Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Spennandi að kljást við svona karakter

Björgvin Franz Gíslason fer með hlut­verk hinnar skelfi­legu skóla­stýru, Karitasar Mínherfu í söng­leiknum Matt­hildi sem sýndur er um þessar mundir í Borg­ar­leik­hús­inu. Björgvin segir ákveðið frelsi fel­ast í að leika ill­menni þó að hann forð­ist sjálfur að beita slíkum belli­brögðum.

Spennandi að kljást við svona karakter

Björgvin Franz útskrif­að­ist frá Leik­list­ar­deild Lista­há­skóla Íslands vorið 2001 en sama ár fór hann með tit­il­hlut­verk í söng­leiknum Hedwig sem sýndur var hjá Leik­fé­lagi Íslands. Það var í fyrsta og eina skiptið sem hann túlk­aði konu á leik­sviði, þangað til nú tæpum tveimur ára­tugum síðar. „Það var virki­lega skemmti­legt að túlka Hedwig, sér­stak­lega svona skömmu eftir útskrift en ekki síður ánægju­legt að heyra að hlut­verk Karitasar Minherfu hefði fallið í mitt skaut síð­ast­liðið vor þegar ég frétti fyrst af því. Ég var gjör­sam­lega í skýj­unum.“

„Að mínu mati þjónar leik­húsið þeim til­gangi að skemmta, fræða og hreyfa við áhorf­endum á allan mögu­legan hátt og von­andi náum við að gera það hér í þess­ari sýn­ingu.“

Björgvin segir að sér hafi frá fyrstu tíð gengið óvenju­vel að tengja við lítt svo geðs­legan karakter og per­sóna skóla­stýrunnar geymir. „Svona í ljósi þess að hún er ill­menni hefur mér tek­ist furðu vel að tengj­ast henni. Kannski fyrst og fremst í ljósi þess að þarna undir niðri leyn­ist eflaust ákaf­lega hrædd mann­eskja sem reynir að hafa nægi­lega góða stjórn á öllu því sem hún telur sig geta ráðið við með ofríki og ofbeldi. Þarna leita ég þó ekki í eigin reynslu­heim enda reyni ég að forð­ast þessa hegðun að fremsta megni en ég leit­ast við að skilja hvaðan hún kemur og hvers vegna hún er svona óör­ugg.
Það felst líka ákveðin útrás í að leika svona ill­menni, maður fær eitt­hvað alveg sér­stakt kikk út úr því enda er svo vítt svið sem hægt er að fara í kringum geð­veik­ina sem henni fylgir. Fyrir leik­ara er það afar spenn­andi tæki að kljást við.“

Nýt þess meira nú en áður

Rúmt ár er nú síðan Björgvin Franz hóf störf hjá Borg­ar­leik­hús­inu en fram að því hafði hann meðal ann­ars starfað sem umsjón­maður Stund­ar­innar okkar um nokk­urra ára skeið. Síð­ast­lið­inn vetur tók hann við hlut­verki Einars í leik­rit­inu Jóla­flækju sem Bergur Þór Ing­ólfs­son skrif­aði og lék í und­an­farin jól en sama ár frum­sýndi hann söng­leik­inn Ellý sem enn er sýndur fyrir fullu húsi. Þar fer Björgvin með hlut­verk Ragga Bjarna en óhætt er að segja að hann hafi staðið söng­konu sam­nefnds söng­leiks afar nærri. „Það var alger­lega magnað að fá að stíga aftur á svið eftir allan þennan tíma. Ég nýt þess miklu meira nú en áður. Eftir að hafa leikið í sýn­ing­unni um Ellý yfir tvö hund­ruð skipti er ég alger­lega sann­færður um að þú getur ekki orðið leiður á hlut­verki ef þú gefur þig allan í það og elskar það út af líf­inu.“

Og nú þegar Björgvin Franz tekur þátt í annarri stór­sýn­ingu segir hann und­ir­bún­ings­tím­ann hafa verið algjör­lega magn­aðan.

„Þetta eru svo miklir snill­ingar sem maður er að vinna með að maður nýtur hvers vinnu­dags í botn. Ferlið í heild sinni hefur verið ein­stak­lega skemmti­legt og gef­andi. Maður hefur þurft að læra að vera dans­ari, söngv­ari, leik­ari og fim­leika­maður allt á sama tíma sem er frá­bær áskorun. Ég sé lít­inn mun á börnum og full­orðnum þegar kemur að verk­efnum sem þessum, ein­fald­lega vegna þess að börnin í þessum söng­leik eru ein­stakir atvinnu­menn og bera mikla virð­ingu fyrir vinnu­ferl­inu en eru á sama tíma gríð­ar­lega jákvæð og peppuð.“

Spurður um boð­skap verks­ins svarar Björgvin að hann sé marg­slung­inn þó að aðal­stefið snú­ist um ofbeldi og órétt­læti.

„Þau sem eru minni­máttar vilja auð­vitað stoppa það og í mætti sam­heldni, rétt­lætis og kær­leika tekst þeim tak­markið von­andi að lokum. Ég hafði lesið aðeins í bók­inni áður en æfingar hófust en líka séð mynd­ina. Ég sá svo söng­leik­inn í London sem var algjör­lega topp­ur­inn. Hann var engum líkur enda á þessi saga það til að búa til mikið „sprúðl“ og gleði á leik­svið­inu. Ég get eig­in­lega ekki lýst því sem faðir, hversu mjög ég gleðst yfir því að verk sem þetta rati á fjalir okkar íslenska leik­húss enda kemur þetta verk við svo margt sem við sem sam­fé­lag erum að fást við, hvort sem það snýr að sjón­varps­dýrkun, útlits­dýrkun, ofbeldi eða ofríki gagn­vart börnum og þeim sem minna mega sín. Að mínu mati þjónar leik­húsið þeim til­gangi að skemmta, fræða og hreyfa við áhorf­endum á allan mögu­legan hátt og von­andi náum við að gera það hér í þess­ari sýn­ingu.“

Mynd / Hákon Davíð

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu