Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óskar þess stundum að vera í þægilegri innivinnu

Tón­list­ar­mað­ur­inn og frum­kvöð­ull­inn Svavar Pétur Eysteins­son eða Prins Póló hefur alltaf nóg fyrir stafni. Sumar í Havarí er á næsta leiti ásamt tveimur ólíkum safn­plötum. Svo er bók í bígerð og nýtt brak­andi snakk. Albumm hitti á Svavar og byrj­aði á því að spyrja hvernig fer­ill­inn hefði farið af stað.

Óskar þess stundum að vera í þægilegri innivinnu

„Við fjöl­skyldan fluttum austur á Seyð­is­fjörð árið 2008. Berglind Häsler, konan mín, fór að vinna hjá RÚV og mig lang­aði til að halda áfram að gera til­raunir með tón­list. Ég var undir miklum áhrifum frá íslensku poppi frá 8. og 9. ára­tugnum og í raun hel­tek­inn af ein­hvers­konar for­tíð­ar­þrá og lands­byggð­ar­fíl­ing. Þannig varð Prinsinn til,“ segir hann en kveðst ann­ars alltaf hafa verið að bauka eitt­hvað í tón­list.

Af hverju tókstu upp nafnið Prins Póló? „Sko, ég setti upp lítið hljóð­ver í kjall­ar­anum. Keypti mér hljóð­kort, hljóð­nema, trommu­sett og byrj­aði að bauka eitt­hvað í tón­list­ar­for­rit­inu Pro Tools og fyrsta lagið sem ég samdi hét Átján, sem fjallar um ást­ar­sögu sem ger­ist í ferm­ing­ar­veislu. Þegar ég tók mér hlé fór ég út í sjoppu og keypti Prins Póló og lagamappan fékk það nafn. Hefði ekki getað verið sjoppu­legra,“ játar hann og hlær.

Tónleikastaður, bændagisting, matarsmiðja og kaffihús

Eftir tveggja ára dvöl fyrir austan fluttu Svavar og Berglind aftur til Reykja­víkur. Hjálmar, Kimi Records og Streym­isveitan Gogoyoko voru þá með hug­mynd um að stofna plötu­búð í mið­bænum og fengu þau með sér í það verk­efni.

„Það var sam­hentur hópur sem réðst í að rigga upp plötu­búð í Aust­ur­stræti 6, sem fékk nafnið Havarí,“ rifjar Svavar upp. Brátt vatt starf­semin upp á sig því farið að var að sýna mynd­list og halda tón­leika í búð­inni. „Þetta varð því fljótt félags­mið­stöð og dag­klúbbur fyrir gesti mið­borg­ar­innar.“

Svavar Pétur Eysteins­son, eða Prins Póló.

Eftir tveggja ára starf­semi missti Havarí hús­næðið sem Svavar rekur til hót­elæð­is­ins sem greip um sig mið­bænum. Þau fóru því á stúf­ana að leita að nýju hús­næði í borg­inni en allt tómt hús­næði virt­ist vera ætlað undir hótel sem varð til þess að þau fóru að skoða staði utan höf­uð­borg­ar­innar.

„Eftir nokkra leit fundum við sveitabæ austur í Berufirði þar sem búskapur hafði lagst af og hús­næðið var við það að drabb­ast niður. Við seldum því íbúð­ina okkar í Vest­ur­bænum og keyptum bæinn og fórum strax í að koma honum í lag.“ Nú er þar rekin mat­ar­smiðja, bændag­ist­ing, kaffi­hús og tón­leika­staður auk þess sem þau rækta græn­meti undir líf­rænni vottun. „Fyrir utan að við tökum á móti hópum í skemmti­ferðir og ráð­stefnur.“

Opið og skemmtilegt samfélag fyrir austan

Svavar segir að alltaf séu ein­hverjir sem spyrji hvað svona mið­bæj­ar­rottur og furðu­fuglar séu að vilja upp á dekk í rót­gró­inni sveit þar sem meg­in­uppi­staðan er sauð­fjár­rækt og fisk­vinnsla en flestir hafi tekið þeim opnum örmum.

„Sam­fé­lagið fyrir austan er opið og skemmti­legt. Svo er stefna sveit­ar­fé­lags­ins að styðja við sprota­starf­semi og treysta stoðir stað­bund­innar fram­leiðslu þannig að við höfum átt gott sam­starf,“ lýsir hann, en segir að þau hafa einnig rek­ist á veggi. „Til dæmis er flutn­ings­kerfi raf­magns­ins löngu úrelt sem er hamlandi fyrir alla atvinnu­upp­bygg­ingu. Svo hefur mik­ill tími farið í alls­konar til­rauna- og þró­un­ar­starf hjá okkur og þar hefur sumt gengið betur en annað eins og við er að búast.“

„Ég er sjálfur frekar kaó­tískur og oft­ast finnst mér bara best að vaða áfram í gegnum dag­inn og vona það besta.“

Spurður hvernig þau kom­ist eig­in­lega yfir þetta allt, segir Svavar mik­il­vægt að vera skipu­lagður. „Ég er sjálfur frekar kaó­tískur og oft­ast finnst mér bara best að vaða áfram í gegnum dag­inn og vona það besta. En þetta er fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki með skýrri verka­skipt­ingu og við höfum verið heppin með starfs­fólk.“ Hann játar að það komi þó dagar þar sem hann óskar þess að vera í ein­faldri og þægi­legri inni­vinnu með reglu­legum vinnu­tíma.

En hvað er ann­ars fram undan? „Sumar í Havarí, við­burða­dag­skráin sem hefst 15. júní, en hún byrjar með Hjálmum og svo rekur hver snill­ing­ur­inn annan. Mr. Silla og Jae Tyler, Kab­ar­ett­sýn­ingin Búkalú um lönd og lendar, Geir­fugl­arnir, FM Belfast og fleiri. Kaffi­húsið verður opið frá morgni til kvölds og svo verður eflaust hell­ingur af óvæntum upp­á­komum.“ Sjálfur er hann að fara að gefa út tvær ólíkar safn­plötur með nýjum upp­tökum og bók sem spannar fer­il­inn, í til­efni af 10 ára afmæli Prinsins. „Vonandi hefur maður síðan smá­tíma til að tyggja nokkur strá og njóta sum­ar­blíð­unnar með fjöl­skyldu og vinum fyrir austan.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Mynd / Brynjar Snær

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu