Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jarðarber er ekki bara jarðarber

Smám saman höfum við áttað okkur á því að við getum ræktað hér heima, á jaðri hins byggi­lega heims, eins og var svo oft sagt fyrir 30 árum, miklu meira en áður var haldið. Gróð­ur­hús hafa sprottið upp í görðum, frum­kvöðlar í ylrækt hafa prófað sig áfram og mörkin eru nán­ast ein­göngu þau sem ímynd­un­ar­aflið setur okkur.

Jarðarber er ekki bara jarðarber

Í dag eru það nokkrir garð­yrkju­bændur sem sjá okkur fyrir jarð­ar­berjum, þótt kostn­að­ur­inn sé hærri en í þræla­vinnu­búðum á Suður-Spáni, og til eru íslensk kirsu­ber, hind­ber og margt fleira. Flest erum við sólgin í jarð­ar­ber og úrvalið og saga teg­und­anna hér á landi er einkar fjöl­breytt.

Villt jarð­ar­ber vaxa hér heima á ein­stak­lega skjól­góðum stöðum og í grónu landi (og ná full­þroska – fugl­anir eru þó ansi fljótir að átta sig á því!) en fáar teg­undir eru rækt­aðar í gróð­ur­húsum lands­ins. Það er brota­brot af því sem finnst í heim­inum.

Róm­verjar kunnu að meta villt jarð­ar­ber en ræktun byrj­aði ekki fyrr en á 14. öld og þá um leið byrj­uðu kyn­bætur. Á 15. öld var þegar farið að tala um garða­jarð­ar­ber sem urðu mjög algeng á 16. öld, þá aðal­lega í Bret­landi. Jarð­ar­berin uxu einnig i Norður- og Suður-Ameríku og það var ekki fyrr en afleggjarar þaðan komu til Evrópu í byrjun 18. aldar að jarð­ar­berja­rækt varð almenn.

Plöntur frá Canada og Chile gáfu afbrigði sem varð strax afar vin­sælt og var ræktað með mjög góðum árangri í Plougastel á Bretagne-skag­anum í Frakk­landi. Þetta var um miðja 18. öld og eftir það hafa kyn­bætur átt sér stað alls staðar; til að byrja með voru hér­uðin sem höfðu temprað lofts­lag fyrir val­inu (England, Belgía) því vatns­bú­skapur er mik­il­vægur við rækt­un­ina – en fljót­lega þró­uð­ust afbrigði sem hent­uðu í alls kyns lofts­lagi. Sömu­leiðis voru afbrigði þróuð mark­visst með ilm- og bragð­gæði í huga þannig að jarð­ar­berin sem við fáum í dag eru í raun langt frá þeim fyrstu jarð­ar­berjum sem voru á borðum manna á 17. eða 18. öld.

Jarð­ar­ber er ekki ávöxtur heldur eru fræin sem eru á því ávext­irnir, kjötið sem við sækj­umst eftir heldur eig­in­lega utan um fræin sem hafa svo áhrif á það hvort jarð­ar­berin verða ilm- eða safa­rík. Sumar teg­undir bera ein­ungis kven- eða karl­fræ. Og teg­und­irnar eru fjöl­margar.

Jarð­ar­berin sem komu til Evrópu frá Chile voru hvít og enn eru hvít jarð­ar­ber ræktuð – einnig finn­ast græn jarð­ar­ber sem eru mest notuð af veit­inga­húsum, þau hafa keim og ilm af venju­legum jarð­ar­berjum en mun meiri sýru. Þær teg­undir sem eru hvað vin­sælastar í dag hafa verið þró­aðar í Frakk­landi um og eftir 1960, eins og Garigu­ette-teg­undin, ein­stak­lega bragð­góð, eða Mara des Bois sem lík­ist í öllu villtum jarð­ar­berjum nema mun stærri. Þessar teg­undir eru því miður of við­kvæmar til að flytja á milli landa.

Þær teg­undir jarð­ar­berja sem eru hvað vin­sælastar í dag hafa verið þró­aðar í Frakk­landi um og eftir 1960.

Evr­ópu­löndin fram­leiða í dag 1,5 millj­ónir tonna af jarð­ar­berjum og þar er Spánn fremstur í röð og Banda­ríkin fylgja fast á eftir með 1 milljón tonna og þar er Kali­fornía efst á lista. Fram­leiðslan er að miklu leyti iðn­vædd sem þýðir að mikið af til­búnum áburði og varn­ar­efnum (ill­gres­i­seyði, skor­dýra­eitri o.fl.) eru notuð og í allt of mörgum til­fellum er ekki farið eftir félags­lega sið­ferð­is­legum reglum. Verðið þarf að vera sem lægst – en eins og sagt er oftar og oftar: „ódýr matur er dýr blekk­ing“ …

Auðvelt er að rækta jarð­ar­ber heima í garð­inum, enda gera margir það, og best að byrja að rækta í vermi­kassa eða undir plasti – þá verður upp­skeran snemma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni