Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Yfirvöld í Sri Lanka staðfesta að 290 eru þegar látin og vara við að talan fari hækkandi

Ætt­ingjar fórn­ar­lamba hryðju­verka­árásanna í Sri Lanka hafa fengið heim­ild til að bera kennsl á ást­vini síni sem lét­ust í árás­unum. Þetta kemur fram á vef BBC . Staðfest tala lát­inna í Sri Lanka eru 290 manns auk þess að um fimm hund­ruð eru slas­aðir. Tala lát­inna er lík­leg til að hækka. Yfirvöld í Sri Lanka telja lítt þekkt hryðju­verka­sam­tök National Thoweed Jamath standa að baki árás­unum. Samtökin eru talin eiga upp­runa sinn frá öðrum hóp Sri Lanka Thowheed Jamath , sem er islamskur harð­línu­hópur.. Lítið er vitað um NTJ en sam­tökin eru talin tengj­ast röð skemmda­verka gegn hofum búddista í land­inu. 24 hafa verið hand­teknir vegna hryðju­verk­anna.

Yfirvöld í Sri Lanka staðfesta að 290 eru þegar látin og vara við að talan fari hækkandi
|Shangri-La hót­elið.||||St. Anthony í Colombo

Sjá einnig: Rit­stjóri Gest­gjafans í hring­iðu hryðju­verka­árása í Sri Lanka.

Rajitja Sener­atne, tals­maður yfir­valda í Sri Lanka, stað­festi á frétta­manna­fundi að yfir­völd hefðu ítrekað fengið fregnir af því að NTJ hefði árás í hyggju. Þá virð­ist lög­regla hafa haft grun um að sam­tökin væru að skipu­leggja árás.

Mait­hripala Sirisena, for­seti Sri Lanka

Þrátt fyrir að hryðju­verkin séu nú talin vera á ábyrgð inn­lendra sam­taka hefur Mait­hripala Sirisena, for­seti Sri Lanka, óskað eftir alþjóð­legri aðstoð við rann­sókn á því hvort sam­tökin hafi notið stuðn­ings erlendra sam­taka. Tals­maður yfir­valda sagði við frétta­menn fyrr í dag að yfir­völd telji hryðju­verka­menn­ina hafa notið aðstoðar. Árásin sé á slíkum skala að ólík­legt sé að sam­tökin hafi skipu­lagt þau ein og óstudd. Vert er að taka fram að árás­irnar eru enn til rann­sóknar. Yfirvöld telja NJT að baki þeim.

Samhæfð árás var framin á átta stöðum. Hryðju­verkin beindust gegn kirkjum þar sem fólk tók þátt í páska­messum og hót­elum. Ferða­þjón­usta er ein stoð efna­hags Sri Lanka. Rúmlega sjö pró­sent íbúa lands­ins eru kristnir.

Shangri-La hót­elið.

Meðal hinna látnu eru auk rík­is­borg­ara Sri Lanka ein­stak­lingar frá Bret­landi, Indlandi, Banda­ríkj­unum, Danmörku, Kína, Tyrk­landi, Ástralíu, Portúgal, Hollandi, Bangla­dess, og Japan. Þá eru rík­is­borg­arar frá Ítalíu, Sádí-Arabíu, Pakistan, Póllandi og Marokó taldir meðal hinna særðu. CNN segir að um 250 hinna látnu séu frá Sri Lanka.

Shantha Maya­dunne sjón­varps­kokkur frá Sri Lanka er meðal hinna látnu. Skömmu fyrir árás­ina sem varð henni að bana deildi dóttir hennar mynd af fjöl­skyld­unni að njóta morg­un­mat saman. Shanta er afar þekkt í heima­land­inu. Hún hefur gefið út tvær bækur, stýrir sjón­varps­þætti og heldur nám­skeið í mat­reiðslu.

Cinnamon Grand hótel er eitt skot­marka. Hótelið hefur stað­fest að fjórir þjónar á veit­inga­stað hót­els­ins lét­ust. Shang-La hót­elið til­kynnti á Facebook að þrír starfs­menn hafi lát­ist í spreng­ing­unni.

Tals­maður danska millj­óna­mær­ings­ins Anders Holch Povlsen stað­festi við BBC að þrjú barna hans hefðu lát­ist í árás­unum.

Rasina, kona frá Kerala í Indlandi, lést í árás­unum en hún bjó ásamt eig­in­manni sínum í Dubai. Hjónin voru í Sri Lanka til að heim­sækja ætt­inga. Eig­in­maður Rasinu hafði flogið heim til Dubai fyrr um dag­inn.

Fimm starfs­menn Janata Dal flokks­ins í Indlandi lét­ust einnig í spreng­ing­unni. Starfs­fólkið var í leyfi frá flokknum í Sri Lanka til að jafna sig eftir kosn­ingar sem fram fóru í land­inu þann 18. apríl síð­ast­lið­inn.

Tyrk­neskir verk­fræð­ingar, Serhan Selcuk Narici og Yigit Ali Cavus, eru meðal hinna látnu en BBC hefur eftir föður Serhan að sonur hans hafi verið við störf tengd sendi­ráði Banda­ríkj­anna.

Scott Morr­is­son, sendi­herra Ástralíu hefur stað­fest að alla­vega tveir Ástralar hafi lát­ist í árásinni. Barna­barn Sheikh Fazlul Karim Selim, þing­manns frá Bangla­dess, er einnig meðal hinna látnu.

St. Anthony í Colombo

Spreng­ing­arnar áttu sér stað milli 8.45 og 9.30 á stað­ar­tíma á Sunnudag. Árásir áttu sér stað í þremur Borgum höf­uð­borg­inni Colombo. Negombo og Battacaloa. Þrjá kirkjur og þrjú hótel voru skot­mörk í fyrstu. Fimm klukku­stundum síða sprungu tvær sprengjur til við­bótar rétt utan Colombo á gisti­heim­ili og í þyrp­ingu íbúð­ar­húsa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife