Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þyrfti að vera dýrlingur til að misstíga sig aldrei

Þjóð­ar­ger­semin Ebba Guðný Guð­munds­dóttir hefur kennt okkur góðar mat­ar­venjur og hvatt til heilsu­sam­legs líf­ernis í mörg ár. Það er ein­hvern veg­inn þannig að þegar Ebba talar þá hlustum við. Við fengum hana í spjall um það sem skiptir raun­veru­lega mestu máli.

Þyrfti að vera dýrlingur til að misstíga sig aldrei
Ebba Guðný prýðir for­síðu nýj­ustu Vikunnar.

Ebba Guðný er kenn­ari að mennt en síð­ast­liðin fimmtán ár hefur hún starfað sem fyr­ir­les­ari og rit­höf­undur. Bækur hennar hafa slegið í gegn og nokkrar þeirra verið seldar á erlendri grundu. Margir þekkja hana af skjánum úr sjón­varps­þátt­unum Eldað með Ebbu en RÚV er með þá í end­ur­sýn­ingu um þessar mundir.

Hún seg­ist vera virki­lega þakk­lát fyrir frelsið sem fylgir því að geta unnið sjálf­stætt og ráðið tíma sínum sjálf. Þakklát fyrir að þurfa ekki að vinna meira en hún vill og ræður við hverju sinni. Ebba er vin­sæll fyr­ir­les­ari þegar kemur að heilsu og nær­ingu barna og fjöl­skyld­unnar en hún hefur einnig unnið snar­lid.is með Krónunni sem hefur verið far­sælt sam­starf en þar er boðið upp á ókeypis mat­reiðslu­nám­skeið fyrir börn í Salt eld­húsi.

Ég hef til dæmis verið að fikta við það að leika og hef mjög gaman af því og er búin að fara á nokkur leik­list­ar­nám­skeið.

„Ég dunda mér líka við að skrifa hjá mér þegar mér dettur í hug eitt­hvað snið­ugt til að setja í nýja þátta­röð, hvenær svo sem mér tekst að hnoða henni end­an­lega saman svo ég sé sátt. Svo er alltaf eitt­hvað sem dettur inn á borð hjá mér. Ég hef til dæmis verið að fikta við það að leika og hef mjög gaman af því og er búin að fara á nokkur leik­list­ar­nám­skeið. Ég er ekki frá því að ég sé frá­bær leik­kona,“ segir sjarmadísin skæl­bros­andi og það er ekki erfitt að sjá hana fyrir sér slá í gegn á hvíta tjald­inu.

Ebba fékk áhuga á sam­spili nær­ingar, heilsu og almennri líðan þegar hún var tví­tug en þá tók hún veru­lega til í matar­æði sínu.

„Ég hef alla tíð verið við­kvæm í maga og bara við­kvæm almennt. Ég byrj­aði þá að nota líf­rænt gróft spelt í stað­inn fyrir hveiti, sleppti öllu geri, not­aði líf­rænan óunn­inn hrá­sykur í stað­inn fyrir hvítan sykur og minnk­aði allan sykur. Sleppti öllu gosi, lærði að elda græn­met­is­rétti og fór að borða meira af góðri fitu.

Mér leið betur þegar ég gerði þetta og fannst þetta lógískt. Þegar ég var orðin tutt­ugu og sjö ára og eign­að­ist Hönnu, dóttur mína, þá var ég mjög æst í að reyna að ala hana upp á hollum og hreinum mat, þannig að hún yrði heil­brigð og hraust, liði vel og þyrfti ekki að breyta um matar­æði einn dag­inn. Sér­stak­lega ef hún hefði erft mag­ann minn og við­kvæmni.“

Ebba seg­ist vera holl­ustu­á­huga­mann­eskja í fjórða ætt­lið. Mamma hennar bjó til allan barna­mat sjálf og eld­aði ofan í fjöl­skyld­una af mik­illi ástúð, oft­ast nær frá grunni. Góðan og hollan mat.

„Langamma mín var ljós­móðir, fædd 1879 og ól börnin sín upp með það vega­nesti að þau gætu sjálf bætt heilsu­far sitt með því að huga að holl­ustu því margt gæti maður sjálfur gert til að bæta eigin líðan. Sonur hennar, pabbi mömmu, afi minn Jóhannes, fæddur 1914 borð­aði í mörg ár hjá Nátt­úru­lækn­inga­fé­lag­inu þegar hann var ungur og kenndi ömmu minni, sem var yngri en hann, að hafa græn­meti og salat með matnum. Hann fram­leiddi þara­töflur, hafði mikla trú á þara og mamma tók þær inn alla sína bernsku. Amma og afi voru svo þar að auki bind­ind­is­fólk. Ég held að svona erf­ist ein­fald­lega milli kyn­slóða, áhug­inn og vit­neskjan. Bæði mamma og pabbi eru þar að auki dug­leg að elda mat og hafa gaman af því og ömmur mínar allar miklar hús­freyjur, síeld­andi, bak­andi og tak­andi til.“

En hvað finnst henni mik­il­væg­ast að kenna börnum sínum þegar kemur að matar­æði og heilsu­sam­legu líf­erni?

„Ég held mér finn­ist mik­il­væg­ast að reyna sitt besta til að venja börnin sín á það sem gerir þeim gott. Góðar og slæmar venjur fylgja manni gjarnan út lífið. Til dæmis að venja þau á að drekka vatn. Ekki djús, ekki gos, ekki mjólk, bara vatn og aftur vatn. Bara þetta litla atriði getur bætt heilsu þeirra (og tann­heilsu) og líðan svo mikið. Fyrir utan að þetta er miklu ódýr­ara og umhverf­is­vænna.

Mín börn voru fljót að með­taka það og í dag eru þau ung­lingar sem drekka það nær ein­göngu. Ég bann­aði þeim þó aldrei að drekka gos, djús eða mjólk.
Ebba Guðný er upp­full af visku og hefur mikla ástríðu fyrir barna­upp­eldi, holl­ustu og hinu jákvæða í lífnu.

Til að byrja með stjórnum við að mestu hvað börnin okkar borða og þann tíma er gott að nýta vel. Að hafa alltaf vatn með matnum og á milli mála. Taka vatn með allt sem farið er (ferða­lög, bíó o.s.frv.). Og seinna meir er snjallt að útskýra fyrir þeim ávinn­ing­inn af því að drekka ein­göngu vatn. Mín börn voru fljót að með­taka það og í dag eru þau ung­lingar sem drekka það nær ein­göngu. Ég bann­aði þeim þó aldrei að drekka gos, djús eða mjólk. Ég sagði þeim að gos skemmdi tennur og hversu ávana­bind­andi það væri, syk­ur­inn og koff­ínið og flestir sem drekka gos væru alltaf að reyna að minnka það eða hætta því. Útskýrði fyrir þeim að það ein­faldar lífið mikið að venja sig ekki á eitt­hvað sem gerir manni illt.

Við erum flest mjög vana­föst. En auð­vitað eru sum börn ævin­týra­gjörn og verða að prófa en það sakar aldrei að vera búinn að útskýra og kenna. Börn geta ekki áttað sig á ein­hverju svona sjálf. Þegar þau eru lítil má segja þeim að gos sé sterkt og gretta sig um leið.

Fyrir utan þetta dæmi þá finnst mér heilt yfir gott að reyna að venja börn á fjöl­breyttan, hreinan og hollan mat. Reyna að forð­ast aukefni og sykur eins og hægt er og án öfga. Kenna þeim að borða hollt fyrst, áður en sæt­indi eru borðuð. Þá er auð­veld­ara að borða hóf­lega af sæt­ind­unum, sem er aug­ljós­lega holl­ara fyrir mann, af því bæði fita og prótín í hollum mat mettar mann og temprar blóð­syk­ur­inn. Þannig minnkar maður einnig lík­urnar á því að þróa með sér syk­ur­sýki og alls­konar aðra sjúk­dóma sem tengj­ast syk­ur­neyslu og eru að verða algeng­ari í dag.“

Ebba Guðný er upp­full af visku og lífs­skoð­anir hennar og vanga­veltur koma vel fram í flottu for­síðu­við­tali í nýj­ustu Vikunni, meðal ann­ars hvað varðar barna­upp­eldi. „Mér finnst mik­il­vægt að tala fal­lega til barna. Ekki öskra, ríf­ast og skamma. Þó að það ger­ist auð­vitað stundum. En þá er hægt að biðj­ast fyr­ir­gefn­ingar,“ segir hún og tekur fram að auð­vitað missi all­flestir sig á ein­hverjum tíma­punkti við börnin sín og mis­stígi sig í upp­eld­inu, að það sé eðli­legt.

Myndir / Hallur Karlsson
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­meist­ari Yves Saint Laurent á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu