Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fer í blakkát á sviði

Hug­leikur Dagsson er um þessar mundir að und­ir­búa sig fyrir sinn stærsta uppi­standa­túr til þessa, Son of the Day sem verður brot af því besta sem hann hefur verið að gera síð­ustu fimm ár. Í til­efni af túrnum heldur hann eina sýn­ingu hér heima, á Kex þann 5. apríl næst­kom­andi.

Fer í blakkát á sviði

Lík­ams­vessar, Tinder, Star Wars og feg­urð­ar­drottn­ingar eru á meðal þess sem grínist­inn Hug­leikur Dagsson ætlar að taka fyrir í uppi­stand­stúr um heim­inn. „Við byrjum í Búdapest og tökum rest­ina af Austur-Evrópu. Síðan förum við til Berlínar, Brussel, Amster­dam og Vínar. Við ljúkum ferð­inni á Norð­ur­lönd­unum með hápunkti í Helsinki þar sem ég verð með þrjár sýn­ingar sem ég mun láta taka upp. Ætlunin er að klippa saman svo­kall­aðan „stand-up special“ og selja hann á ein­hverja streym­isveitur, verða heims­frægur og deyja ríkur,“ segir Hug­leikur um túr­inn.

Uppi­stand­inu má lýsa sem broti af því besta sem Hug­leikur hefur gert síð­ast­liðin fimm ár, en hann hefur nú feng­ist við upp­stand í tíu ár og segir að upp­haf­lega hafi hann ekki getað hugsað sér að fara út í það. „Fyrir svona tíu árum sagði ég: „Uppi­stand er eitt­hvað sem ég mun aldrei prófa! Enda er ekk­ert óhugn­an­legra en að standa á sviði og reyna að vera fynd­inn. Hvað ef það mis­heppn­ast? Það væri mann­leg eymd í sinni hrein­ustu mynd.“ En svo krafð­ist Ari Eldjárn þess að ég próf­aði, sem ég gerði og það tókst. Síðan þá hef ég verið háður þessu frá­sagn­ar­formi.“

Fyrir svona tíu árum sagði ég: „Uppi­stand er eitt­hvað sem ég mun aldrei prófa!“

Hann segir að ekk­ert sé betra en að vera á sviði og drekka í sig við­brögðin. Að í raun sé það eini tím­inn sem honum finn­ist hann hafa ein­hverja stjórn, en að sama skapi kvíði hann fyrir hverju „giggi“. „Manns­sálin er bara ekki byggð fyrir þetta kjaftæði. Samt gerir maður þetta út af ein­hverri við­ur­kenn­ing­ar­fíkn, því um leið og maður nær fyrsta hlátr­inum þá hverfur kvíð­inn og maður sör­far hlát­ur­inn eins og brim­bretta­kappi. Þetta er spurn­ing um að halda dampi og trúa á efnið sitt.“

Öfundar engan

Spurður út í eft­ir­minni­legt uppi­stand, segir hann svo­lítið erfitt að svara því þar sem hann fari oft hrein­lega í blakkát á sviði. „Ég er byrj­aður að hljóð­rita giggin mín svo ég geti hlustað á það sem ég sagði. Margir góðir brand­arar fæð­ast nefni­lega á sviði og það er glatað að muna þá ekki eftir á.“

Við nán­ari umhugsun seg­ist Hug­leikur reyndar muna eftir nokkrum sér­kenni­legum „giggum“.  „Já, ég lenti til dæmis í því á skemmtun úti á landi að það fór einn að tuða og ég svar­aði honum svo svaka­lega að hann bara lét sig hverfa. Bæj­ar­búar voru afar ánægðir enda höfðu þeir í nokkur ár hugsað honum þegj­andi þörf­ina.“ Hug­leikur segir að upp­á­komur af þessu tagi teng­ist oft­ast árs­há­tíðum þar sem ein­hver drukk­inn karl í salnum fari að reyna að skjóta á hann. „En við­kom­andi gleymir þá alveg að ég er bæði atvinnu­grínisti og með míkró­fón,“ bætir hann við kím­inn.

En hvaða eig­in­leikum þarf góður uppi­stand­ari að búa yfir?

„Góður uppi­stand­ari þarf að til­einka sér góða vinnu­sið­fræði,“ svarar hann og seg­ist í því sam­hengi fara eftir þeirri reglu Conans O’Brien að vera dug­legur og góður.

„Ég hef tamið mér að láta aðra grínista ekki fara í taug­arnar á mér, það skiptir máli. Og öfund­aðu engan. Notaðu vel­gengni ann­arra sem fyr­ir­mynd og vertu þú sjálfur. Það sést langar leiðir þegar grínisti er að reyna að vera eins og ein­hver annar. Samband grínista við sal skiptir öllu máli. Aldrei fara í vörn ef fólk fattar ekki eitt­hvað, það er ekki því að kenna heldur þér. Ef maður temur sér ákveðna blöndu af hóg­værð og kæru­leysi verður maður ósigr­andi.“

Notaðu vel­gengni ann­arra sem fyr­ir­mynd og vertu þú sjálfur.

22 gigg í 18 borgum

Eins og áður sagði fer Hug­leikur bráð­lega í einn stærsta uppi­stand­stúr sem Íslend­ingur hefur farið í. Túrinn ber heitið Son of the Day sem er þýð­ing á eft­ir­nafni Hugleiks, Dagsson eða sonur Dags, og hefst 11. apríl. „Réttara hefði verið að segja Son of Day en Son of „the“ Day er ein­hvern veg­inn til­gerð­ar­legra og þess vegna valdi ég það. Var í smá­stund að spá í að kalla sýn­ing­una Mindgame en það hljómar eins og ég sé að reyna að vera kúl. Og það er ekk­ert minna kúl en að reyna að vera kúl. Það er hins vegar mjög ótil­gerð­ar­legt að reyna að vera til­gerð­ar­legur.“

Með í för verða vinur hans, ástr­alski grínist­inn Jonathan Duffy, sem hitar upp og Rakel Sæv­ars­dóttir, umboðs­maður Hugleiks. „Ég til­kynnti ein­fald­lega fylgj­endum mínum á Netinu að ég væri ekki bara teikn­ari heldur uppi­stand­ari líka og ef ein­hver vildi bóka mig mætti endi­lega hafa sam­band. Fyrr en varði vorum við búin að bóka 22 gigg í 18 borgum,“ segir hann glað­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu