Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lúmskt gaman af þeim áskorunum sem fylgja þessu

Tæp fjögur ár eru nú liðin frá því að Hannes Axelsson byrj­aði að finna fyrir ein­kennum Lebers-augn­sjúk­dóms­ins en aðeins liðu níu mán­uðir frá fyrstu ein­kennum og þar til hann var orð­inn nær alveg blindur. Hann lætur það þó hvorki skil­greina sig né stoppa í að fram­kvæma hvað sem honum sýn­ist og útskrif­ast í vor sem heils­unudd­ari.

Lúmskt gaman af þeim áskorunum sem fylgja þessu

Hannes var vel kunnur Lebers-sjúk­dómnum áður en hann greind­ist, en bæði móðir hans og bróðir greindust með hann á undan honum ásamt fleirum fjöl­skyldu­með­limum. Sjúk­dóm­ur­inn er ætt­gengur og berst frá móður til barns. Lebers lýsir sér þannig að frumur í sjón­taug­inni hrörna og deyja, en allir þeir sem grein­ast með sjúk­dóm­inn missa nær alla sjón. „Ég byrj­aði að finna fyrir þessu árið 2015“ rifjar Hannes upp.

„Í lok apríl fann ég að ég var byrj­aður að sjá illa, átti erfitt með að lesa texta og svona. Svo gerð­ist þetta mjög hratt. Ég fékk form­lega grein­ingu í júlí, hætti svo að keyra í nóv­em­ber. Um jólin var aðeins eftir af litum, en svo fór ég í utan­lands­ferð í febr­úar 2016 og þá var allt farið.“

Lúmskt gaman að þeim áskorunum sem fylgja

Hannes mælist í dag með 5-10% sjón, svo­kall­aða jað­ar­sjón. „Það lýsir sér þannig að ég sé ekki það sem er beint fyrir framan mig, það er eins og þykkt ský sé í miðj­unni. Ég sé stundum útlínur og get greint hvort það sé dimmt eða bjart úti. Í raun eru augun alveg heil, það er sjón­taugin sem er gölluð. Auðvitað var það högg þegar ég greind­ist, en það mild­aði höggið ef svo má segja, að aðrir úr fjöl­skyld­unni hafi fengið þetta á undan mér.

Mig langar að vera fyr­ir­mynd fyrir fólk sem glímir við erf­ið­leika og sýna að ég geti gert það sama og allir aðrir.

Ég þekkti sjúk­dóm­inn, hafði horft á mömmu fá þetta fyrir 15 árum, bræður hennar líka og svo bróður minn. Þannig að ég vissi að það var vel hægt að lifa með þessu. Ég er með mjög mikið keppn­is­skap og finnst lúm­skt gaman að takast á við þær áskor­anir sem fylgja þessu. Að fara út í búð, rata á rétta staði og svo fram­vegis. Það er svo mik­il­vægt að tapa ekki fyrir sjálfum sér, heldur gera bara gott úr aðstæðum. Mig langar að vera fyr­ir­mynd fyrir fólk sem glímir við erf­ið­leika og sýna að ég geti gert það sama og allir aðrir, þrátt fyrir að vera blindur. Ég vil ekki vera kall­aður hetja fyrir það að elda eða sjá um heim­il­is­verk. Auðvitað er í góðu lagi að hrósa og um að gera. Um dag­inn kom maður að mér og sagði að hann dáð­ist að mér og það fannst mér frá­bært að heyra. Ég vil enga vor­kunn en aðstoð er auð­vitað alltaf vel þegin.“

Ekki það versta í heimi

Aðspurður hvað það sé sem hann sakni mest að sjá, svarar Hannes að það séu allir litlu hlut­irnir í líf­inu. „Ég var mikið í fót­bolta þegar ég var yngri og sakna þess eig­in­lega mest að geta ekki spilað lengur. Svo langar mig auð­vitað að sjá kærust­una mína og svona, en við höfum verið saman síðan 2012 svo ég man alveg hvernig hún lítur út. Ég fæ stundum þá spurn­ingu hvort að hin skiln­ing­ar­vitin mín hafi breyst eftir að sjónin fór, til dæmis hvort ég heyri betur.

Hannes er ein­stak­lega jákvæður og lítur ekki á sjón­miss­inn sem hindrun fyrir neinu.

Þau verða kannski ekki betri en verða mun æfð­ari að mínu mati. Ég þarf að muna allt. Hvar kantar og ljósastaurar eru, hvar vörur eru í búð­inni og svo fram­vegis. Ég bý í Breið­holt­inu og hef alltaf gert, svo þekki vel til í umhverf­inu og er mjög öruggur hér.“

„Á pabba mikið að þakka“

Þrátt fyrir að vera aðeins 27 ára hefur Hannes upp­lifað margt í líf­inu, bæði góða hluti og slæma. Þegar hann var 14 ára lést faðir hans úr tauga­hrörn­un­ar­sjúk­dómi sem hann hafði barist við í nokkur ár. Hann segir þá reynslu hafa breytt sér.

„Ég á pabba mikið að þakka. Hann var svo góð fyr­ir­mynd og það var ekki hægt annað en að líta upp til hans. Mitt vesen er ekk­ert til að tala um, miðað við það sem hann þurfti að ganga í gegnum. En hann gafst aldrei upp og það er það sem ég vil miðla áfram. Mamma hefur einnig verið mér mikil fyr­ir­mynd, en hún missti sjón­ina fyrir 15 árum. Þau hafa sýnt mér að það er allt hægt. En eftir svona reynslu breyt­ist eitt­hvað inni í manni. Ég var alltaf með harða skel utan á mér en nú er ég orðin miklu meiri til­finn­inga­vera. Þetta hefur gert mig að betri manni.“

Ég hef aldrei verið reiður yfir þessu hlut­skipti, þetta er alls ekki það versta í heimi.

Hannes er ein­stak­lega jákvæður og lítur ekki á sjón­miss­inn sem hindrun fyrir neinu. „Ég hef aldrei verið reiður yfir þessu hlut­skipti, þetta er alls ekki það versta í heimi. Stundum verð ég pirr­aður, ég við­ur­kenni það, eins og þegar ég geng á vegg eða staur. Það er erfitt að ganga bros­andi frá því. En það sem mér finnst verst er þegar ég í aðstæðum, í sam­kvæmi eða ein­hver­staðar og vera að spjalla við mann­eskju sem veit ekki af því að ég sé blindur. Svo minn­ist ég á að ég sjái illa og þá breyt­ist allt í einu við­mótið, kemur yfir mann­eskj­una ein­hver vor­kunn eða álíka. Það eru einu skiptin sem ég upp­lifi að ég sé ekki nógu góður.

Það síð­asta sem ég vil er vor­kunn. Því þrátt fyrir að ég hafi misst sjón­ina þá finnst mér ég virki­lega lán­samur. Ég er heil­brigður, á góða fjöl­skyldu, tengda­fjöl­skyldu og vini og vinn við það sem ég elska. Ég man alltaf eftir setn­ingu sem góður vinur minn sagði við mig stuttu eftir að ég greind­ist. Hann sagði: „þú ert alla­vega ekki að fara að deyja.“

Það hjálp­aði mér við að sjá hlut­ina í réttu ljósi því það er bara þannig að þú ræður ekki hvað kemur fyrir þig en þú ræður hvernig þú tekur á því. Það eru tvær leiðir í líf­inu, að detta niður í vol­æði og þung­lyndi eða taka slag­inn. Ekki það, ég lendi oft á vegg. Sko bók­staf­lega lendi á vegg,“ segir Hannes glott­andi. „En þá skiptir öllu að halda bara áfram. Það sem tekur flesta fimm mín­útur, tekur mig kannski klukku­tíma, eins og að fara í Bónus, en ég er það þrjóskur að eðl­is­fari að ég geri það samt.“

Var ekki aftur snúið

Hannes hefur eins og fyrr segir lært nudd síð­ustu ár og útskrif­ast í vor. Hann byrj­aði í nám­inu stuttu eftir að sjónin fór og við­ur­kennir að það hafi vissu­lega verið mikil áskorun að læra bók­leg fög eins og vöðva­fræði án þess að sjá neitt. „Ég var að læra líf­einda­fræði áður og hef mik­inn áhuga á þess­ari speki sem fylgir nudd­inu. Það er mikil líf­fræði á bak við og ég elska að pæla í þessu öllu. Ég var ekki alveg viss í byrjun hvort þetta væri fyrir mig, fannst hálf­skrítin til­hugsun að vinna við að snerta fólk alla daga.

Tengda­mamma mín er nudd­ari, bróðir mömmu og bróðir minn, svo þetta var ekki svo fjar­lægt mér. Ég fékk mik­inn stuðn­ing í nám­inu og um leið og ég byrj­aði var ekki aftur snúið, ég hrein­lega elska þetta. Mér finnst ekk­ert skemmti­legra en að hjálpa fólki með lík­am­lega kvilla og sjá árangur. Andlegi part­ur­inn er hluti af þessu líka. Sumir tjá sig mikið á bekknum og mér finnst alltaf gott þegar fólk er til­búið að treysta mér fyrir erf­iðum hlutum. Þá reyni ég að miðla minni reynslu og er alltaf til­bú­inn að hjálpa. Enginn vanda­mál eru ómerki­leg ef þau eru að hrjá þig, ég lít þannig á það. Þó að ég sé blindur myndi ég aldrei gera lítið úr vanda­málum ann­arra.“

Ásamt nudd­inu vinnur Hannes á frí­stunda­heim­ili með börnum í 1.-4. bekk. „Ég hef rosa­lega gaman af því og á erfitt með að slíta mig frá. Það á vel við mig að starfa með börnum, þau eru svo hrein­skilin og skemmti­leg. Þau eru alltaf að prófa mig, „sérðu þetta, sérðu hitt, hvað held ég uppi mörgum puttum?“ Ég er mikil félags­vera og hef þörf fyrir að miðla reynslu minni og hjálpa náung­anum. Mér finnst órétt­læti leið­in­legt, sér­stak­lega þegar það teng­ist öldruðum, fötl­uðum eða hverjum þeim sem minna mega sín. Lífið er svo góð gjöf að maður á að gera allt sem maður getur til að njóta þess, sama hvað bjátar á, nýta öll tæki­færi og ekki sjá eftir neinu.

Lífið er svo góð gjöf að maður á að gera allt sem maður getur til að njóta þess.

Mér finnst ekk­ert sorg­legra en að heyra sögur af fólki sem hefur ekki talað við fjöl­skyldu­með­limi sína í ein­hverjar vikur, mán­uði eða jafn­vel ár. Það er eitt­hvað sem ég gæti aldrei gert og ætla aldrei að gera. Ég vil hafa allt uppi á borðum og er alltaf til­bú­inn að gera gott úr hlut­unum, ving­ast og biðj­ast afsök­unar. Jafnvel þó að mann­eskjan á móti mér geri eitt­hvað sem er órétt­látt, ég er mjög fljótur að fyr­ir­gefa. Það sem ég hef upp­lifað í líf­inu hefur kennt mér að meta það betur,“ segir Hannes Axelsson að lokum.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu