Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heba um Paul Rudd: „Algjört ljúfmenni“

Avengers: Endgame er aðsókn­ar­mesta kvik­myndin í íslenskum bíó­húsum um þessar mundir og malar gull um allan heim. Förð­un­ar­meist­ar­inn Heba Þór­is­dóttir, sem hefur verið að gera það gott í Hollywood, kom að gerð hennar en hún sá um förðun leik­ar­ans Paul Rudd sem fer með hlut­verk Maura­manns­ins geð­þekka (Ant-Man) í mynd­inni.

Heba um Paul Rudd: „Algjört ljúfmenni“
|Förð­un­ar­meist­ar­inn Heba Þór­is­dóttir. Mynd / Arnold Björns­son
Förð­un­ar­meist­ar­inn Heba Þór­is­dóttir. Mynd / Arnold Björns­son

Þegar blaða­maður nær tali af Hebu byrjum við einmitt á því að tala um það, þ.e.a.s. hvernig hafi verið að vinna með stór­stjörnu á borð við Rudd. „Við Paul höfum unnið saman nokkrum sinnum; Fyrst við gerð Ant-Man árið 2015, svo að þessum tveimur Avengers-myndum og loks Ant-Man and the Wasp og þótt hann geti verið smá­grall­ari, sér­stak­lega þegar hann er á setti með Payton Reed, leik­stjóra Ant-Man-mynd­anna, þá er hann algjört ljúf­menni og ein­stak­lega þægi­legur í sam­starfi. Giftur tveggja barna faðir á beinu braut­inni, þannig að maður þarf ekk­ert að hafa áhyggjur af því að hann sé að mæta í förð­un­ar­stól­inn illa fyr­ir­kall­aður eftir djamm.“

„Hann er algjört ljúf­menni og ein­stak­lega þægi­legur í sam­starfi. Giftur tveggja barna faðir á beinu braut­inni

Heba segir að það sama gildi um aðra leik­ara sem hún hafi unnið með eða hitt í tengslum við gerð þess­ara Marvel-mynda, allt sé þetta hið geð­þekkasta fólk. Hvort sem það er Samuel Jackson eða Scarlett Johans­son sem hún hefur oft unnið með áður eða Robert Downey Jr. Spurð hvernig sé eig­in­lega að vera á setti innan um svona heims­þekkta leik­ara, seg­ist hún sjaldn­ast kippa sér upp við það núorðið. Það hafi þó komið fyrir alla vega tvisvar sinnum á meðan tökum þess­ara mynda stóð að hún fékk stjörnur í augun. Það hafi gerst þegar leik­konan Michelle Pfeiffer, sem hefur haldið sig svo­lítið fjarri sviðs­ljós­inu síð­ustu ár, mætti í tökur og eins þegar allur stjörnu­leik­ara­hópur Marvel safn­að­ist saman fyrir stóra hóp­mynda­töku í tengslum við 10 ára kvik­mynda­fmæli Marvel-mynd­anna. „Í síð­ar­nefnda til­vik­inu farð­aði ég Paul Rudd, Hannah Kamen-Johnson og Tom Holland fyrir tök­una og fékk gæsa­húð við að sjá alla þessa stór­leik­ara sam­an­komna á einum stað, ásamt Kevin Feige, for­stjóra Marvel, og Stan Lee, skap­ara allra þess­ara hetja. Það var pinku súr­r­eall­ískt,“ játar hún.

Vissi ekki að hvorri mynd­inni hún var að vinna
Þegar Heba er innt út í það hvernig það hafi heilt yfir verið að vinna að stór­virki eins og Avengers: Endgame, segir hún það hafa verið gaman en krefj­andi líka og þá aðal­lega vegna þess hversu mikli leynd hvíldi yfir gerð mynd­ar­innar. „Málið er að Infinity Wars og Endgame voru teknar upp sam­tímis í Atlanta undir einu nafni, Mary Lou og það tók heilt ár. Það sem meira er, fæstir sem unnu að mynd­unum fengu að sjá hand­ritin. Við fengum bara reglu­lega afhent raf­ræn minn­is­blöð með útlistun á senum næsta dags og maður hafði bara nokkra klukku­tíma til að leggja þau á minnið áður en þau hurfu af skjánum. Þannig að við vissum því í raun aldrei að hvorri mynd­inni við vorum að vinna hverju sinni, sem varð til þess að stundum var svo­lítið erfitt að átta sig á hvað væri að ger­ast í sög­unni. Maður varð bara að vona að förð­unin væri í sam­ræmi við sen­urnar, sem gat skilj­an­lega stundum verið svo­lítið áskorun,“ útskýrir hún og hlær.

Hún segir að málið hafi svo flækst enn frekar þegar hún var að auki beðin um að vinna að tveimur öðrum Marvel-myndum sem voru í tökum á svip­uðum tíma, þ.e. Captain Marvel og Ant-Man and the Wasp. Á tíma­bili hafi hún því verið á hálf­gerðu flakki á milli mynda en ára­löng reynsla úr brans­anum hafi auð­veldað henni verkið. „Svo hafði ég nú unnið áður með leik­stjórum Avengers: Infinity War og Endgame, bræðr­unum Anthony og Joe Russo og fram­leið­and­anum Michael Grillo að Captain America: Winter Soldier og þekkti þar af leið­andi til þeirra vinnu­bragða sem hjálp­aði líka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag