Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fann ástina á ný

Kolbrún Pálína Helga­dóttir fór úr feg­urð­ar­brans­anum yfir í harðan heim fjöl­miðl­anna. Kafla­skil urðu hjá Kollu, eins og hún er jafnan kölluð, fyrir þremur árum þegar hún og barns­faðir hennar skildu. Í ein­lægu við­tali við Vikuna lýsir hún því hvernig hún vann sig upp úr fóst­ur­stell­ing­unni yfir í lát­laus­ara og ham­ingju­rík­ara líf.

Fann ástina á ný

Kolla nýtir nú reynslu sína og ann­arra og hefur hafið fram­leiðslu á sjón­varps­þáttum um skiln­aði í sam­starfi við Saga Film og Sjónvap Símans en auk hennar mun Krist­borg Bóel Stein­dórs­dóttir stýra þátt­unum. Kolla getur ekki neitað því að hún eigi margt að áhuga­vert að vinna úr í reynslu­bank­anum, sam­an­ber þát­töku hennar í feg­urð­ar­sam­keppni árið 2001.

Fyrir röð til­vilj­ana leiddi lífið Kollu inn í fjöl­miðla­heim­inn en síðan hún upp­götv­aði mátt penn­ans hefur hún byggt upp far­sælan feril og unnið á mörgum stærstu fjöl­miðlum lands­ins.

„Það er eitt­hvað svo merki­legt hvernig örlögin teyma mann áfram og einmitt þess vegna hef ég tamið mér að treysta svo­lítið líf­inu. Ég vann í tísku­vöru­verslun þegar sú ágæta keppni, Ungfrú Ísland.is, var haldin í annað sinn. Ég ætl­aði mér aldrei að taka þátt í feg­urð­ar­sam­keppni en þáttak­end­urnir í keppn­inni komu til mín í versl­un­ina og ég aðstoð­aði þær konur við að finna föt fyrir fyrstu mynda­tök­una í und­ir­bún­ingnum.

Ég ætl­aði mér aldrei að taka þátt í feg­urð­ar­sam­keppni.

Þá kom upp sú staða að ein stelpn­anna sagði sig úr keppni og mér var boðið að taka þátt,“ byrjar Kolbrún Pálína og heldur áfram: „Mér fannst í fyrstu alls ekki málið að taka þátt en ég er nú svo­lít­ill upp­reisn­ar­seggur þannig að ég ákvað að lokum að slá til. Þessi keppni hafði líka meiri tísku­stimpil en áður hafði þekkst og lagði meira upp úr fram­komu kepp­enda sem mér fannst svo­lítið spenn­andi.“

Til að gera langa sögu stutta bar Kolla sigur úr býtum. Titlinum fylgdi sú ábyrgð að skrifa viku­lega pistla um lífið og til­ver­una á strik.is, vef sem þá var og hét og í fyrsta skipti þurfti hún að tjá sig með lykla­borðið að vopni.

Eftir frétta­skrif á DV í mjög karllægu umhverfi var Kolla beðin um að rit­stýra tíma­rit­inu Nýju lífi.

„Það er gaman að segja frá því að þegar ég var rúm­lega tví­tug var ég spurð að því hvað væri drauma­starfið mitt. Ég lét hafa það eftir mér að það væri að rit­stýra tísku­tíma­riti á borð við Nýtt líf. Þeim áfanga náði ég nokkrum dögum eftir þrí­tugs­af­mælið mitt. Á þessum tíma var ég enn þá að sanka að mér reynslu og í dag hefði ég gert margt öðru­vísi. Þegar ég skoða tölu­blöð frá þessum tíma fær maður hressi­lega áminn­ingu um það hvað þetta umhverfi er hart en við vorum ansi fámennar um að skapa allt blaðið upp úr nán­ast engu. Ég skrif­aði stóran hluta þess ein og fann ekki fyrr en eftir að starfi mínu þar lauk hvað þetta hafði tekið mik­inn toll. En reynslan skapar mann­inn, svo mikið er víst.“

Þegar ég skoða tölu­blöð frá þessum tíma fær maður hressi­lega áminn­ingu um það hvað þetta umhverfi er hart.

Kolla segir að þetta val sitt á starf­vett­vangi sé í raun svo­lítið merki­legt fyrir þær sakir að henni hafi aldrei verið vel við það að vera í sviðs­ljós­inu og að í grunn­inn hafi hún verið mjög feimin þegar hún var yngri. Hrædd við gagn­rýni og skoð­anir ann­arra á henni, svona eins og ungar konur fara oft og tíðum í gegnum. Fer­ill­inn hafi hins vegar ein­kennst af því að hún hafi alltaf verið til­búin að ögra sjálfri sér og til­búin fara út fyrir þæg­ind­ara­mmann.

„Ég lít á þetta sem mína lífs­ins skóla­göngu, ég fer alltaf með opnum hug í næsta áfanga en á sama tíma með smá­vegis kitl í mag­anum,“ segir Kolla bjart­sýn en ítar­legt og spenn­andi við­tal við hana er í 1. tbl Vikunnar árið 2019.

Myndir / Aldís Páls­dóttir
Förðun og hár / Helga Krist­jáns
Fatnaður / Baum und Pferdgar­ten, Kultur og AndreA.
Skart / Made By Me/ Helga Sæunn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu