Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég hef alltaf litið á þessi börn sem mín eigin“

„Ég hef alltaf litið á þessi börn sem mín eigin“
||||

„Árið 2017 var æðis­legt en líka afar skrýtið. Það var alla­vega mjög öðru­vísi,“ segir leik­ar­inn Jóel Sæmunds­son.

Jóel frum­sýndi ein­leik­inn Hell­is­bú­ann í sept­em­ber á síð­asta ári, land­aði stóru hlut­verki í bíó­mynd og létti sig um tíu kíló á sex­tíu dögum. Hann gerði þetta allt ásamt því að hugsa um börnin sín þrjú, en hann gekk tveimur af börn­unum í föð­ur­stað þegar hann kynnt­ist fyrr­ver­andi kær­ustu sinni. Við heyrðum í Jóel og fórum yfir þetta magn­aða ár með honum.

Engin karlrembusýning

„Ég var búinn að lesa leik­ritið og var lengi búið að langa að leika Hell­is­bú­ann, þó ég hefði aldrei séð stykkið á sviði. Ég ákvað því að hafa sam­band við Theater Mogul, fyr­ir­tækið sem á rétt­inn af verk­inu, og þá vildi svo skemmti­lega til að þau höfðu líka verið að leita leiða til að setja verkið aftur upp á Íslandi. Ég fór á tvo fundi með Óskari Eiríks­syni, fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, hann skoð­aði efni með mér og síðan ákváðum við að kýla á þetta saman,“ segir Jóel um hvernig það atvik­að­ist að hann brá sér í hlut­verk Hell­is­bú­ans.

Jóel sem hell­is­bú­inn.

Margir muna eflaust eftir sýn­ing­unni Hell­is­bú­inn með Bjarna Hauk fremstan í flokki, en ein­leik­ur­inn vakti gríð­ar­lega lukku á Íslandi á tíunda ára­tug síð­ustu aldar, og síðan aftur fyrir nokkrum árum með Jóhannes Hauk í aðal­hlut­verki. Verkið, sem skrifað er af Rob Becker, hefur einnig farið sig­ur­för um heim­inn allan og er til dæmis sá ein­leikur sem lengst hefur gengið á Broadway. Verkið var skrifað árið 1991 og segir Jóel að síð­asta vor og sumar hafi farið í það að upp­færa hand­ritið.

„Við í raun upp­færðum hand­ritið í takt við gamla punkta sem höf­und­ur­inn hafði skrifað, sem voru farnir úr verk­inu, en færðum það inn í nútím­ann. Í því ferli fékk ég dýpri skiln­ing á verk­inu. Aðal­punkt­ur­inn í því er að þó við séum ólík þurfum við að finna leið til að koma saman. Tveir mis­mun­andi ein­stak­lingar sam­an­komnir eru sterk­ari en einn. Þannig að við fórum aðeins aftur til rót­anna ef svo má segja í hand­rita­ferl­inu,“ segir Jóel, sem þver­tekur fyrir að þetta sé enn, eitt karl­rembu­stykkið eins og hann hefur svo oft heyrt fleygt.

„Alls ekki. Að mínu mati hefur þetta stykki aldrei átt jafn vel við og akkúrat núna.“

Enginn bjargar manni ef illa fer

Jóel lærði leik­list í Bret­landi og var með litla sem enga reynslu af ein­leikjum áður en hann tók að sér hlut­verk hell­is­bú­ans, sem er tveggja klukku­tíma sýn­ing.

„Mér finnst þetta ofboðs­lega gaman. Það er auð­vitað erfitt að eng­inn getur bjargað manni ef illa fer en sem betur fer hefur ekk­ert stór­feng­legt komið uppá. Eitt sinn gleymdi ég þrjá­tíu mín­útum af stykk­inu en náði ein­hvern veg­inn að spóla aðeins til baka og klára verkið eins og á að klára það. Svo var reyndar mjög fyndið þegar ég flækti mig í bol sem ég átti að klæða mig úr á svið­inu. Það gerð­ist mjög hratt og ég held ég hafi ekk­ert geta sagt nema: Þetta hefur aldrei komið fyrir áður. Það var mjög spaugi­legt,“ segir Jóel.

Jóel er fjöl­hæfur leik­ari.

Stærsti einleikur í heimi og aðalhlutverk í bíómynd

En draum­ur­inn um hell­is­bú­ann var ekki sá eini sem rætt­ist á síð­asta ári. Þegar leik­ar­inn var búinn að tryggja sér það hlut­verk fékk hann til­boð úr annarri átt sem hann gat ekki hafnað.

„Ég var fastur í Miami þegar ég fékk sím­tal um að sænskur leik­stjóri vildi fá mig í prufu á Íslandi. Ég fékk pruf­unni frestað um einn dag, leigði mér bíl og keyrði frá Miami til Orlando þar sem ég fékk flug heim til Íslands. Ég fékk sen­una sem ég átti að lesa senda í tölvu­pósti og æfði mig alla nótt­ina í flug­inu. Þegar ég lenti á Íslandi brun­aði ég síðan beint í pruf­una. Þegar ég kom á stað­inn kom í ljós að ég hafði æft vit­lausan karakter en það redd­að­ist sem betur fer. Áður en ég fór spurði leik­stjór­inn mig hvort ég vildi lesa hand­ritið og koma aftur á morgun. Ég þáði það boð og næsta dag var mér boðið burð­ar­hlut­verk í mynd­inni,“ segir Jóel.

Um er að ræða kvik­mynd­ina Pity the Lovers í leik­stjórn Max­im­il­ian Hult sem er öll á íslensku og tekin upp á Íslandi. Meðal ann­arra leik­ara í mynd­inni eru Björn Thors, Sara Dögg Ásgeirs­dóttir og Sigurður Karlsson.

„Það er ekki á hverjum degi sem maður leikur stærsta ein­leik í heimi og fær aðal­hlut­verk í kvik­mynd,“ segir Jóel þegar hann rifjar þetta upp. Töku­tíma­bil mynd­ar­innar skar­að­ist á við æfinga­tíma­bil Hell­is­bú­ans þannig að í fjórar vikur vann Jóel 200% leik­ara­vinnu og rúm­lega það. Í ofaná­lagi und­ir­bjó hann sig vel fyrir kvik­mynda­hlut­verkið.

Tíu kíló á sextíu dögum

„Myndin er um tvo bræður, Óskar og Magga. Þeir eru báðir rólegir í tíð­inni en eiga erfitt með náin sam­bönd. Ég leik Magga sem þráir að verða ást­fang­inn og eign­ast fjöl­skyldu og hús og fer því úr einu sam­bandi í annað. Til að und­ir­búa mig fyrir hluverkið létti ég mig um tíu kíló á sex­tíu dögum. Ég taldi kalor­íur en fékk mér samt allt sem mig lang­aði í. Ef mig lang­aði í pítsu þá fórn­aði ég öðru. Ég fór á Esjuna þrisvar sinnum í viku og æfði í raun­inni í sex­tíu daga í röð. Ég var ekki beð­inn um að koma mér í betra lík­am­legt form en mér fannst týpan kalla á það. Ég vildi líka búa mig undir að vinna fullan töku­dag, fullan æfinga­dag og hugsa um krakk­ana. Þannig að síð­asta sumar gerði ég lítið annað en að æfa og und­ir­búa mig.“

Á góðri stundu með föður sínum.

Jóel hefur tekið að sér ýmis verk­efni síðan hann útskrif­að­ist úr leik­list­ar­skóla fyrir tæpum ára­tug. En hvað er það núna sem gerir það að verkum að verk­efnin koma til hans?

„Ég hef alltaf unnið mjög mikið, verið að búa eitt­hvað til og aldrei setið á rass­gat­inu aðgerð­ar­laus. Ég hef alltaf haft stóra drauma og lifi fyrir að láta þá ræt­ast. Ég hef í raun verið að taka lítil skref að stærra mark­miði. Ég ein­beiti mér að því að umkringja mig góðri orku en forð­ast nei­kvæða orku því hún hjálpar mér ekki. Ég held að ég geti með sanni sagt að ég sé búinn að vinna fyrir þessu. Ég hugsa leik­list­ina í raun eins og íþrótt. Ef ég fer ekki út að hlaupa, þá bæti ég mig ekki. Ég hleyp ekki hraðar ef ég sit í sóf­anum. Að sama skapi er eng­inn að fara að hringja í mig ef ég tek ekki upp sím­ann,“ segir Jóel.

Metur fjölskyldustundirnar

Jóel og börnin þrjú.

Talið berst að einka­líf­inu, en fjöl­skyldan er mjög mik­il­væg leik­ar­anum. Hann og fyrr­ver­andi kærasta hans, Arna Pét­urs­dóttir, skildu fyrir rúmum tveimur árum en þau eiga þrjú börn saman, Elvar Snæ, tólf ára, Elísu Sif, níu ára og Ester Maddý, þriggja ára. Raunar er sú síð­ast­nefnda eina barnið sem er blóð­tengd Jóel en hann gekk hinum tveimur í föð­ur­stað. Arna og Jóel skipta for­ræði og segir hann sam­band þeirra á milli mjög gott.

„Það er gott sam­band okkar á milli og við reynum að halda í viku/viku fyr­ir­komu­lag, þó oft­ast sé Arna aðeins meira með börnin vegna óreglu­legs vinnu­tíma hjá mér. En ég hef alltaf litið á þessi börn sem mín eigin og voru þau mjög ung þegar ég kom inn í líf þeirra. Ég gæti ekki ímyndað mér lífið án þeirra og met ég stund­irnar með þeim mjög mikið. Oft er ég til dæmis í fríi á morgn­ana og þá keyri ég Elvar í skól­ann, þó það sé ekki mín vika með honum. Þá eigum við ynd­is­lega gæða­stund í bílnum á morgn­ana,“ segir Jóel.

Fagnar 35 ára afmæli uppi á sviði

Það er eig­in­lega ekki hægt að sleppa leik­ar­anum eftir þessa hressi­legu yfir­ferð á árinu 2017 án þess að spyrja hvað fram­tíðin beri í skauti sér?

„Það er eitt­hvað í píp­unum,“ segir Jóel og hlær. „Það er tengt svið­inu en það verður að bíða betri tíma að til­kynna það. Ég er með fullt af hug­myndum sem mig langar að fram­kvæma og nóg af draumum sem ég vil upp­fylla,“ segir leik­ar­inn, en næstu helgi sýnir hann tvær sýn­ingar af Hell­is­bú­anum. Það væri svo sem ekki í frá­sögur fær­andi nema fyrir þær sakir að þetta er stór helgi hjá Jóel. Hann fagnar nefni­lega 35 ára afmæli sínu.

„Ég hef aldrei haldið uppá afmælið mitt svona – að leika á sviði fyrir framan fullan sal af fólki. Ég hlakka mikið til, enda ómet­an­legt að fá að vinna við það sem maður elskar. Svo skemmir ekki fyrir að ég fæ líka að fagna deg­inum í faðmi fjöl­skyld­unnar þannig að ég fæ í raun það besta úr báðum heimum á afmæl­is­dag­inn.“

Texti / Lilja Katrín
[email protected]
Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag