Karítas samdi lagið fyrir um tveimur árum og segir að upprunalega hafi það bara verið samið við lítið, ómerkilegt píanóriff.
„Ég er með EP-plötu (stuttskífa) í vinnslu sem kemur út snemma í haust – ef allt gengur eftir,“ segir Karítas en flest lögin eru ástarlög með „dark twist“, eins og hún orðar það.
Tónlistarmaðurinn Dadykewl sem gaf út plötuna Klámstjarna á síðasta ári, útsetti lagið. Hægt er að hlusta á Wear Somebody Else og sjá myndbandið við lagið á Albumm.is.































Athugasemdir