Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eitrað samband

Eitrað samband

Lífsreynslusaga úr Vikunni:

Ég hef aldrei skilið hjónaband foreldra minna sérstaklega í ljósi þess að það varði í tuttugu og fimm ár. Þetta var eitrað samband þar sem báðir aðilar niðurlægðu hvorn annan og reyndu á allan máta að gera hinum lífið leitt. Hvað hélt þeim saman veit ég ekki en hitt veit ég að þessar aðstæður í uppvextinum höfðu vond áhrif á okkur öll systkinin.

Mamma til­kynnti öllum sem heyra vildu að þau pabbi hefðu ekki gifst af ást heldur vegna þess að hún varð ólétt af elstu systur minni. Pabbi var vanur að taka undir og segja að hann hefði haft vit á að forða sér ef hann hefði ekki fundið til ábyrgðar á barn­inu. Rifrildi þeirra hófst venju­lega um leið og þau opn­uðu augun á morgn­ana og stóð allar sam­veru­stundir þeirra þar til þau sofn­uðu á kvöldin.

Mamma þoldi ekki venjur pabba. Við systk­inin vökn­uðum við það að hún öskr­aði á hann fyrir á pissa á kló­sett­set­una eða ein­hverjum dropum út fyrir. Hún var líka brjáluð yfir hvernig hann gekk um sturt­una. Sápan var ekki skoluð burtu, sjampó­brús­inn skil­inn eftir opinn, glerið ekki þrifið og ekki hreinsað úr nið­ur­fall­inu.

Ekkert af þessu var rætt eða komið til skila af venju­legum radd­styrk. Allt var öskrað. Stundum fannst mér að pabbi gerði í því að æsa hana upp. Að hans gagnárás væri að leika sér að því að ganga verr um en hann þurfti og skilja vilj­andi allt eftir í óreiðu.

Ekkert gert á afmælinu

Við systk­inin voru auð­vitað vön þessum sam­skipta­að­ferðum ef hægt er að flokka þetta undir sam­skipti því hvor­ugur aðil­inn hlust­aði á hinn og báðir öskr­uðu fremur en að tala. Við vorum hins vegar ekki gömul þegar við skildum hve óeðli­legt þetta var og vegna þess að for­eldrar okkar gátu aldrei stillt sig um að ríf­ast hættum við að koma með vini heim þegar bæði voru á staðnum. Ég sótti reyndar alltaf mest í að vera heima hjá bestu vin­konu minni.

Vegna þess að for­eldrar okkar gátu aldrei stillt sig um að ríf­ast hættum við að koma með vini heim þegar bæði voru á staðnum.

Þar ríkti allt annað and­rúms­loft. For­eldrar hennar voru sam­hent og báru aug­ljós­lega mikla virð­ingu hvort fyrir öðru. Ég man hvað ég var hissa þegar ég varð vitni að því dag nokkurn að pabbi hennar kom heim með óvænta gjöf handa mömmu hennar. Ég spurði hvort hún ætti afmæli en svo var ekki. Pabba hennar lang­aði bara að sýna hve mik­ils hann mæti konu sína.

Ekki að ég væri vön því að pabbi hefði mikið við á afmæli mömmu. Hann færði henni aldrei neitt. Mamma hafði alltaf mikið við á afmælum okkar barn­anna. Fór á fætur eldsnemma og bak­aði amer­ískar pönnu­kökur, upp­á­halds­morg­un­verð okkar allra, svo tók hún til góð­gæti á bakka og færði þeim sem átti afmæli og pakk­inn var venju­lega fal­lega umbú­inn á honum. Ef gjöfin var stærri en svo að hann gæti rúm­ast þar var bundið fyrir augu okkar og við leidd að henni. Þannig var það þegar ég fékk hjólið mitt, dúkku­húsið og skrif­borðið.

Hún færði pabba alltaf morg­un­mat í rúmið á afmæl­is­dag­inn hans en hún hafði ekki lag á að velja gjafir handa honum. Senni­lega þekkti hún pabba bara ekki nóg. Hann var mik­ill veiði­maður og fót­boltafrík en mamma færði honum oft heim­il­is­tæki eða smíða­tól. Líklega vegna þess að hún hafði áhuga á slíku, enda var hann vanur að rétta henni gjöf­ina og segja: „Fínt, þú getur notað þetta.“ Hann hafði hins vegar aldrei fyrir því að gera neitt fyrir hana.

Ég veit að mamma var oft sár og ég man eftir einum afmæl­is­degi þegar hún grét inni í rúmi. Hún reyndi að leyna því fyrir okkur en ég vissi af því og systir mín líka. Mjög erfitt ástand hafði verið á heim­il­inu í nokkurn tíma áður en dag­ur­inn hennar rann upp og ég held að hún hafi von­ast til að pabbi gerði eitt­hvað til að reyna að bæta hlut­ina en svo var ekki.

Framhjáhald og skilnaður

Svona liðu árin og við systk­inin fluttum að heiman eins fljótt og við gátum. Ég var sautján ára þegar ég fór að leigja með vin­konu minni sem einnig bjó við erf­iðar heim­il­is­að­stæður. Ég var þó það heppin að engin óregla var á mínu heim­ili en stöðug tog­streita, leið­indi og óánægja. Mamma var katt­þrifin og þoldi illa óhrein­indi, pabbi var kæru­laus og hirðu­laus um flest annað en sjálfan sig. Hann var ævin­lega mjög hreinn og strok­inn og pass­aði vel upp á fötin sín en gekk um heim­ilið eins og það væri úti­hús.

Pabbi tal­aði alltaf niður til mömmu. Það var aug­ljóst að honum fannst ekki mikið til hennar eða fjöl­skyldu hennar koma. Hann kall­aði bræður hennar smur­ol­íu­pjakka vegna þess að þeir unnu við véla- og bíla­við­gerðir. Mamma var mjög list­ræn og saum­aði, mál­aði og föndraði alls konar fal­lega muni.

Að hans mati var það algjör tíma­sóun og ekki mikið varið í neitt af því sem hún gerði. Eig­in­kona bróður hans var hins vegar list­mál­ari og fyrir henni bar hann ómælda virð­ingu og allt sem hún gerði lof­aði hann í hástert. Þegar við vorum yngri og litlir pen­ingar til á heim­il­inu bjó mamma til allar jóla­gjafir. Pabbi kall­aði þær drasl og kvart­aði yfir að miklir pen­ingar færu í efn­is­kaup. Mamma benti honum á að mun dýr­ara væri að kaupa gjafir og þá sljákk­aði aðeins í honum. Þegar pakk­arnir voru opn­aðir kom í ljós að mág­kona pabba hafði gert það sama og mamma, búið allt til og nú átti pabbi ekki orð yfir hve flott það væri. Okkur fannst dótið hennar mömmu þó mun flott­ara og skemmti­legra.

Þegar við vorum yngri og litlir pen­ingar til á heim­il­inu bjó mamma til allar jóla­gjafir. Pabbi kall­aði þær drasl og kvart­aði yfir að miklir pen­ingar færu í efn­is­kaup.

Ég veit að þetta særði mömmu mikið en hún var ekki skárri gagn­vart pabba. Amma mín hafði ekki tekið sam­bandi þeirra vel þegar það byrj­aði og mamma tal­aði alltaf mjög illa um hana. Hún sagði öllum að tengda­móðir sín hefði tekið illa á móti sér og frá fyrstu tíð gert lítið úr sér. Föð­ur­fólk mitt var upp til hópa lang­skóla­gengið en hefð var fyrir iðn­námi í mömmu fjöl­skyldu, enda þar mjög margir dverg­hagir ein­stak­lingar. Móðurafi minn var bif­véla­virki og tveir synir hans fet­uðu í þau fót­spor.

Systir mömmu var hár­greiðslu­kona og klæð­skera­menntuð í ofaná­lag en mamma var hús­mæðra­skóla­gengin og hafði auk þess lært tækni­teiknun. Það fag varð fljótt úrelt og mamma fór þá að vinna hjá inn­rétt­inga­búð. Þar komu hæfi­leikar hennar að góðum notum og iðu­lega teikn­aði hún upp fyrir fólk inn­rétt­ingar og hjálp­aði því að hanna rýmin í íbúð sinni.

Uppgjör

Mömmu og föð­urafa mínum kom mjög vel saman og þegar hann dó snögg­lega þegar ég var nítján ára var eins og eitt­hvað brotn­aði í fjöl­skyld­unni. Hann hafði alltaf verið banda­maður mömmu og staðið með henni í mörgum deilum. Ég veit að systk­inum pabba fannst hún leið­in­leg gribba og töldu pabba of góðan fyrir hana. Að mínu mati var það alrangt. Pabbi hafði vissu­lega sína kosti en mamma var ekki síðri en hann og bæði gerðu sitt til að skapa og við­halda darrað­ar­dans­inum á heim­il­inu.

Auðvitað dróst öll stór­fjöl­skyldan beggja megin smátt og smátt inn í þetta og stundum lá við slags­málum milli pabba og bræðra mömmu og iðu­lega tal­aði mamma ekki við helm­ing­inn af fjöl­skyldu pabba.

Við systk­inin tölum oft um að við lærðum aldrei almenni­leg sam­skipti.

Samband mömmu og pabba ent­ist í þrjú ár eftir að afi dó. Þá komst mamma að því að hann hafði haldið við aðra konu árum saman og rak hann á dyr. Síðan þá hefur hún unnið mikið í sínum málum og er á góðum stað í dag. Pabbi býr með við­hald­inu og er ham­ingju­samur. Við systk­inin tölum oft um að við lærðum aldrei almenni­leg sam­skipti. Það hefur tekið okkur mörg ár að átta okkur á að ef þú vilt að aðrir hlusti öskrar þú ekki, ef þú vilt eiga í gef­andi sam­skiptum gefur þú af þér og gefur eftir í stað þess að nið­ur­lægja.

Ég lærði þetta áður en illa fór hjá mér en eldri systir mín segir að hefði hún áttað sig fyrr væri hún enn í hjóna­bandi með fyrri manni sínum. Bróðir minn er nýskil­inn og er að vinna með sál­fræð­ingi í að gera upp æsk­una og eigin van­þekk­ingu á heil­brigðum sam­böndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu