að sýna því hvernig það lítur út fyrir og eftir aðgerð en þau for­rit eru sér­stak­lega gerð fyrir lýta­lækna. Þegar fólk getur breytt sér sjálft í sím­anum er þetta orðið mjög brenglað,“ segir hann.

Sýna myndir af þekktum Snapchat-konum

Ágúst vill ítreka að það sé afar sjald­gæft að fólk mæti til hans með síaðar sjálfs­myndir af sam­fé­lags­miðlum en algeng­ara er að fólk komi með myndir af frægu fólki til að sýna hvernig það vilji líta út.

„Það er mjög algengt, til dæmis í sam­bandi við brjósta­stækkun eða eitt­hvað svo­leiðis. Þá eru konur með ákveðna hug­mynd um hvernig þær vilja líta út og hvaða stærð þær vilja fara upp í. Þær koma með mynd af ein­hverri stjörnu og vilja fá eitt­hvað svipað, sem getur verið hjálp­legt til að finna út hverju fólk er að leita eftir. Mynd segir oft mörg orð. En auð­vitað er pínu­lítið öðru­vísi að sjá þetta á öðrum en á sjálfum sér og fólk er með­vitað um það. Það gerir sér grein fyrir að þetta er annar lík­ami en sinn eigin og því verður þetta ekki eins. Þar liggur helst mun­ur­inn á því að sýna mynd af öðrum en ekki mynd af sjálfum sér.“

Kim Kar­dashian síaði sjálfu með barni sínu fyrir stuttu.

Annar lýta­læknir, Guð­mundur M. Stef­áns­son, segir sífellt meira bera á þessu meðal ungra kvenna. „Það hefur borið á því síð­ustu ár, einkum meðal ungra kvenna, að sumar þeirra leita álits okkar á breyt­ingum sem þær óska eftir og sýna myndir af þekktum Snapchat-konum sem þær vilja líkj­ast. Þetta er ekki algengt, en þó ber meira og meira á þessu.“

Líkamslýtaröskun ótrúlega sjaldgæf

Eftir til­komu snjall­síma hefur því verið haldið fram að notkun sam­fé­lags­miðla gæti leitt til lík­ams­lýta­rösk­unar, eða body dysmorphic dis­order. Ein­stak­lingar sem þjást af þess­ari röskun eru mjög upp­teknir af ákveðnum lík­ams­hlutum og þrá oft á tíðum að láta laga þá á ein­hvern hátt. Rann­sóknir í Banda­ríkj­unum hafa sýnt fram á að 1,7% til 2,4% þjóð­ar­innar séu haldin þess­ari röskun.

Ágústi finnst ótrú­legt að lík­ams­lýta­röskun sé ekki algeng­ari sam­fara auk­inni snjall­síma­notkun. „Body dysmorphic dis­order er ótrú­lega sjald­gæft miðað við alla þá umfjöllun og þá miðla sem við höfum. Þessi röskun var til löngu áður en snjall­símar komu til sög­unnar en mér finnst ekki mikil aukn­ing á þessum sjúk­dómi með snjall­síma­væð­ingu, sem er að sjálf­sögðu mjög jákvætt.“

Hann segir að þó að mikið sé talað um að fólk sem leiti til lýta­læknis þrái að líta út eins og ein­hver allt annar, þá séu flestir sem leiti til lýta­lækna að gera það vegna dýpri ástæðna. „Fólk kemur til lýta­lækna út af mjög mis­mun­andi þörfum og leitar að allt öðru en að líkj­ast ein­hverjum fyr­ir­myndum úti í heimi. Það getur verið að augn­lok séu of þung og þurfi að laga það, að brjóst hafi horfið við með­göngu eða brjósta­gjöf eða að konur séu með slappan maga eftir fjórar með­göngur eða mikið þyngd­ar­tap. Þessar ýkjur sem talað er um eru sem betur mjög sjald­gæfar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi