Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Forboðnar ástir

Forboðnar ástir

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Maðurinn minn hélt fram hjá mér og þegar ég ákvað að fyrirgefa honum og taka saman við hann aftur varð allt vitlaust í fjölskyldu minni sem vildi að ég segði endanlega skilið við hann. Ég mun aldrei sjá eftir því að gefa honum annað tækifæri þótt hann hafi ekki átt það skilið.

Við Danni vorum rúm­lega tví­tug þegar við kynnt­umst og urðum ást­fangin og þegar við létum skíra elsta barnið okkar giftum við okkur í leið­inni. Tveimur árum síðar kom næsta barn í heim­inn og það þriðja og síð­asta eftir önnur tvö ár. Báðum fannst okkur gott að ljúka barn­eignum af á stuttum tíma.

Hjóna­bandið var gott og ég var alltaf mjög ást­fangin af Danna þótt hann væri kannski ekki fyr­ir­mynd­ar­eig­in­maður. Við rif­umst þó bara um hús­verkin eða skipt­ingu þeirra. Danni skaff­aði vel en mér fannst veru­lega ósann­gjarnt að vinnu­degi hans lyki mörgum klukku­tímum á undan mínum. Ég skildi ekki hvernig hann gat setið og slakað á yfir kvöld­matnum og síðan sjón­varp­inu á meðan ég var á þeyt­ingi um allt hús. Ég er viss um að hann hefur haldið að ég gerði lítið yfir dag­inn á meðan hann var í vinn­unni. Hann kom heim í hreint hús og gat gengið að föt­unum sínum vísum, hreinum og straujuðum inni í skáp, og lét eins og það gerð­ist af sjálfu sér. Svo sá ég líka um „karl­manns­verkin“, eins og að dytta að og mála en bróðir minn er smiður og var alltaf fús til að hjálpa ef eitt­hvað bil­aði eða skemmd­ist. Danni fór ekki einu sinni með bíl­inn í skoðun, hann sagði alltaf að skoð­un­ar­k­ar­l­arnir væru betri við konur og horfðu frekar fram hjá því sem gera þyrfti við bíla sem konur kæmu með.

Yfir­leitt horfði ég fram hjá öllu þessu því ég elskaði Danna minn heitt og hann hafði fjöl­marga kosti sem bættu upp gall­ana. Það var bara þegar ég var yfir mig þreytt sem ég missti þol­in­mæð­ina. Þegar Danni fékk áhuga á elda­mennsku sá hann um mat­ar­gerð um helgar og það fannst mér algjör lúxus. En þegar ég kom með þá hug­mynd að hann vaskaði sjálfur upp eftir elda­mennsk­una leið ekki langur tími þar til lang­þráð upp­þvotta­vél kom á heim­ilið.

Hræðileg uppgötvun

Árin liðu og líf mitt var gott. Ég var farin að vinna úti allan dag­inn og fannst dásam­legt að vera í sam­skiptum við aðra en bara börnin og eig­in­mann­inn.

Ég var önnum kafin við að und­ir­búa ferm­ingu yngsta barns­ins þegar ég fann að allt fór að breyt­ast. Veislan var haldin heima og eins og venju­lega tók Danni lít­inn þátt í und­ir­bún­ingnum. Ég var löngu hætt að kippa mér upp við það en fannst skrítið að hann skyldi flýja svona að heiman þótt ég væri að atast í eld­hús­inu en hann fór nán­ast á hverju kvöldi einn í bíltúr.

Ferm­ing­ar­veislan gekk mjög vel en nokkrum dögum seinna, þegar allt var orðið rólegt aftur, átt­aði ég mig fyrst almenni­lega á því hvað Danni hafði breyst. Hann hafði byrjað í lík­ams­rækt eftir ára­mótin, sagði það ára­móta­heitið sitt, en mér fannst hann hafa meiri áhyggjur af útlit­inu en heils­unni. Bílt­úr­arnir héldu áfram þótt veislan væri búin og ró komin yfir heim­il­is­lífið. Danni varð fúll þegar ég spurði hann hvort allt væri í lagi hjá okkur og sagð­ist ekki nenna svona yfir­heyrslum. Það gerði mig enn áhyggju­fyllri og sú hugsun að hann héldi fram hjá mér leit­aði á mig. Ég sagði engum frá áhyggjum mínum og von­aði að allt yrði gott aftur.

Eitt kvöldið þegar Danni var í baði sá ég að hann hafði gleymt gems­anum á hjóna­rúm­inu. Ég greip tæki­færið og kíkti í hann, ég varð að fá að vita vissu mína. Danni var í sam­skiptum við marga vinn­unnar vegna og ég sá fjölda síma­núm­era sem ég kann­að­ist ekki við. En ég sá að hann tal­aði oft við ein­hverja Önnu og þegar ég kíkti á síma­núm­erið á bak við nafnið sá ég að þetta var besta vin­kona mín sem ég hafði þekkt frá barn­æsku og var í miklum sam­skiptum við. Hún og mað­ur­inn hennar komu oft í mat til okkar og þau buðu okkur líka reglu­lega til sín. Fyrst hugs­aði ég með mér að þau tvö væru kannski að plana eitt­hvað snið­ugt fyrir fer­tugs­af­mælið mitt síðar á árinu en ég fyllt­ist samt óþægi­legri til­finn­ingu og ákvað að skoða SMS-in. Þar fann ég fjöl­mörg skila­boð milli hans og Önnu. Þau tengd­ust afmæli mínu ekki á nokkurn hátt, heldur var greini­legt að þau áttu í ást­ar­sam­bandi.

„Ég fyllt­ist samt óþægi­legri til­finn­ingu og ákvað að skoða SMS-in. Þar fann ég fjöl­mörg skila­boð milli hans og Önnu. Þau tengd­ust afmæli mínu ekki á nokkurn hátt …“

Ég setti gems­ann hans Danna á sama stað og dreif mig niður í eld­hús í miklu upp­námi. Danni kom niður korteri seinna og sagð­ist ætla í bíltúr. Hann tók ekki eftir neinu, enda sneri ég baki í hann þegar ég kvaddi hann. Ég hágrét eftir að hann var far­inn og var þakk­lát fyrir að börnin voru ekki heima.

Sættir og sælutímar

Þegar reiðin hafði náð yfir­hönd­inni, pakk­aði ég dót­inu hans Danna niður í stóra plast­poka og setti fram í for­stofu. Síðan sendi ég honum SMS um að ég vissi allt um hann og Önnu og að mér þættu þau bæði við­bjóðs­leg. Danni gæti komið og sótt dótið sitt en ég kærði mig ekki um að hitta hann.

Ég hringdi síðan í systur mína og bað hana um að koma og vera hjá mér um kvöldið og gista. Hún fékk að vita allt og varð bál­reið fyrir mína hönd.

Danni kom ekki heim fyrr en dag­inn eftir og reyndi fyrst að ljúga sig út úr þessu en ég neit­aði að hlusta á hann. Hann hunskað­ist í burtu og flutti tíma­bundið til bróður síns.

Við skildum í kjöl­farið en áður en skiln­að­ur­inn varð að lögum ákvað ég að fyr­ir­gefa honum og við tókum saman aftur. Það var eins og að eign­ast nýjan mann, svo mjög var Danni breyttur. Hann var hjálp­legri á heim­il­inu og svo miklu róm­an­tísk­ari en áður. Hann stóð við öll lof­orð sem hann hafði gefið mér um að breyt­ast.

Fjöl­skylda mín tók þessu mjög illa. Bæði for­eldrar mínir og systk­ini reyndu allt hvað þau gátu til að fá mig til að breyta ákvörðun minni. Það lá við að fjöl­skyldan sneri baki við mér en sem betur fer gerð­ist það ekki. Mér finnst eng­inn hafa leyfi til að skipta sér svona af einka­málum ann­arra en ég veit að þeim gekk gott eitt til og þau ótt­uð­ust bara að ég yrði særð aftur.

„Mér finnst eng­inn hafa leyfi til að skipta sér svona af einka­málum ann­arra en ég veit að þeim gekk gott eitt til og þau ótt­uð­ust bara að ég yrði særð aftur.“

Hjóna­band Önnu, fyrr­ver­andi bestu vin­konu minnar, stóð þetta af sér en ég hef ekki talað við hana síðan þetta gerð­ist.

Til að inn­sigla sætt­irnar og hefja nýtt og betra líf ákváðum við Danni að reyna að eign­ast fjórða barnið. Þótt ég væri orðin fer­tug varð ég ófrísk nán­ast um leið og í fyll­ingu tím­ans kom ynd­is­legur sonur í heim­inn. Ég var að springa úr ham­ingju. Eldri börnin okkar voru mjög ánægð og ekki síst með að við Danni hefðum tekið saman aftur.

„Hvað hef ég eiginlega gert þér?“

Allt gekk vel í rúm­lega þrjú ár en þá fann ég breyt­ingu á fram­komu Danna við mig og hann var sífellt meira að heiman. Að þessu sinni kom gems­inn ekki upp um hann, heldur kom bróðir hans í heim­sókn til mín og sagði mér að kona hans og Danni ættu í sam­bandi. Hann hefði grunað það um hríð en væri kom­inn með sann­anir fyrir því núna. Hann ætl­aði að tala við konu sína þegar hún kæmi heim úr „sauma­klúbbnum“ eða rétt­ara sagt frá því að hitta Danna. Fyrst hefði hann viljað láta mig vita. Ég var honum þakk­lát fyrir það. Ekki var ég jafn­hug­ul­söm við mann Önnu þegar Anna hélt við mann­inn minn. Ég hef alltaf haft á til­finn­ing­unni að hann hafi fengið veru­lega fegraða útgáfu Önnu af fram­hjá­hald­inu, eins og að þetta hefði bara gerst einu sinni í ölæði, en þori samt ekki að full­yrða það.

Ein­hverra hluta vegna varð seinna áfallið minna en það fyrra. Auðvitað hafði ég vonað að mað­ur­inn sem ég elskaði myndi ekki svíkja mig aftur en kannski hef ég innst inni átt von á því.

Við Danni skildum og að þessu sinni end­an­lega, og einnig bróðir hans og mág­kona.

Það fór eðli­lega allt á hvolf í fjöl­skyldu Danna en fólkið mitt stóð þétt við hlið mér og eng­inn orð­aði það sem allir hugs­uðu: „Hvað sagði ég?“ Ef ég hefði hlustað á fjöl­skyldu mína á sínum tíma hefði ég aldrei eign­ast yngsta barnið, auga­stein­inn minn.

Danni sýndi á sér ýmsar leið­in­legar hliðar þegar hann átt­aði sig á því að hann gæti ekki komið aftur heim. Hann hót­aði því að reyna að fá for­ræðið yfir syni okkar en ég vissi allan tím­ann að hann ætl­aði að nota barnið sem stjórn­tæki á mig. Hann var of latur til að nenna að vera einn með þriggja ára barn en samt gekk hann svo langt að fara í for­ræð­is­deilu við mig. Eins og það yrði til þess að ég tæki aftur við honum. Ég treysti mér ekki til að deila for­ræð­inu með honum eftir það sem á undan var gengið og sem betur fer var mér dæmt það. Aldrei myndi mér detta í hug að hamla umgengni hans við barnið.

Danni má eiga það að hann er góður við börnin sín og ég vildi að feðgarnir væru í sem mestum sam­skiptum. Ég stakk upp á því að hann væri með dreng­inn aðra hverja helgi frá fimmtu­degi til mánu­dags og oftar eftir sam­komu­lagi. Það sam­þykkti hann en gafst upp á því eftir nokkrar vikur. Hann vildi bara hitta dreng­inn inni á mínu heim­ili eftir sínum hent­ug­leikum og ég sam­þykkti það, allra barn­anna okkar vegna. Hann varði fyrstu jól­unum eftir skiln­að­inn með okkur og var eins og grár köttur á heim­il­inu langt fram á næsta ár. Ég fann að hann stefndi að því að kom­ast aftur heim. Sam­bandið við mág­kon­una stóð stutt.  Ég átt­aði mig á því að hann vildi vera giftur mér en eiga jafn­framt í spenn­andi og for­boðnum sam­böndum til að krydda til­ver­una. Ég var ekki til í það.

Loks fékk ég nóg og sagði Danna að þetta gengi ekki lengur. Hann væri fyrr­ver­andi mað­ur­inn minn og ég ætl­aði ekki að taka saman við hann aftur. Aldrei! Þá sagði Danni þessa óborg­an­legu setn­ingu: „Hvað hef ég eig­in­lega gert þér?“ Ég fór að hlæja og svar­aði: „Hvar á ég að byrja?“

Næstu vikur og mán­uði þurfti ég að standa föst á mínu því Danni gafst ekki upp. Loks var eins og hann sæi að honum tæk­ist ekki að smjaðra sér leið að mér á nýjan leik og ég fékk frið. Nokkrum mán­uðum seinna eign­að­ist ég svo vin, frá­bæran mann sem ég er farin að búa með. Danni er brjál­aður út af því og reynir að ljúga upp ljótum sögum um nýja mann­inn sem hann segir að ég geti ekki treyst. Ég treysti honum algjör­lega en Danna get ég aftur á móti aldrei framar treyst eftir sára reynslu mína af honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu