Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fannst Berlín fyrst grá og guggin

Þó að Margrét Rós Harð­ar­dóttir sé ávallt kennd við hóp sem kallar sig Berlínur í sam­nefndri borg þá var hún ekki spennt fyrir borg­inni í upp­hafi.

Fannst Berlín fyrst grá og guggin

„Matthias mað­ur­inn minn vildi fara til Berlínar. Ég var hins vegar ekki alveg á því, fannst hún allt of stór og mér fannst hún grá og guggin. En þá vildi það þannig til að við skruppum til New York og dvöldum þar í rúmar tvær vikur með strák­inn okkar, þá átta mán­aða. Þar gerð­ist það að ég gjör­sam­lega heill­að­ist af borg­inni og stór­borg­ar­líf­inu og fékk löngun til að setj­ast að í stór­borg. Þannig atvik­að­ist það að við fluttum til Berlínar. Það má því segja að ástin hafi leitt mig hingað til Berlínar,“ segir Margrét Rós sem stofn­aði Berlínur árið 2014 með Katrínu Árna­dóttur og síðan hefur fyr­ir­tækið dafnað vel og stækkað. Fyr­ir­tækið stendur fyrir fjöl­breyttum og skemmti­legum ferðum fyrir Íslend­inga um Berlín, hjóla­ferðum, mat­ar­ferðum, sögut­úrum og árs­há­tíð­ar­ferðum, svo fátt eitt sé nefnt.

Mundir þú segja eftir sjö ára búsetu í borg­inni að Berlín væri orðin þinn hjarta­staður?

Það stendur ekki á svar­inu. „Já svo sann­ar­lega er hún það.“

Hvaða staðir eru það í Berlín sem þú mundir ráð­leggja öllum að koma á?

„Ég mundi segja að heim­sókn í Clärchens Ballhaus í August­strasse í Mitte sé eitt­hvað sem fólk megi bara ekki missa af,“ segir Margrét og hrifn­ingin leynir sér ekki. „Þetta er sögu­frægt og fal­legt dans­hús. Skemmti­legar skreyt­ingar á veggjum og stórsjar­mer­andi spegla­salur á efri hæð­inni. Þarna  dansar alla daga fólk af öllum þjóð­ernum og á öllum aldri. Þetta er ynd­is­leg upp­lifun og maður þarf ekki að kunna neitt. Bara að vera með. Vissa daga er það tangó eða swing og á laug­ar­dags­kvöldum er alveg klikkað diskó í gangi með hljóm­sveit. Á sunnu­dögum er bara kaffi og kökur og þá eru dans­aðir valsar. Það er hægt að fá sér eitt­hvað gott í gogg­inn, fylgj­ast með og fá sér snún­ing. Stór­kost­leg skemmtun þar sem Berlín­ar­búar hitt­ast, ungir og gamlir. Þarna er þver­sniðið af Berlín. Það er flest fólk um helgar og þá sér í lagi á laug­ar­dögum en á virkum dögum eru færri og þá er rólegra.

„Svo hef ég sér­stakt dálæti á því hvernig Berlín sam­einar nátt­úru og borg.“

Ég ráð­legg fólki líka að fara inn í hverfin og kanna þau, því hvert hverfi er heimur út af fyrir sig. Finna alla litlu stað­ina sem eru á hverju strái. Ég held líka mikið upp á Kollwitz Platz. Á torg­inu blasir við gríð­ar­stór stytta af Käte Kollwitz sem var fyrst þýskra kvenna til að vera tekin inn í mynd­list­araka­dem­í­una. Hún var rót­tækur mann­vinur sem barð­ist allaf fyrir fátæka í Berlín eins og frá­bærar graf­ík­myndir hennar og teikn­ingar sýna.

Svo hef ég sér­stakt dálæti á því hvernig Berlín sam­einar nátt­úru og borg. Það eru margar strendur í Berlín við vötn sem leyn­ast hér og þar. Á sumrin eru þetta unaðs­reitir þar sem hægt er að kæla sig aðeins í vatn­inu og njóta þess að vera úti í nátt­úr­unni, þó í borg sé. Fyrir alla þá sem hafa áhuga á mat mæli ég með ferð á Markt­halle Neun í Kreutzberg. Þar er t.d. á fimmtu­dögum ein­stakur streetfood-mark­aður.“

Lestu við­talið við Margréti í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Vikunnar sem er í versl­unum til 24. apríl.

Texti / Svala Arn­ar­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu