Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Fimm ára ég væri stolt ef hún sæi sjálfa sig núna“

Tón­list­ar­konan og laga­smið­ur­inn Hildur hefur í nógu að snú­ast þessa dag­ana en hún var að senda frá sér þrjú lög með stuttu milli­bili. Hún mun einnig gefa út EP-plöt­una Intuition með vor­inu og vinnur að sinni fyrstu sóló­plötu.

„Fimm ára ég væri stolt ef hún sæi sjálfa sig núna“

„Öll lög sem ég hef gefið út síðan í haust verða á þess­ari EP-plötu og svo bæt­ist síð­asta lagið við í vor,“ segir Hildur en kveðst núna vera að ein­beita sér að sóló­plöt­unni. „Það er svo­lítið „skerí“ því þrátt fyrir að hafa gefið út tvær EP-plötur þá er eitt­hvað full­orð­ins­legra við að gera heila plötu. Ég ætla að spila með­fram því og semja fyrir aðra, en fók­us­inn verður á hana.“

Hildur segir að Woman in War sem kom út fyrir viku, sé eig­in­lega upp­á­halds­lagið hennar á Intuition og að umfjöll­un­ar­efni þess skipti hana miklu máli. Hana hafi lengi langað að semja lag um hvernig er að vera kona og þurfa að berj­ast á tímum þegar jafn­rétti ætti að vera orðið sjálf­sagt. „Það er ekk­ert gaman að vera alltaf að benda á allt sem er að, en það er samt það sem þarf að gera til þess að hlut­irnir breyt­ist, og ég held að margar konur tengi við þetta.“ Hún segir að það hafi verið svo­lítið púsl að gera popp­lag um þetta umfjöll­un­ar­efni en lagið hafi fæðst hratt þegar hún var komin með réttu hljómana.

„…þrátt fyrir að hafa gefið út tvær EP-plötur þá er eitt­hvað full­orð­ins­legra við að gera heila plötu.“

„Ég var líka nýbúin að horfa á heim­ild­ar­mynd um Kate Bush og eftir á að hyggja átta ég mig á að þetta lag er mjög inn­blásið af henni, sem er bara geggjað.“

Samdi lag til 5 ára sjálfrar sín

Fyrir stuttu sendi Hildur einnig frá sér lagið 1993, lag sem hún samdi til fimm ára sjálfrar sín. „Ég hafði nýlega verið með rit­stíflu að reyna að semja nýja tón­list og efað­ist eitt­hvað um það hvort ég ætti yfir­höfuð að vera í þessum bransa. Þá mundi ég eftir pepp-setn­ingu sem ég hafði stundum sagt við sjálfa mig: „Hugsaðu þér hvað fimm ára þú yrði stolt ef hún sæi þig núna.“ Setning sem ég not­aði stundum, t.d. þegar ég var að brjóta mig niður eða fannst ég ekki nógu dug­leg, því það er eitt­hvað svo fal­legt að hugsa til þess að fimm ára lang­aði mig mest að vera uppi á sviði að syngja og vera tón­list­ar­kona og hvað þessi fimm ára ég yrði nú stolt sæi hún allt það sem ég er að gera. Upp úr því spratt setn­ingin „when I grow up I wanna be me“,“ útskýrir hún og vonar að lagið minni fólk á að það sé aldrei of seint að fylgja draumum sínum eftir, þótt leiðin geti verið flókin og löng.

Finnst gaman að semja fyrir aðra

Hildur hefur líka túrað mikið og komið fram á tón­list­ar­há­tíðum, bæði hér heima og erlendis. Hún segir það ganga vel og finnur fyrir áhuga ytra, ekki síst eftir að hún komst á samn­ing hjá banda­ríska plötu­fyr­ir­tæk­inu Anti Fragile, sem upp­götv­aði hana á Spotify. Þá hefur hún verið að semja tón­list fyrir aðra og seg­ist finna sig í því, enda sé bransi laga­höf­unda erlendis áhuga­verður.

„Það skemmti­leg­asta við að semja lag „eftir pöntun“ er að maður stígur inn í heim þess sem maður er að semja lagið fyrir og fer að velta alls konar hlutum fyrir sér; hvernig stíl er sú mann­eskja með, hvernig rödd og hverju hún reynir að koma á fram­færi og svo fram­vegis,“ lýsir hún og segir að við þetta allt hafi hún kynnst mörgu frá­bæru fólki í brans­anum og þroskast sem laga­höf­undur.

Tón­list­ar­konan og laga­smið­ur­inn Hildur er með mörg járn í eld­inum.

Spurð út í íslensku tón­list­ar­sen­una seg­ist hún seint þreyt­ast á því að monta sig við útlend­inga af því hvað við eigum mikið af fram­bæri­legu tón­list­ar­fólki. „Hér er alltaf eitt­hvað nýtt og spenn­andi að koma fram og maður þarf bara að hafa sig allan við að fylgj­ast með. Ég væri vissu­lega til í að sjá fleiri konur á topp­listum en von­andi breyt­ist það,“ segir hún full jákvæðni og kveðst líka vilja peppa ungt tón­list­ar­fólk sem þorir ekki enn þá að láta vaða. „Fyrstu skrefin eru erf­ið­ust en það er dýr­mæt­ara að prófa en að þora aldrei.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Myndir / Árni Eyþórs­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu