Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Endurheimti sköpunarþörfina á Íslandi

Tón­list­ar­mað­ur­inn Gísli Krist­jáns­son hefur sent frá sér nýja plötu, Skeleton Crew, en 15 ár eru liðin frá því að síð­asta sóló­plata hans, How About That, kom út. Albumm hitti Gísla og byrj­aði að spyrja hvers vegna svona langur tími hafi liðið á milli platna.

Endurheimti sköpunarþörfina á Íslandi

„Ég hef oft reynt að hætta í tón­list en maður lækn­ast aldrei af þess­ari þörf fyrir að skapa, semja og skrifa, þótt auð­vitað geti alls konar hlutir sett strik í reikn­ing­inn, athygl­is­brestur, verk­kvíði og svona sem allir lista­menn þjást af,“ útskýrir Gísli, en tekur fram að hann hafi gefið út lög í milli­tíð­inni, svo sem Going On og Paper Bag sem fengu góða spilun í útvarpi. „Svo var ég allt í einu kom­inn með nokkur góð lög góð sem pössuðu vel saman og áttu erindi við umheim­inn. Þannig að ég gaf út þessa plötu, bara af því að mig lang­aði það. Það er ekk­ert flókn­ara en það.“

„Ég hef oft reynt að hætta í tón­list en maður lækn­ast aldrei af þess­ari þörf fyrir að skapa, semja og skrifa.“

Gísli segir að á meðan fyrsta platan hafi ein­kennst af lo-fi- og hip-hop-skírskot­unum snú­ist sú nýja meira um laga­smíðar og texta með vel inn­pökk­uðum einka­húmor. „Annars er þetta bara sama vit­leysan og alltaf, ég spila á öll hljóð­færin, tek upp og mixa; konan mín Elíza (Newman, úr hljóm­sveit­inni Kolrössu krókríð­andi) spilar á fiðlur og syngur bak­raddir í nokkrum lögum, dóttir okkar spilar á fullt af slag­verks­dóti og Birkir Rafn Gíslason spilar eitt geggjað gít­ar­sóló.“

Á samningi hjá EMI

Gísli hefur starfað mikið erlendis og var um tíma á samn­ingi hjá EMI UK. Spurður hvernig það hafi komið til seg­ist hann hafa samið lag, How About That, sem umboðs­fyr­ir­tæki sveitar sem hann var í, hafi lit­ist vel á. Hann fékk í kjöl­farið til­boð frá fimm stærstu plötu­fyr­ir­tækjum Bret­lands og var fljót­lega kom­inn á samn­ing hjá EMI. „Ég fékk að gera margt og lærði svo mikið og er þakk­látur fyrir það. En tón­list­ar­brans­inn getur verið eins og frændi sem var skemmti­leg­astur þegar þú varst lít­ill, svo þegar þú ert orð­inn full­orð­inn fatt­arðu að þetta heitir að vera alkó­hólisti,“ segir hann.

Fann ástina í London

Titillag plöt­unnar How about that naut vin­sælda í Evrópu og Banda­ríkj­unum og eftir þriggja ára tón­leika­ferða­lag var stefnan tekin á Los Angeles þar sem Gísli hljóð­rit­aði aðra plötu sína með upp­töku­stjór­anum Mickey Petralia sem þá hafði gert plötur með Eels, Peches, Dandy Warhols, Beck og fleiri stór­stjörnum. Eftir L.A. sneri hann sér að upp­töku­stjórnun og laga­smíðum fyrir aðra í London og vann meðal ann­ars með Duffy, Mick Jones (The Clash) og verð­laun­aða laga­höf­und­inum Cathy Dennis. Þar kynnt­ust þau Elíza og bjuggu saman úti þangað hún varð barns­haf­andi. Þá sneru þau aftur til Íslands en Gísli hafði þá búið erlendis í 20 ár. „Eftir heim­komu byrj­aði ég að hlusta á tón­list aftur mér til skemmt­unar og hætti að hugsa um hana sem vinnu og það varð til þess að ég end­ur­heimti þörf­ina fyrir að semja lög,“ segir hann.

15 ár eru liðin frá því að síð­asta sóló­plata Gísla, How About That, kom út.

Í dag búa hjónin á Höfnum á Reykja­nesi þar sem þau reka eigið stúdíó. Gísli segir að það sé algjör draumur að búa í sveit, sér­stak­lega þegar mann langi að koma ein­hverju í verk, eins og til dæmis að semja lög. En vinna þau mikið saman? „Já. Ég tek upp lögin hennar og spila á alls konar fyrir hana og Elíza spilar í mínum lögum sem virkar vel. Það er gott að hafa hana því hún er með meiri reynslu eftir allar sínar  plötur. Við höfum líka gengið í gegnum mikið af sömu hlut­unum á þessu brölti okkar þannig að við skiljum hvort annað vel.“

Spurður hvort hann ætli að fylgja plöt­unni eftir með tón­leika­haldi segir hann það ekki á döf­inni. „Kannski breyt­ist það ef ég er dug­legur og held áfram að gefa út efni sem fólki finnst skemmti­legt.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Mynd / Elíza Newman

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu