Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Datt á allan leikarahópinn úr hæstu lyftunni

Leik- og söng­konan Thelma Hrönn Sig­ur­dórs­dóttir leikur Báru haf­meyju í glæ­nýju verki Leik­hóps­ins Lottu sem sýnt verður um land allt í sumar. Sýn­ing­unni er ætlað að vekja fólk til umhugs­unar um allt ruslið sem það hendir út í nátt­úr­una.

Datt á allan leikarahópinn úr hæstu lyftunni
Mynd/Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir||Litla haf­meyjan

„Verkið í ár heitir Litla haf­meyjan og við fléttum sög­una saman við ævin­týrið um Hlina kóngs­son. Leik­ritið er samið með það í huga að vekja fólk til umhugs­unar um ruslið sem það fleygir frá sér, haf­meyj­urnar eru jú að drukkna í öllu þessu sorpi sem fleygt í sjó­inn,“ segir Thelma sem fer með hlut­verk Báru haf­meyju í verk­inu. „Hún er mik­ill kven­skör­ungur, sterk, hvat­vís og hug­rökk stelpa.“ Þetta er í annað sinn sem Thelma tekur þátt í upp­setn­ingu hóps­ins, byrj­aði síð­asta sumar í Lottu í leik­rit­inu Gosa.

Litla haf­meyjan. Leik­ritið er samið með það í huga að vekja fólk til umhugs­unar um ruslið sem það fleygir frá sér, haf­meyj­urnar eru jú að drukkna í öllu þessu sorpi sem fleygt í sjó­inn,“ segir Thelma.

„Und­ir­bún­ing­ur­inn hefur gengið afar vel, leik­ritið er reyndar flókn­ara en sýn­ingar sem Lotta hefur áður sýnt. Við erum yfir­leitt öll á svið­inu á sama tíma, því þó að áhorf­endur sjái bara tvær haf­meyjur að synda í haf­inu á svið­inu, er restin af leik­ara­hópnum skríð­andi á hnjánum að reyna að láta þær líta vel út. Það getur verið ansi snúið að vera fastur í sporð á svið­inu og þurfum við mikla aðstoð. Það er mikið um lyftur og áhættu­at­riði í sýn­ing­unni og skiptir máli að hver aðili sé á réttum stað. Einu sinni datt ég á allan leik­ara­hóp­inn úr hæstu lyft­unni en sem betur fer var það á æfingu og við látum það ekki ger­ast aftur,“ segir hún bros­andi.

Sjá um allt sjálf
Thelma er menntuð í sviðs­listum og starfar aðal­lega sem söng­kona. Áður en hún tók til starfa með leik­hópnum Lottu lék hún í Þjóð­leik­hús­inu og hjá MAK, Menn­ing­ar­fé­lagi Akur­eyrar. „Munurinn á þessum leik­húsum og Lottu er auð­vitað sá að við gerum allt sjálf, sex leik­arar og leik­stjóri, en í leik­hús­inu eru tugir manns á bak við hverja sýn­ingu og leik­ari er bara leik­ari, ekki mark­aðs­full­trúi, sviðs­maður, hljóð­maður, sviðs­hönn­uður, starfs­maður í miða­sölu, sæta­vísir, bíl­stjóri og svo fram­vegis. Sem betur fer erum við með bún­inga­hönnuð því ég gæti engan veg­inn saumað með mína tíu þum­al­putta,“ segir Thelma.

„Næstu mín­út­urnar fóru þá í að koma í veg fyrir að blóð færi á leik­mynd og bún­inga.“

„Við sjáum um allt sjálf – setjum upp leik­mynd­ina, und­ir­búum leik­muni, gjöllum til að láta fólk vita að við séum mætt á svæðið, seljum í sjopp­unni og tökum á móti áhorf­endum. Síðan kemur loks­ins að því að leika sjálfa sýn­ing­una og eftir hana viljum við auð­vitað tala við flesta og gefa fimmur eða taka myndir. Eftir það þarf svo að gera upp, taka niður leik­mynd­ina og raða aftur í kerruna. Þetta er mikil vinna en við reynum að vera skipu­lögð og halda vel á spöð­unum. Það er mik­ill kostur að fá að ferð­ast um landið og heim­sækja fal­leg bæj­ar­svæði og kaup­staði. Auðvitað væri ég helst til í að taka fjöl­skyld­una alltaf með, en stundum er svo brjálað að gera hjá okkur að það er bara ekki hægt, en það kemur fyrir að við getum boðið fjöl­skyldum okkar með okkur og þá er þetta alveg hreint dásam­legt.“

Thelma Hrönn Sig­ur­dórs­dóttir tekur nú þátt í upp­setn­ingu Leik­hóps­ins Lottu í annað sinn. Mynd/Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir

Veðrið hefur mikil áhrif
Henni finnst sýn­ing­ar­form Leik­hóps­ins Lottu afar skemmti­legt enda sé engin sýn­ing eins, und­ir­lag ólíkt og veðr­áttan sjái til þess að þau þurfi að meta hverjar aðstæður fyrir sig.

„Nefnd innan hóps­ins sér til þess að hver sýn­ing verði sem best. Hún ákveður nákvæma stað­setn­ingu á gras­inu og hvernig við snúum, und­ir­lagið þarf jú að vera sem slétt­ast og sólin má ekki skína beint í augun á áhorf­endum. Veðrið skiptir auð­vitað svaka­lega miklu máli og er einn Lottu­með­limur skip­aður veð­ur­fræð­ing­ur­inn og er í beinu sam­bandi við veð­urguð­ina. Veðrið getur haft tölu­verð áhrif á sýn­ing­una en á sól­ar­dögum fyllist dal­ur­inn og áhorf­enda­svæðið og þá þarf að gera ráð fyrir fjöld­anum og poppa nóg og mikið. Síðan á rign­ing­ar­dögum þurfum við að passa upp á raf­magnið og fleira sem við viljum ekki að blotni.“

Í öllum hama­gang­inum getur síðan eitt og annað komið upp á. „Á sýn­ingu um dag­inn gaf Sævar, bróðir Báru haf­meyju, henni einn á hann þegar hann ætl­aði að veifa hönd­inni aðeins. Næstu mín­út­urnar fóru þá í að koma í veg fyrir að blóð færi á leik­mynd og bún­inga,“ segir hún hlæj­andi.

Höfundur Litlu haf­meyj­unnar er Anna Bergljót Thoraren­sen en þetta er níunda verkið sem hún skrifar fyrir hóp­inn. Hún semur einnig laga­texta ásamt Baldri Ragn­ars­syni og er leik­stjóri sýn­ing­ar­innar. Lögin eru eftir Björn Thoraren­sen, Rósu Ásgeirs­dóttur og Þórð Gunnar Þor­valds­son, dansar eftir Berg­lindi Ýri Karls­dóttur og bún­inga­hönnun er í höndum Kristínu R. Berman. Leikarar ásamt Thelmu eru þau Andrea Ösp Karls­dóttir, Árni Bein­teinn, Sig­steinn Sig­ur­bergs­son, Stefán Benedikt Vil­helms­son og Þórunn Lár­us­dóttir. Nánari upp­lýs­ingar eru á heima­síð­unni leik­hop­ur­inn­lotta.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Verslunin í Hafnarfirði hefur verið sjálfstæð um áratuga skeið
Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag