Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hin íslenska Miss Marple tekur frummyndinni fram

Hún Edda á Birki­melnum, sögu­hetjan í Eddu­bókum Jónínu Leós­dóttur, hefur unnið hugi og hjörtu íslenskra les­enda með vask­legri fram­göngu við lausn saka­mála, óseðj­andi for­vitni og hressi­lega hrein­skiln­is­legum skoð­unum á hinu og þessu í sam­fé­lag­inu.

Hin íslenska Miss Marple tekur frummyndinni fram

Hún er eig­in­lega frekar óþol­andi per­sóna sem les­endur myndu kannski forð­ast ef hún væri raun­veru­leg en sem sögu­per­sóna hittir hún í mark og minnir um margt á eina ást­sæl­ustu per­sónu glæpa­bók­mennt­anna, hina hnýsnu sletti­reku Miss Marple sem Agatha Christie gerði ódauð­lega í hverri met­sölu­bók­inni af annarri á síð­ustu öld. Það er eitt­hvað við þessar afskipta­sömu eldri dömur sem er ein­fald­lega ómót­stæði­legt.

Í einni bók­inni um Eddu ásakar Snorri, hinn önug­lyndi sonur hennar, hana um að vera haldin „Miss Marple-komp­lex“ og hann hefur ýmis­legt til síns máls. Eins og Miss Marple er Edda bráð­skörp, hefur óþrjót­andi áhuga á umhverfi sínu og öðru fólki og er glúrin við að finna þræð­ina sem leiða til þess að glæpa­mað­ur­inn finnst. Edda er hins vegar auð­vitað mun nútíma­legri per­sóna en Miss Marple, enda kom sú góða kona fyrst fram á sjón­ar­sviðið árið 1927 og er skil­getið afkvæmi síns tíma. Í fyrstu bók­inni, Morðið á prest­setr­inu, er hún reyndar hvorki vin­sæl né aðdá­un­ar­verð per­sóna, mikil slúð­ur­kerl­ing með nefið ofan í hvers manns koppi, smjatt­andi á óförum ann­arra og les­endur voru frekar ósáttir við hana en Agatha Christie gerði hana við­kunn­an­legri í seinni bókum og það end­aði auð­vitað með því að les­endur voru farnir að elska og dá þessa gömlu piparjúnku sem enda­laust skipti sér af lífi ann­arra.

„Ekki svo að skilja að Edda taki með­vit­aða ákvörðun um það að ger­ast ein­hver Miss Marple, for­vitni hennar og löngun til að hjálpa náung­anum leiða hana óvart út á þessa braut og eftir fyrsta málið verður ekki aftur snúið. Hún verður að leysa gát­urnar.“

Miss Marple hefur aldrei unnið utan heim­ilis, og reyndar varla innan heim­ilis heldur, þar sem hún hefur alltaf þjón­ustu­stúlkur á heim­il­inu, en Edda er hins vegar fyrr­ver­andi versl­un­ar­stjóri bóka­búðar og full­kom­lega fær um að sjá um sig sjálf. Í fyrstu bók­inni, Konan í blokk­inni, er hún nýkomin á eft­ir­laun og pínu­lítið átta­villt í til­ver­unni, ver­andi íðil­hress kona á besta aldri þarf hún aug­ljós­lega á því að halda að finna lífi sínu til­gang og fylla dag­ana af ein­hverju áhuga­verðu og þar koma saka­málin til sög­unnar. Ekki svo að skilja að Edda taki með­vit­aða ákvörðun um það að ger­ast ein­hver Miss Marple, for­vitni hennar og löngun til að hjálpa náung­anum leiða hana óvart út á þessa braut og eftir fyrsta málið verður ekki aftur snúið. Hún verður að leysa gát­urnar.

Kafað í samfélagið

Þrátt fyrir ýmis lík­indi þeirra stall­systra Eddu og Jane Marple er þó miklu fleira sem er ólíkt með þeim, sér­stak­lega í einka­lífi þeirra og aðstæðum. Jane Marple hefur aldrei gifst, á engin börn né nána ætt­ingja og virð­ist verja meiri­hlut­anum af lífi sínu í heim­sóknum hjá fólki sem hún þekkir mis­mikið. Edda, hins vegar, á hjóna­band að baki, hún á tvö börn, tvo tengda­syni og tvö barna­börn og stærð­ar­innar tengsla­net.

Hún er vön því að bjarga sér sjálf og þótt sam­skiptin við börnin séu svona upp og niður eru þau þó snar þáttur í lífi hennar og engan veg­inn hægt að segja að hún sé ein í lífs­bar­átt­unni. Ein skemmti­leg­asta auka­per­sóna bókanna er svo tengda­son­ur­inn Viktor, en hann og Edda eru miklir vinir og hitt­ast oft til að slúðra og drekka rauð­vín saman. Samræður þeirra eru oft stór­skemmti­legar og sýna hlið á Eddu sem hún birtir ekki oft í sam­skiptum við aðra.

Það sem bóka­flokk­arnir um Eddu og Miss Marple eiga þó enn frekar sam­eig­in­legt en lík­indin milli aðal­per­són­anna, er að höf­und­arnir eru miklir mann­þekkj­arar og sögur per­són­anna sem bland­ast í málin sem þær stöllur leysa eru djúpar og vel byggðar.

Ólíkt því sem oft ger­ist í glæpa­sögum fáum við að kynn­ast þeim sem við­kom­andi glæpir snerta mest og um leið verða sög­urnar sam­fé­lags­rýni sem skiptir máli, ekki bara ein­faldar morð­gátur sem öll frá­sögnin gengur út á að leysa.

Jónína Leós­dóttir hefur í bókum sínum um Eddu tekið fyrir ýmis mál sem eru áber­andi í sam­fé­lags­um­ræð­unni og í nýj­ustu bók­inni, Barnið sem hróp­aði í hljóði, er meg­in­þemað heim­il­is­of­beldi og þá ekki síst áhrif þess á börn að alast upp við slíkt.

Óhemju sterkir kaflar eru sagðir í fyrstu per­sónu af barni sem horfir upp á föður sinn mis­þyrma móður sinni og það er hjarta­laus mann­eskja sem ekki verður djúpt snortin af þeim lestri. Í bók­inni er sjónum einnig beint að hlut­skipti trans barna í íslensku sam­fé­lagi og sú saga er ekki síður hug­vekj­andi. Því þótt yfir­bragð bókanna um Eddu sé létt­leik­andi og oft og tíðum drep­fyndið þá er hér samt tek­ist á við alvar­leg sam­fé­lags­mein með afger­andi hætti og les­and­inn neyddur til að horfast í augu við ýmis­legt óþægi­legt sem oft er sópað undir teppi. Og það án þess að nokk­urs staðar örli á predikun eða til­raunum til að troða boð­skapnum upp á les­and­ann. Þetta er skemmti­lestur með grafal­var­legum und­ir­tóni.

„Í einni bók­inni um Eddu ásakar Snorri, hinn önug­lyndi sonur hennar, hana um að vera haldna „Miss Marple-komp­lex“ og hann hefur ýmis­legt til síns máls. Eins og Miss Marple er Edda bráð­skörp, hefur óþrjót­andi áhuga á umhverfi sínu og öðru fólki og er glúrin við að finna þræð­ina sem leiða til þess að glæpa­mað­ur­inn finnst.“

Jónína hefur gefið það í skyn að næsta bók um Eddu verði sú síð­asta í bóka­flokknum en aðdá­endur Eddu eru síður en svo sáttir við það. Okkur finnst eig­in­lega lág­mark að Edda fái tólf bækur um sig eins og Miss Marple vin­kona hennar og að við fáum að fylgj­ast með henni eld­ast. Það væri ekki sann­gjarnt að láta okkur elska hana meira með hverri bók og taka hana síðan frá okkur. Við þurfum okkar árlega Eddu­skammt. Hún er nefni­lega skugga­lega ávana­bind­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu