Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Alltaf erfiðara og erfiðara að fara í burtu“

Greta Salóme Stef­áns­dóttir er óum­deil­an­lega ein af okkar ást­sæl­ustu tón­list­ar­konum. Hún hefur starfað mikið utan land­stein­anna en er nú að flytja sig meira og meira heim. Í ein­lægu við­tali talar Greta um þörf­ina fyrir að gera stöðugt betur, ást­ina í lífi sínu og barn­eignir.

„Alltaf erfiðara og erfiðara að fara í burtu“

Í upp­hafi árs ein­setti Greta sér því að flytja heim eftir að hafa starfað að miklum hluta til utan­lands. Hún seg­ist sífellt fær­ast nær mark­mið­inu þrátt fyrir að hafa nú dvalið meiri­hluta þess sem af er árs utan land­stein­anna. „Það er alltaf að kom­ast meira og meira jafn­vægi á þetta og í dag segi ég stolt að ég sé alveg flutt heim. Þetta hefur verið frá­bær tími og skemmti­leg tæki­færi sem ég er síður en svo hætt að nýta mér þótt ég finni loks­ins þörf­ina að vera hér heima.

Það er svo skrítið hvernig hlut­irnir skella á manni því skyndi­lega fannst mér alltaf erf­ið­ara og erf­ið­ara að fara í burtu frá Íslandi.“

Greta byrj­aði fjög­urra ára að spila á fiðlu og segir hún að þar með hafi fram­tíðin verið ráðin. Það var svo árið 2014 sem stóra kallið kom en þá hafði umboðs­maður innan Disney-sam­steypunnar sam­band við umboðs­skrif­stofu Gretu og bauð henni samn­ing.

Þetta var einn skemmti­leg­asti tölvu­póstur lífs míns, þennan mánu­dags­morgun í mars.

„Þetta var einn skemmti­leg­asti tölvu­póstur lífs míns, þennan mánu­dags­morgun í mars þar sem ég las um áhuga Disney að fá mig til að setja upp sýn­ingu í einu af skip­unum þeirra. Ég vissi ekk­ert hvað ég var að fara út í en áleit að bara það að fá Disney á fer­il­skrána væri eitt­hvað sem ég gæti ekki hafnað,“ útskýrir Greta.

Þegar samn­ingur Gretu rann út í nóv­em­ber 2014 var henni boð­inn svo­kall­aður hea­d­liner-samn­ingur og við tók ferli þar sem hún dvaldi í Orlando og vann með leik­stjórum, graf­ískum hönn­uðum, dönsurum og fleirum frá Disney. Saman sömdu þau svo stór­sýn­ingu sem sýnd hefur verið á Disney Magic-skip­inu síðan árið 2015.

„Margir halda að ég sé bara að leika Elsu í Frozen og syngja ein­hver Disney-lög þarna úti en raunin er allt önnur. Þarna er ég bæði að syngja og dansa, flýg meira að segja og tek mín eigin lög ásamt Disney-lögum. Tón­leika­sal­ur­inn tekur um tvö þús­und gesti en sýn­ingin er algjör­lega háð því að ég sé sjálf á staðnum. Lengsti samn­ing­ur­inn minn var árið 2015 en síðan þá hef ég tekið þátt í sýn­ing­unni á hverju ári og í ár verður engin breyt­ing þar á.“

Um ástina og barneignir

Tæp tíu ár eru nú síðan Greta kynnt­ist ást­inni í lífi sínu en parið setti upp hring­ana í byrjun þessa árs. „Ég er svo oft spurð að því hvernig kærast­inn minn höndli öll þessi ferða­lög mín og hvort þetta sé ekki erfitt fyrir sam­bandið. Það væri algjör lygi ef ég myndi segja að þetta væri alltaf auð­velt. Við, hins vegar, fáum svo sann­ar­lega ekki ógeð hvort á öðru miðað við alla þessa fjar­veru. Ég er svo ótrú­lega heppin að eiga mann sem hvetur mig enda­laust áfram í því sem ég er að gera og ég tek því ekki sem sjálf­sögðum hlut.

Ég held ég hafi hrein­lega aldrei hitt jafn­dug­legan og metn­að­ar­fullan ein­stak­ling með jafn­mikið jafn­að­ar­geð.

Hann hlær líka stöðugt að öllu rugl­inu sem fylgir þessum lífs­stíl og brosir bara þegar ég er að henda úr ferða­tösku og pakka í aðra á sama tíma og orðin sein í gigg. Hann er ein­fald­lega ein­stakur og gerir mér kleift að lifa á þennan hátt. Hann er sjálfur ótrú­lega dríf­andi og vinnur í fyr­ir­tækja­fjár­fest­ingum hjá Íslands­banka. Ég held ég hafi hrein­lega aldrei hitt jafn­dug­legan og metn­að­ar­fullan ein­stak­ling með jafn­mikið jafn­að­ar­geð og Elvar Þór og ég hef lært rosa­lega mikið af honum.

Greta prýðir for­síðu nýjasta tölu­blaðs Vikunnar. Myndina tók Aldís Páls­dóttir.

Þegar talið berst að frek­ari fram­tíð­ar­á­formum og hugs­an­legum barn­eignum vefj­ast svörin ögn fyrir Gretu.

„Ég hef ekki tjáð mig um þessi mál opin­ber­lega fyrr enda við­kvæmt mál­efni, en það er svo ótrú­lega oft sem ég heyri setn­ing­una: ,,Þetta breyt­ist allt saman þegar þú eign­ast börn,“ og þá er fólk að vísa í þennan hraða lífs­stíl sem við lifum, sem og ferða­lögin. Auðvitað er það rétt að ein­hverju leyti og ég held að ef ég eign­ast börn eigi það að sjálf­sögðu eftir að verða það mik­il­væg­asta í lífi mínu.“

Þetta er brot úr frá­bæru við­tali við þessa ein­stöku konu í nýj­ustu Vikunni.

Myndir / Aldís Páls­dóttir
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­fræð­ingur Yves Saint Laurent

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu