Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Búin að missa rúm 50 kíló eftir magaermisaðgerð

Jóna Sig­ur­björg Guð­munds­dóttir var búin að fá nóg af því að vera í mik­illi yfir­þyngd þegar hún ákvað að fara í svo­kall­aða maga­ermis­að­gerð í Tékk­landi. Hún þjáð­ist af kæfisvefni, hana verkj­aði stans­laust í hnén og var með ónýtt bak. Jóna er fjög­urra barna móðir og var orðin leið á því að hafa enga orku til þess að sinna þeim að fullu.

Búin að missa rúm 50 kíló eftir magaermisaðgerð
Mynd / Birtíngur/ Heiða Helga­dóttir

„Ég hafði hrein­lega enga orku til þess að gera eitt eða neitt með þeim og hrædd­ist það að deyja úr fylgi­kvillum offitu fyrir aldur fram. Börnin mín eiga skilið mömmu sem er besta útgáfan af sjálfri sér og þess vegna varð ég að breyta til.“

Jóna byrj­aði að fitna á ung­lings­aldri. „Ég þyngd­ist upp úr átján ára aldri og var í stöðugri bar­áttu við aukakílóin. Þegar ég skildi fyrir sjö árum missti ég algjör­lega tökin á líf­inu og bætti veru­lega á mig.“

Búin að sætta sig við að vera alltaf feit

Hún seg­ist hafa reynt allt áður en hún ákvað að fara í aðgerð­ina. „Ég var eig­in­lega bara búin að sætta mig við að vera bara alltaf feit. Í fyrstu fannst mér það vera hálf­gerð upp­gjöf og skamm­að­ist mín fyrir það en í dag sé ég í raun eftir því að hafa ekki farið fyrr.“

Jóna Sig­ur­björg var í mik­illi yfir­þyngd og leið ömur­lega, and­lega og lík­am­lega, áður en hún fór í maga­ermis­að­gerð. Hún seg­ist hafa verið búin að reyna allt áður en til þess kom.

Jóna fór til Tékk­lands í aðgerð­ina og mælir ein­dregið með því enda sé aðgerðin um helm­ingi ódýr­ari þar en hér á landi. „Ég fór til Tékk­lands á vegum New Lead í maga­ermi en ég verð að taka það fram að það er engin skyndi­lausn eins og svo margir virð­ast halda. Maður þarf að passa vel upp á matar­æðið og hreyfa sig til að við­halda árangrinum.“

Hún segir batann hafa verið mjög góðan og margt hafa komið sér á óvart. „Ég kveið til dæmis virki­lega fyrir því að vera á fljót­andi fæði og mauki fyrstu vik­urnar en það var svo ekk­ert mál. Dr. Hruby hjá New Lead er fag­maður fram í fing­ur­góma. Ég fór í aðra aðgerð dag­inn eftir því lækn­arnir höfðu grun um blæð­ingu sem var svo reyndar ekki en ég upp­lifði mig alltaf örugga í þeirra höndum.“

Jóna var farin að vinna aftur tveimur vikum seinna. Í heild­ina hefur hún misst 54 kíló. Sjö kíló fóru fyrir aðgerð­ina og rest­ina hefur hún misst síðan í maí. Hún seg­ist þó vilja missa 15-20 kíló í við­bót og stefnir að því að vera komin í drauma­þyngd­ina sína í maí, ári eftir aðgerð­ina.

Ég var í stöðugri van­líðan út af þyngd­inni en núna finnst mér allt í einu gaman að kaupa mér föt.

Aðspurð um hvaða breyt­ingar hafa orðið á lífi hennar segir hún að sér líði miklu betur, verkir í hnjám séu alveg farnir og hún hafi meiri orku til að geta leikið með börn­unum sínum. Mikill mundur sé á and­legu hlið­inni og hún seg­ist vera aftur orðin sú félags­vera sem hún var áður en hún þyngd­ist. „Ég var farin að ein­angra mig mjög mikið. Ég var í stöðugri van­líðan út af þyngd­inni en núna finnst mér allt í einu gaman að kaupa mér föt og hef verið svo lánsöm að Next gaf mér dress og gaman að segja frá því að ég og aðrir sem hafa farið í maga­ermis­að­gerð fá 25% afslátt hjá þeim. Lindex gaf mér líka föt og Sketchers skó því meira segja skó­stærðin mín minnk­aði,“ segir hún og skellir upp úr og bætir við að það sé dýrt spaug að upp­færa fata­skáp­inn jafn­ört og hún hafi þurft að gera síð­asta árið.

Jóna Sig­ur­björg er rúm­lega fimm­tíu kílóum létt­ari í dag og stefnir á Reykja­vík­ur­mara­þon í sumar.

Jóna hefur ekki ein­ungis tekið matar­æðið í gegn heldur mætir hún í rækt­ina 3-5 sinnum í viku og finnst æðis­legt að geta hreyft sig enda hafi hún átt í erf­ið­leikum með það áður. Hún breytti alger­lega um matar­æði og seg­ist ekki getað borðað hvað sem er. „Ég get til dæmis ekki borðað djúp­steiktan mat og á enn þá dálítið erfitt með allt kjöt­meti. Ég get bara fengið mér sjeika á morgn­ana en þá fæ ég mér Her­balife-sjeik eða Hleðslu og svo borða ég fimm mál­tíðir í við­bót yfir dag­inn en bara um 100 grömm í einu. Ég leyfi mér alveg sæl­gæti og svo­leiðis öðru hvoru en þá bara í mjög litlu magni.“

Jóna stefnir ótrauð áfram á enn frek­ari sigra í líf­inu. Í sumar hyggst hún hlaupa 21 km í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu og svo langar hana mikið til þess að hjálpa öðrum til þess að losna við aukakílóin. „Fyrst ég gat þetta og var búin að missa alla von, geta aðrir þetta líka,“ segir hún að lokum.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son
Fatnaður / Next og Lindex
Förðun / Kristín Stef­áns­dóttir með NoName Cosmetics

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu