Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leitin að næsta leiðtoga demókrata

Leitin að næsta leið­toga demókrata er hafin. Leið­tog­inn sem á að tryggja þeim for­seta­emb­ættið í for­seta­kosn­ing­unum 2020. Hér vest­an­hafs hófst und­ir­bún­ingur að for­seta­kosn­ingum um það bil og kosn­ing­unum í nóv­em­ber lauk. Allar líkur eru á því að próf­kjör demókrata verði fjöl­mennt partý .

Leitin að næsta leiðtoga demókrata

Það gefur auga­leið að demókratar þurfa að tefla fram sterkum fram­bjóð­anda sem getur sigrað Donald Trump sem er fjarri lagi hefð­bund­inn fram­bjóð­andi. Trump er til alls lík­legur og erfitt að kort­leggja. Fer fram hjá hefð­bund­inni fjöl­miðla­bar­áttu og notar sam­fé­lags­miðla eins og Twitter óspart. Pólitísk skila­boð um að hann stæði með fólk­inu í land­inu gegn kerf­inu virt­ist virka síð­ast þó kvarnað hafi úr trú­verð­ug­leika þeirra með litlum efndum. Líklegt er að Trump verði óvæg­inn, beiti hvaða aðferð sem er til að vinna og haldi áfram sínu þjóð­ern­is­sinn­aða inn­flytj­end­arausi. Því er það kostur ef sá fram­bjóð­andi sem verður fyrir val­inu geti mætt honum af þunga á þessu svelli.

Elizabeth Warren.

Mörg nöfn eru í hatt­inum. Nokkur hafa þegar lýst yfir fram­boði þar á meðal öld­ung­ar­deild­ar­þing­kon­urnar Elizabeth Warren og Kamala Harris. Elizabeth Warren, fyrrum pró­fessor við Harvard, hefur verið hörð í gagn­rýni sinni á fjár­mála­kerfið, spill­ingu og óheflaðan kap­ít­al­isma. Efn­is­lega er óum­deilt að hún er mjög hæfur fram­bjóð­andi en hana skortir ákveð­inn póli­tískan sjarma, þetta óáþreif­an­lega sem fær fólk til að hríf­ast með. Helsti löstur hennar er að hún er of lík Hillary Clinton. Kamala Harris er frá Kali­forníu og þykir hafa stjörnu­eig­in­leika, hefur barist fyrir frjáls­lyndum borg­a­rétt­indum í þing­inu og fékk mikla athygli í Brett Kavan­augh yfir­heyrsl­unum.

Joseph R. Biden

Aðrir sem þykja lík­legir eru Joseph Biden, vara­for­seti Obama, Eric Garcetti sem er borg­ar­stjóri Kali­forníu og Bernie Sanders. Bernie bauð sig fram gegn Hillary Clinton í próf­kjöri demókrata fyrir for­seta­kosn­ingar 2016. Hann er sós­í­alisti, óhefð­bund­inn fram­bjóð­andi og maður fólks­ins. Lengst af í hópi þeirra þing­manna sem hafa staðið utan flokka.

Bernie var mjög sterkur á sam­fé­lags­miðlum í sinni bar­áttu með slag­orðið „feel the Bern“ og hefur laðað til sín marga unga fylgj­endur sem styðja sós­íal­ískar vel­ferð­ar­á­herslum. Joseph Biden á marga fylgj­endur innan demókra­ta­flokks­ins og hann hefur tvisvar áður reynt við for­seta­fram­boð. Þá hefur John Kerry einnig verið nefndur og Hillary Clinton, en bæði þykja ólík­leg enn sem komið er.

Beto O´Rourke.

Annar mögu­legur fram­bjóð­andi er Beto O´Rourke þing­maður frá Texas. Ungur, með mik­inn póli­tískan sjarma og vakti athygli fyrir að ná til ungra kjós­enda og að safna miklum fjár­munum í bar­áttu sinni fyrir öld­ung­ar­deild­ar­þing­sæti í Texas í nýliðnum kosn­ingum. Öllum að óvörum var hann í miklum sjens að vinna Ted Cruz sem er stórt nafn í Texas, sem almennt er vel rautt ríki. Beto þykir þó of miðju­sinn­aður fyrir marga.

Bernie Sanders sterkur frambjóðandi

Af þeim nöfnum sem eru í hatt­inum hlýtur Bernie Sanders að vera sterkasti fram­bjóð­and­inn enn sem komið er. Hann er maður rétt­læt­is­ins, nokkuð óhefð­bund­inn á banda­rískan mæli­kvarða og ókerf­is­lægur í sínum skoð­unum, rétt eins og Donald Trump. Hans helsti löstur er ald­ur­inn. Hvort að Bernie Sanders sé hið sterka mót­vægi til að fella Donald Trump verður þó að koma í ljós, en hann hefur þegar ákveð­inn grunn til að byggja á sem aðrir fram­bjóð­endur hafa ekki.

Alex­andria Ocasio-Cortez

Margir skemmti­legir nýir þing­menn demókrata eru einnig að vekja mikla lukku meðal ungs fólk og  hrífa til sín fylgi og aðdáun. Þing­konan Alex­andria Ocasio-Cortez hefur verið mest áber­andi í þeim hópi. Því gæti það verið sterkur leikur að fá ungan spútnik fram­bjóð­anda sem vara­for­seta­efni fyrir þann demókrata sem tekst á við Donald Trump árið 2020, sér­stak­lega ef „hefð­bundn­ari“ fram­bjóð­andi verður fyrir val­inu. Það verður að segja að mikið liggur við og því sjálf­sagt mikil pressa á demókrötum að fella Trump.

Sjá einnig: Ný þing­kona hristir upp í hús­inu

Meg­in­at­riðið hlýtur að vera að sam­ein­ast um sterkasta fram­bjóð­anda sem er lík­legur til að sigra og tefla fram öfl­ugri stra­tegíu. Að lesa í hið póli­tíska lands­lag hverju sinni segir líka mikið um hvort hent­ugra sé að fá hefð­bund­inni póli­tískan fram­bjóð­anda t.d. eins og Elizabeth Warren eða meira fútt eins og fylgir Bernie Sanders þrátt fyrir háan aldur. Til­finn­ingin er sú að póli­tískur sjarmi, sterk skila­boð með rétt­lætisí­vafi og hæfnin til að hrífa fólk með sér muni skipta miklu máli í for­seta­kosn­ing­unum 2020. Í öllu falli munu demókratar hafa úr mörgum að velja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu